Einar Kr. Guðfinnsson:
Herra forseti. Það kvað vissulega við ánægjulegan tón og nýjan í máli hv. 3. þm. Norðurl. v. hér áðan þegar hann viðurkenndi þá staðreynd sem hefur blasað við flestum öðrum en dyggustu aðdáendum í aðdáendaklúbbi núverandi ríkisstjórnar að mál atvinnulífsins í landinu hafa ekki verið leyst. Á því hefur nefnilega borið upp á síðkastið að svo mikil sé sjálfsánægjan í klúbbnum að menn hafa gefið sér það, og síðast kom það fram í sjónvarpinu í gær, að þessi ríkisstjórn hafi unnið slíkt kraftaverk að nú séu helstu vandamál atvinnulífsins í höfn og leiðin fram undan björt og breið. Það var þess vegna ákaflega mikils virði og í raun og veru kannski ekki við öðru að búast frá svo nákunnugum manni í sjávarútvegi en hann áttaði sig á því að þessu er auðvitað öðruvísi farið. Hinn rósrauði bjarmi sem stundum leikur yfir málflutningi fulltrúa aðdáendaklúbbsins á ekki mjög mikið skylt við raunveruleikann. Kjarni þessa máls sem verið er að ræða hér og lýtur að aðbúnaði og lífsháttamöguleikum fólks í strjálbýli er nefnilega sá að það er ekki við því að búast að hægt sé að efla atvinnulíf eða mannlíf í strjálbýlinu ef atvinnulífið býr við svona bág kjör eins og það hefur gert upp á síðkastið.
Mér fannst örlítið örla á misskilningi í máli hv. þm. Guðrúnar Agnarsdóttur hér áðan að vandi strjálbýlisins væri í því fólginn að ekki hefði tekist að draga með töngum nægilegt fjármagn frá fjárveitingavaldinu og út í hinar dreifðu byggðir. Einhvern veginn blasir þetta alveg þveröfugt við frá mínum sjónarhóli. Frá mínum sjónarhóli blasir það þannig við að fé hefur verið tekið mér liggur við að segja ófrjálsri hendi út úr atvinnulífinu, flutt annað og þess vegna hefur fólkið á landsbyggðinni ekki fundið þann grundvöll til þess að búa á sem það ella hefði gert. Þetta held ég að sé meginskýring þess að við eigum m.a. við vandamál að stríða í heilbrigðisþjónustu og menntakerfi strjálbýlisins. Ekki að það hafi verið svo mikill skortur á ákveðinni uppbyggingu í húsakosti í þessum þáttum, heldur miklu frekar hitt að fólkið hefur flúið þessi svæði vegna þess að það hefur ekki fundið að lífsgrundvöllur atvinnulífsins á svæðinu væri fyrir hendi. Þess vegna hygg ég að meginvandamál til að mynda skólastarfs á strjálbýlinu sé ekki skortur á skólahúsnæði eða búnaði. Mjög víða hefur verið mjög myndarlega að því verki staðið. Miklu erfiðara vandamál sem við er að glíma, vandamál sem fólkið í strjálbýlinu ræður ekki við er þessi sífelldi skortur á kennurum og sífelld umskipti á kennurum sem gerir það að verkum að alla festu skortir í skólastarfið.
Nú er það svo að hæstv. menntmrh., á hveitibrauðsdögum í sínu ráðuneyti, fór fram með miklum bumbuslætti og ákvað að setja niður nefnd til þess að vinna að vandamálum skólahalds í strjálbýli. Síðan hefur ekkert gerst. Mér er kunnugt um að nefndin hefur unnið vel. Þar hefur verið staðið vel að verki, en ekkert bólar á úrlausnum ráðuneytisins. Sami
ráðherra fór um landið og kynnti ýmsar úrbætur sem hann hygðist beita sér fyrir en sendi um leið og komið var suður harðort bréf í skólana og sagði þeim að skera niður alla þjónustu.
Ég er í rauninni ekkert hissa á því að umræðan um ferðamál skuli hafa þróast upp í almenna umræðu um byggðamál í ljósi þess að núverandi ríkisstjórn og ríkisstjórnin á undan sem líka var ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar, þessar tvær ríkisstjórnir fóru af stað með ákaflega mikil og digur loforð, loforð sem ég hygg að margir hafi treyst á. Færra hefur orðið um efndirnar. Og þess vegna er svo komið að fólk vítt og breitt um landið er farið að spyrja: Hvernig á nú að efna þessi stóru loforð? Það vottar ekki fyrir þeim efndum í því fjárlagafrv. sem hefur verið lagt fram. Óljósar yfirlýsingar sem menn geta gefið á hveitibrauðsdögum ríkisstjórna duga ekki lengur og góðar viljayfirlýsingar eins og koma fram í því frv. sem hér er til umræðu munu ekkiheldur gera neina stoð nema verkin fylgi eftir og því miður er fátt sem bendir til þess, eigi núverandi ríkisstjórn að hafa forustu um þær efndir, að það gerist mikið í því máli frekar en öðrum.