Flm. (Jón Helgason):
Hæstv. forseti. Á þskj. 42 flyt ég ásamt hv. þm. Skúla Alexanderssyni, Agli Jónssyni, Guðmundi Ágústssyni og Jónasi Hallgrímssyni frv. til laga um breytingu á lögum nr. 79/1985, um skipulag ferðamála, sbr. lög nr. 59/1988.
Í 1. gr. þessa frv. er kveðið á um að inn í lögin um skipulag ferðamála komi ný grein sem verði 8. gr. laganna. Í þessari grein er ákvæði um að sveitarstjórn, eða sveitarstjórnum sameiginlega, sé heimilt að skipa ferðamálanefnd. Í nefndinni skulu eiga sæti fimm til sjö menn og auk fulltrúa frá sveitarstjórn séu nefndarmenn úr hópi þeirra er starfa að ferðaþjónustu á svæðinu. Til þess að tryggja sem best samstarf og til að nýta krafta allra sem að ferðamálum vinna, þá skuli þeim sem ekki eiga fast sæti í nefndinni vera boðið til setu á nefndarfundum með málfrelsi og tillögurétti.
Hlutverk ferðamálanefndar er að skipuleggja ferðamál í umdæmi hennar og önnur þau verkefni sem Ferðamálaráði eru falin í 7. gr. laganna, eftir því sem við getur átt hjá hverri nefnd á þeim stað þar sem hún starfar. Enn fremur getur sveitarstjórn falið nefndinni önnur þau verkefni eða rekstur sem hún telur æskilegt.
Þá er ferðamálanefnd heimilað að ráða kunnuga heimamenn til leiðsögu í umdæmi sínu þrátt fyrir ákvæði 34. gr. laganna um leiðsögumenn.
Ferðamálanefnd er heimilt að taka sanngjarnt gjald fyrir þá þjónustu sem hún veitir og einnig að innheimta framlög frá þeim sem vinna að þjónustu á svæðinu og að sjálfsögðu er þá reiknað með að þetta fjármagn renni til sameiginlegrar þjónustu eða framkvæmda til hagsbóta fyrir alla sem að þeim málum vinna.
Ýmis ferðamálasamtök og ferðamálanefndir eru starfandi víðs vegar um landið, skipaðar fulltrúum sveitarstjórna og áhugaaðila. Hafa þessi samtök unnið að skipulagningu ferðamála þó ekki sé gert ráð fyrir starfi þeirra í núgildandi lögum. Með þessu frv. er hins vegar ætlað að setja lagaramma um starfsemi ferðamálanefnda sem sveitarstjórnum er veitt heimild til að skipa innan sinna umdæma og starfsvettvangur þessara nefnda mundi fyrst og fremst miðast við þau verkefni sem tengjast þeim málaflokkum sem Ferðamálaráði eru falin í 7. gr. laganna. Með því er verið að leggja áherslu á að þessum málum verður að sinna heima í hverju héraði. Þeim verður ekki stjórnað öllum frá einum stað.
Markmiðið með þessu frv. er ekki að taka verkefni af Ferðamálaráði heldur miklu fremur að gera það kleift að markmiðin með starfi Ferðamálaráðs náist, sem útilokað er að gera með fjarstýrðri stefnu. Það er að Ferðamálaráð fái aðstoð við það að ná þessum markmiðum.
Allir þeir sem að ferðamálum vinna á hverjum stað þurfa að taka höndum saman til að gera sér grein fyrir því hvaða kostum hver staður er búinn til þess að ferðamenn vilji koma þangað og dvelja þar og
jafnframt að sjálfsögðu að bæta þau skilyrði eftir því sem kostur er. Á slíkri úttekt og möguleikum er síðan unnt að gera áætlun um uppbyggingu mannvirkja og annarrar aðstöðu. Það er áreiðanlega mikilvægt til þess að auka aðsókn að hverju svæði að kunnugir heimamenn taki á móti gestum og greiði götu þeirra. Hinar ört vaxandi vinsældir ferðaþjónustu bænda á síðustu árum eiga áreiðanlega mikið rót sína að rekja til þess að slíkt er fyrir hendi þar. Þess vegna er sett ákvæði inn í greinina sem heimilar mönnum að sinna slíku í sínu nágrenni þrátt fyrir ákvæðin um lögverndaðan rétt leiðsögumanna. Þeir munu að sjálfsögðu halda áfram að gegna sínu starfi þó að þarna sé gerð þessi undanþága.
