Ferðamál
Þriðjudaginn 17. október 1989


     Egill Jónsson:
    Virðulegi forseti. Eins og þingskjalið ber vott um er ég einn af flm. frv. og þarf þess vegna ekki að taka það fram að ég er því að sjálfsögðu samþykkur. Ég get þess vegna vísað til framsöguræðu þeirrar sem 1. flm. flutti hér um efnisatriði málsins.
    Ég legg hins vegar á það áherslu að hér er lagt til að gera heimaaðilum kleift að vera virkari í skipulagi ferðamála með ferðamálanefndum og ég tek sérstaklega undir það sem hv. 3. þm. Vestf. sagði hér áðan að það er mikilvægt að efla frumkvæði í héraði í þessum málum sem öðrum. Það liggur reyndar þegar fyrir góð reynsla af því eins og kom fram hjá hv. 3. þm. Reykn. því að ferðamálanefndir eru víða starfandi, m.a. þar sem ég þekki til á Austurlandi. Það breytir ekki því að það er styrkur fyrir ferðamálanefndirnar og fyrir þessa starfsemi að réttindi þeirra og skyldur, þó að takmörkuðu leyti sé nú greint í frv., séu fest í lögum. Og ég held að það sé mjög af hinu góða, og vil reyndar sérstaklega undirstrika það, að valdið sé flutt heim í þessum efnum frekar en að það sé staðsett í allt of ríkum mæli hér á einum stað, hjá Ferðamálaráði eins og nú er.
    Ég get ekki séð annað en að áhrif frv. séu jákvæð þó að þau séu e.t.v. ekki mjög víðtæk og legg þess vegna áherslu á að það fái hér jákvæða afgreiðslu í þessari hv. deild.