Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Góðir áheyrendur. Þau voru sérkennileg lokaorðin í stefnuræðu forsætisráðherrans. Hann sá ástæðu til að lýsa því sérstaklega yfir að hann og aðstandendur ríkisstjórnarinnar mundu ekki taka mark á gagnrýni og tillögum stjórnarandstöðunnar. Og síðan bætti hann við að stjórnarflokkarnir ætluðu að ná samstöðu með þjóðinni um framtíðarverkefni hennar.
    Þessi lokaorð eru sérkennileg í ljósi þess hvernig ríkisstjórnin var mynduð á sínum tíma. Og þau eru ekki síður athyglisverð þegar það er haft í huga að forsrh. og fjmrh. í bókstaflegri merkingu keyptu sér stuðning eins þingmanns til að ná lágmarksmeirihluta á Alþingi. Þegar þessi óprúttnu hrossakaup komust upp fyrir skömmu viðurkenndi forsrh. að þetta væri vandræðamál. Fjmrh. taldi hins vegar þessa ráðstöfun eðlilega og lýðræðislega. Sýnir það best hugmyndir fjmrh. um leikreglur lýðræðisins.
    Með þessa forsögu í huga hlýtur það að vera umhugsunaratriði fyrir okkur öll þegar forsrh. þjóðarinnar sér sérstaka ástæðu til að segjast ekki taka mark á gagnrýni og ábendingum stjórnarandstöðunnar.
    Forsrh. sagðist í stefnuræðunni leggja áherslu á samstöðu með þjóðinni. Um hvaða þjóð er hann að tala? Ef hann er að tala um íslensku þjóðina ætti hann að vita betur en flestir aðrir að þorri þjóðarinnar vill að stjórnin fari frá sem allra fyrst. Forsrh. veit mætavel að ríkisstjórnin hefur ekki tiltrú fólksins í landinu og hefur glatað því trausti sem er nauðsynlegt til að takast á við þau viðfangsefni sem blasa hvarvetna við.
    Ef forsrh. meinar eitthvað með orðum sínum á honum því að vera ljóst að það er fyrsta, stærsta og mikilvægasta skrefið að ríkisstjórnin segi af sér og að efnt verði til kosninga sem allra fyrst. Ríkisstjórn, sem situr í óþökk þorra þjóðarinnar, getur ekki náð samstöðu með henni um þau mikilvægu verkefni sem fram undan eru. Það er því augljóst að það er ekki samstöðuvilji við þjóðina, sem knýr stjórnarflokkana til áframhaldandi setu í stjórn landsins. Þvert á móti er það ótti þeirra við þjóðina, óttinn við kosningar, sem heldur stjórninni saman.
    Á síðasta kjörtímabili, þegar Steingrímur Hermannsson var í stjórn með Sjálfstfl., stóð hann að ýmsum frjálslyndum umbótum í atvinnu- og efnahagsmálum. Nú, þegar hann er í stjórn með Alþb., hefur hann snúið við blaðinu. Nú eru handaflið og miðstýringin aðalstjórntækin. Til að leggja áherslu á þessi sjónarmið sagði forsrh. fyrir ári síðan að vestrænar leikaðferðir ættu ekki við í efnahagsmálum hér á landi.
    Þetta er auðvitað málflutningur að skapi núverandi fjmrh. og Alþb. Í síðustu kosningum höfnuðu kjósendur Alþb. Þáverandi formaður flokksins, Svavar Gestsson, viðurkenndi eftir kosningar að kjósendur ætluðust ekki til þess að Alþb. tæki þátt í stjórn landsins. Nýi formaðurinn, Ólafur Ragnar Grímsson, smeygði sér hins vegar inn um bakdyrnar og situr í

aftursætinu hjá Steingrími og ræður því hvert leiðin liggur í stjórnarsamstarfinu. Hann veit nefnilega, eins og margir aðrir, að Steingrími Hermannssyni er nákvæmlega sama hvert ferðinni er heitið, svo fremi hann fær sjálfur að sitja við stýrið.