Það er mikið talað um möguleika okkar til að fjölga komu erlendra ferðamanna hingað til landsins og áreiðanlega er það rétt. En hinu má ekki gleyma að samkvæmt nýbirtum tölum frá Þjóðhagsstofnun rennur aðeins 1 / 4 hluti ferðalagaútgjalda vísitölufjölskyldunnar til ferðalaga innan lands. Um 3 / 4 eru vegna ferða til útlanda. Og heildarferða- og dvalarkostnaður Íslendinga í útlöndum er rúmlega helmingi meiri heldur en ferða- og dvalarkostnaður erlendra ferðamanna á Íslandi. Það skiptir því ekki litlu máli fyrir okkar þjóðarbúskap að einhver hluti þeirra sem síðustu árin hafa kosið utanlandsferðir telji æskilegra að ferðast fremur um sitt eigið land. Áreiðanlega væri hægt að ná þar nokkrum árangri ef útbúin væri nokkurra daga dvalardagskrá á ákjósanlegum stöðum og það síðan auglýst eitthvað í líkingu við sólarlandaferðir nú.
En að bættu skipulagi ferðamála heima í héraði þarf ekki aðeins að vinna til að fá þangað fleiri ferðamenn heldur líka til að gæta þess að ekki verði of mikill átroðningur af vaxandi umferð á viðkvæmum stöðum. Það hefur gjarnan verið talað um það að sauðkindin gangi of nálægt landinu. En nú er farið að ræða um að átroðningur ferðamanna á viðkvæmum stöðum valdi meiri spjöllum á gróðri. Því er nauðsynlegt að ferðamálanefndir fylgist vel með þessum málum og hafi tök á að skipuleggja og takmarka umferð ef nauðsyn krefur og vinni þar að sjálfsögðu í samvinnu við Náttúruverndarráð eins og kveðið er á um í greininni um Ferðamálaráð.
Það væri hægt að ræða mikið um ferðaþjónustuna og möguleika hennar. Fyrr í sumar kom ég í lítið þorp í Austurríki sem byggst hefur upp á 30--40 árum sem ferðamannastaður, fyrst og fremst skíðastaður. Einnig er tekið þar á móti ferðamönnum að sumri til þó áreiðanlega sé það margfalt meira sem flestir staðir hér á landi hafa upp á að bjóða hvað umhverfi varðar en þessi staður í Austurríki. Þarna hafa samt sem áður verið byggð um 40 gistihús á undanförnum áratugum og virðast dafna vel.
Ég vil taka undir að slíka möguleika höfum við hér á landi en það gerist ekki af sjálfu sér. Menn verða að taka höndum saman og vinna skipulega að því að koma þessum málum fyrir eins og best verður á kosið, bæði með tilliti til þess að þeir sem hingað leggja leið sína verði ekki fyrir vonbrigðum og að
landið og umhverfið hljóti ekki skaða af.
Við heyrðum það í fréttum nýlega að á ráðstefnu um ferðamál úti í Sviss var rætt um ýmsar hættur sem af of mikilli ásókn ferðamanna geti stafað. Forseti Íslands benti hins vegar á að það sé komið undir þeim sem á móti taka og skipuleggja málin hvernig þróunin verður, og undir það vil ég taka. Mér finnst t.d. alveg sjálfsagt að við Íslendingar leggjum áherslu á okkar íslenska mat sem framleiddur er í ómenguðu umhverfi og teljum stolt okkar að bjóða hann gestum okkar í eins ríkum mæli og kostur er. Á það atriði þurfum við að leggja meiri áherslu en við höfum gert hingað til.
Ég vil að lokinni þessari umræðu leggja það til að frv. verði vísað til 2. umr. og samgn.