Ferðamál
Þriðjudaginn 17. október 1989


     Stefán Guðmundsson:
    Herra forseti. Það er nú svona þegar menn heyra ekki nema það sem þeir vilja heyra eins og hv. síðasti ræðumaður. Ég sagði það hér í mínu máli að grundvallaratriði byggðastefnu í þessu landi væri það að okkur tækist að treysta rekstrargrundvöll undirstöðuatvinnuveganna í landinu. Ef það tækist ekki þá þyrftum við ekkert að vera að ómaka okkur að ræða um byggðamál. Það er grundvallaratriðið. Ég trúi því hins vegar, hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson, að þessari ríkisstjórn takist undir forustu Steingríms Hermannssonar að koma grundvelli undir sjávarútveginn, og staðreyndin er þessi að það hefur snúist mjög til hins betri vegar frá því sem var þegar hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson var síðast stuðningsmaður ríkisstjórnar. Þessari ríkisstjórn hefur tekist að snúa verulega við þó við höfum ekki fullkomlega náð landi í þessum efnum. Það skal viðurkennt. En ég veit og ég treysti því að þessi ríkisstjórn muni vinna áfram að því að treysta grundvöll undirstöðuatvinnuveganna, auka hagvöxt í þessu landi. Þá fyrst skapast möguleikar til þess að hægt sé að bæta launakjör í landinu og auka ráðstöfunartekjur heimilanna. Þetta eru mín orð, Guðmundur H. Garðarsson.