Karl Steinar Guðnason:
Forseti. Góðir Íslendingar. Ég hef undanfarna viku verið að velta því fyrir mér hvernig Jóni heitnum Sigurðssyni, sem í daglegu tali var kallaður forseti, yrði við ef hann fengi að koma til okkar í svo sem einn dag. Hvernig kæmi Ísland, íslenska þjóðin, honum fyrir sjónir?
Umræðan í þjóðfélaginu hefur að undanförnu verið svo neikvæð, á svo lágu plani, að leitun er á öðru eins. Helstu fjölmiðlar þjóðarinnar ráðast á Alþingi og að störfum þess af þvílíkri fyrirlitningu að ótrúlegt má teljast. Það er gefið í skyn að þingmenn, hvað þá heldur ráðherrar, séu verstu menn, illvirkjar og dugleysingjar sem taki sér það helst verkefni fyrir hendur að skattpína þegnana, kvelja og skelfa. Ekki vegna þess að verja eigi skattpeningunum til þarflegra hluta, heldur eingöngu af ótugtarskap og illum hvötum.
Ekki má kenna fjölmiðlunum einum um þótt telja megi að hörð samkeppni þeirra hafi leitt þá út í þessa neikvæðni, heldur heyrast einnig þessar umræður hér á hinu háa Alþingi. Svartnætti bölsýninnar hefur heltekið umræðuna í þjóðfélaginu. Það er sama hvað er gert, því er fundið allt til foráttu.
Samkeppni um fréttir er svo hamslaus að allt er gert til að draga athyglina að sér og sínum fjölmiðli. Ég er hræddur um að Jóni heitnum Sigurðssyni þætti undarleg sú árátta að feykja öllum góðum málum burt, efnahagsmálum, velferðarmálum, spurningunni um afkomu heimilanna, þegar fjölmiðlar eða hvatvísir einstaklingar komast á snoðir um ómerkilegt slúður eða sögusagnir. Hæst ber leikinn þegar hugsanlegt er að hengja einhvern ráðherranna. Það er sama hversu ómerkilegt það er, leikurinn, þorstinn eftir hefnd, eða illu umtali er svo gegndarlaus að öllu skal fórnað og þá mannorðinu fyrst. Við erum öll breysk. Okkur verður öllum eitthvað á einhvern tíma. Það er sjálfsagt að gagnrýna misgjörðir og við eigum að læra af mistökunum. En ég hygg að þeir sem börðust hvað harðast fyrir sjálfstæði íslensku þjóðarinnar hafi hugsað sér að á seinni hluta 20. aldar snerist umræðan um málefni og hugsjónir fyrir betra mannlífi fremur en að nærast á illkvittni á lágu plani.
Verst hefur atlagan verið að utanrrh. Jóni Baldvini Hannibalssyni. Hann er reyndar enginn engill; það er líka lítið um engla á meðal okkar, og ekki voru þeir fleiri í síðustu ríkisstjórn.
Morgunblaðið hefur tamið sér heiðarlegan fréttaflutning þótt það fari oft út á ystu nöf í pólitíkinni. Það vakti sérstaka athygli mína að á föstudaginn er greint frá mikilli ánægju ráðherra á Norðurlöndum með undirbúning af Íslands hálfu að viðræðum EFTA og Efnahagsbandalagsins. Sænski forsætisráðherrann tók þar dýpst í árinni en Svíum voru eignaðar efasemdir fyrr.
Utanrrh. sem erlendis hefur vakið sérstaka athygli fyrir skeleggan málflutning til sóknar og varnar íslenskum hagsmunum hefur stýrt þessum viðræðum. Öðrum fjölmiðlum hefur ekki þótt ástæða til að
upplýsa þjóðina um þessa hlið málsins. Því jákvæða er yfirleitt sleppt.
Ókunnugum kæmi spánskt fyrir sjónir sú heimsendapólitík sem stærsti stjórnmálaflokkur þjóðarinnar heldur uppi hér á Alþingi. Hér fullyrða þeir að allt sé kolsvart. Þjóðin og þjóðarbúið að sökkva, öll fyrirtæki á hausnum og þrátt fyrir að við Íslendingar greiðum lægri skatta en flestar Evrópuþjóðir er hinu gagnstæða haldið fram. Þessi umræða er að mínu mati fyrir neðan virðingu þjóðarinnar, þjóðar sem barist hefur frá fátækt og allsleysi, þjóðarheildar sem náð hefur því marki að hafa einhver bestu lífskjör sem getur í þjóðafjölskyldunni.
Þegar spurt er um úrræði stærsta stjórnmálaflokksins í efnahagsmálum berst alltaf eitt svar: Við þurfum stóra gengisfellingu.
Það er rétt að þrátt fyrir allmargar gengisfellingar hefur ríkisstjórnin verið nísk í þeim efnum. Stórfelldar gengisfellingar hafa líka gefist illa. Þeim hefur fylgt kollsteypa verðlagshækkana og verðbólgu, þeir ríku hafa orðið ríkari og þeir fátæku fátækari. Og fyrirtækin, sem þessi gamaldags efnahagsaðgerð á væntanlega að bjarga, hafa eftir að kollsteypan hefur riðið yfir verið verr stödd en þau voru þegar þeim átti að bjarga.