    Og í kvöld erum við að ræða stefnuræðu forsrh. Það sem einkum er eftirtektarvert við stefnuræðuna er að í henni er engin stefna boðuð. Í henni er ekkert nýtt. Og það sem er athyglisverðast er það sem ekki er sagt.
    Minnist þið þess að forsrh. hafi gert skattahækkunum ríkisstjórnarinnar skil í ræðunni? Sagðist hann ætla að afnema ósanngjarna eignarskattinn sem leggst fyrst og fremst á ekkjur og ekkla? Tókuð þið eftir að ráðherrann segði frá fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar um að leggja sérstaka skatta á ráðdeildarfólkið eins og fjmrh. hefur boðað?
    Nei. Það eina sem fram kom í máli ráðherrans var að tekjuskattskerfið yrði tekið til athugunar á næsta ári.
    Nefndi hann hve oft ríkisstjórnin hefur fellt gengið á þessu ári? Nei. Hann kaus að þegja yfir fimm gengisfellingum sem samt hafa ekki dugað til að útflutningsgreinarnar séu reknar án halla.
    Gerði ráðherrann grein fyrir skuldaaukningu þjóðarinnar erlendis á þessu ári?
    Nei. Hann sá ekki ástæðu til að geta þess að á hverjum einasta degi allt þetta ár aukast skuldir þjóðarbúsins erlendis um 30--40 milljónir króna vegna viðskiptahallans.
    Heyrðuð þið forsrh. taka af skarið í stóriðjumálum? Lýsti hann yfir stuðningi við starf iðnrh. sem fylgt hefur fram stefnu forvera sinna gegn afturhaldssjónarmiðum Hjörleifs Guttormssonar?
    Nei. Hann sagði aðeins að þann kost ætti að skoða, ef viðunandi samningar nást.
    Fannst ykkur ráðherrann vekja vonir og bjartsýni um framtíðina í ræðu sinni, þegar hann spáði auknu atvinnuleysi á næsta ári?
    Það getur varla verið. Það breytir ekki miklu, þótt hann sjái það ljós í myrkrinu að í framtíðinni muni þeim erlendu ferðamönnum fjölga sem tilbúnir eru að fara í útreiðartúr um hálendi landsins og bjóða veðri og vindum
birginn, eins og hann orðaði það í sinni ræðu.
    Það þarf ekki að fara fleiri orðum um stefnuræðu forsrh. Hún ber þess merki að stjórnin ætlar að sitja í trássi við þjóðarhag hvað sem tautar og raular. Sú þráseta verður þjóðinni dýr.
    Fyrr í þessum mánuði hélt Sjálfstfl. landsfund. Skilaboð landsfundarins eru skýr. Sjálfstfl. ætlar sér að draga úr ríkisafskiptum og auka frjálsræðið í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar. Sjálfstæðismenn hafa nú sem fyrr skilning á því að einstaklings- og athafnafrelsið, og sú ábyrgð á eigin gjörðum sem því verður að fylgja, sé í senn tæki og takmark. Frjálsir viðskiptahættir bæta lífskjörin og auka velferðina. Og frelsi á sem flestum sviðum færir okkur meiri farsæld og lífshamingju.
    Góðir áheyrendur. Ríkisstjórnin nýtur ekki þess

trausts sem þarf til að sameina þjóðina. Aðgerðir stjórnarinnar hafa leitt til þess að hér á landi ríkir svartsýni og uppgjafarandi svífur yfir vötnum atvinnulífsins. Ríkisstjórnin situr í óþökk mikils meiri hluta þjóðarinnar. Mikilvægasta verkefnið sem við stöndum frammi fyrir og forsenda þess að hægt sé að takast á við viðfangsefni framtíðarinnar er því að losna við þessa óvinsælu ríkisstjórn. Þá fyrst er von til þess að efla megi með þjóðinni þá bjartsýni og þann framtaksþrótt sem með henni býr.
    Við sjálfstæðismenn mætum nú til leiks með endurnýjaða stefnu og meiri styrk en áður. Á grundvelli þeirrar frjálsræðisstefnu erum við tilbúnir til að hefja það endurreisnarstarf sem fram undan er. Á miklu veltur að það geti gerst sem fyrst. --- Góðar stundir.