Egill Jónsson:
Virðulegi forseti. Við ákvörðun á verðlagi sauðfjárafurða sem átti að fara fram 1. sept. var tekin ákvörðun um að fresta greiðslum til bænda með því að brjóta búvörulögin. Framleiðsluréttur til sauðfjárbænda, sem bundinn var með samningum og í reglugerð, var lækkaður með því að breyta reglugerð sem hafði gildi til ársins 1992. Fjárlög hafa verið lögð fram. Þau staðfesta að í nálega öllum þeim atriðum sem gert var samkomulag um á sl. vetri, t.d. varðandi greiðslur samkvæmt jarðræktarlögum og búfjárræktarlögum, hefur verið ákveðið af ríkisstjórninni að brjóta það samkomulag.
Það stendur einhvers staðar: Allt er þá þrennt er. En svo reynist þó ekki vera í þessu tilviki því að nú síðustu daga hafa þær fréttir borist að stórlega eigi að skerða frumgreiðslur afurðaverðs til sauðfjárbænda á þessu hausti og þessum vetri.
Í 1. tölul. 29. gr. búvörulaganna segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
,,Frumgreiðsla í síðasta lagi 15. okt. til þeirra sem slátra fyrir þann dag. Þeir, sem slátra síðar, hljóti greiðsluna í síðasta lagi tíu dögum eftir innleggsdag. Framleiðsluráð setur nánari reglur um greiðslurnar.``
Þær reglur sem í gildi hafa verið eru þess eðlis að sláturleyfishöfum beri að greiða 75% af haustgrundvallarverði samkvæmt þeim dagsetningum sem lögin ákveða. Nú er gerð sú breyting á að í stað 75% hlutdeildar á einungis að greiða 45%. Það er sannarlega von að spurt sé: Hvenær á að linna þeim aðförum að bændastéttinni og þá sérstaklega sauðfjárbændum sem var hafin í septembermánuði sl. og ég hef hér lýst og enn heldur áfram?
Ég vil beina því mjög ákveðið til landbrh. að hann taki nú til hendinni og sjái til þess að þessum áformum verði breytt þannig að sauðfjárbændur fái afurðaverð sem þeim ber greitt eins og verið hefur allt frá árinu 1985. Ég endurtek áskorun mína til hæstv. landbrh. og treysti því að hann sýni það nú einu sinni að það sé landbrh. við störf á Íslandi.