Þegar spurt er um úrræði í sjávarútvegsmálum eða landbúnaðarmálum kemur hins vegar ekkert svar. Þar eru skoðanir margar, sín í hvora áttina, svo að þögnin, tómleikinn, situr eftir. Þetta úrræðaleysi, þessi djöfuldómur svartsýninnar, hefur átt sinn þátt í því að umræðan hefur færst á fyrrgreint plan.
Ég vék að því hér áðan að við Íslendingar erum með einhverjar hæstu þjóðartekjur í heimi. En það er líka rétt að undanfarin tvö ár hafa þjóðartekjur minnkað og er allt útlit fyrir að enn minnki þær á næsta ári. Slíkur samdráttur hefur aldrei orðið fyrr. Engin ríkisstjórn hefði ráðið við það, og þegar Sjálfstfl. hljóp frá ábyrgð fyrir aðeins þrettán mánuðum síðan átti hann ekkert úrræði annað en gengisfellinguna sína.
Þegar erfiðleikar steðja að reynir á menn og stjórnmálaflokka. Þá dugir illa að sökkva sér niður í drunga svartnættisins. Þá þurfa menn að ganga til verka af áræðni og bjartsýni. Það er staðreynd að ótrúlega margt hefur færst fram á
veg nú síðustu árin og svo verður áfram ef að líkum lætur.
Tökum nokkur dæmi: Á síðustu tveimur árum hafa verið byggðar 1237 félagslegar íbúðir en fjögur ár þar á undan voru þær aðeins 1100. Nú hefur um 500 félagslegum kaupleiguíbúðum verið úthlutað og verður stórfelld aukning á næsta ári.
Fyrir nokkrum árum var ekkert sambýli fyrir fatlaða til hér á landi. Nú eru þau 40 og áfram verður haldið. Fyrir nokkrum árum voru verndaðir vinnustaðir fatlaðra vart til. Nú eru þeir 16 og áfram verður haldið.
Það er verið að gjörbylta húsnæðislánakerfinu. Húsbréfakerfið fer af stað í næsta mánuði. Það mun
gjörbreyta til batnaðar, minnka biðraðir, létta erfiðleika húsnæðislausra.
Í fyrra spáði Verslunarráðið og stjórnarandstaðan því að atvinnuleysi yrði gífurlegt, 5.000--10.000 manns. Það hefur tekist að koma í veg fyrir þá hrollvekju. Það er atvinnuleysi á suðvesturhorninu en það vantar fólk víða annars staðar. Að mínu mati er hver einn atvinnulaus einum of mikið. En gleymum því ekki að betur hefur til tekist en spáð var.
Nú er unnið að því að tryggja hverjum vinnufúsum manni atvinnu. Atvinnuleysi er óþolandi böl sem verður að uppræta. Tekist hefur með sérstökum aðgerðum ríkisstjórnarinnar að halda atvinnulífinu gangandi og víða sjást merki uppbyggingar. Íslenska þjóðin stendur styrkum fótum þrátt fyrir allt. Framtíðin verður björt náist breið samstaða um þá varnar- og sóknarbaráttu sem fram undan er. Næstu verkefni til að styrkja atvinnustigið eru að virkja fallvötnin og selja orkuna til nýrrar stóriðju. Í þeim efnum hefur síðustu 15 árin ríkt stöðnun og postular afturhaldsins hafa komið í veg fyrir þróttmikla sókn á sviði orku- og stóriðjumála. Núv. iðnrh. er að takast að leysa hnút stöðnunarinnar. Þar munu þúsundir nýrra atvinnutækifæra verða til. Þá munu þjóðartekjur vaxa á ný.
Á þingi Verkamannasambandsins nú um daginn var samþykkt að krefjast nýrra leiða. Þar var bent á nauðsyn iðnaðar- og orkuuppbyggingar og nýrrar stefnu í sjávarútvegsmálum hvar fordæmd var sú hugsjón útvegsmanna að byggja upp fiskiðnað og fiskvinnslu í Bretlandi, þess krafist að atvinnan yrði færð inn í landið, Íslendingar hefðu sama rétt til að kaupa fiskinn og útlendingar.
Á þingi Verkamannasambandsins var ekki tónn myrkursins, heldur tónn bjartsýni á möguleika okkar þjóðar. Þar var líka bent á nauðsyn þess að jafna kjörin, það væri brýnasta verkefnið að auka kaupmátt þeira verst settu, jafnvel á kostnað þeirra betur settu. Það var skoðun fólksins á þinginu að nógir peningar væru til, þeir væru bara ekki á réttum stöðum.
Þegar vandamálin eru mikil er þjóðinni nauðsynlegt að njóta krafta Alþfl. Það sýndi sig best þegar efnahagsáfallið stóra varð á viðreisnartímabilinu. Nú að sjö mánuðum liðnum verða sveitarstjórnarkosningar. Alþfl. náði í síðustu kosningum að verða næststærsti flokkur þjóðarinnar hvað varðar heildarfylgi í sveitarstjórnum. Hvarvetna þar sem Alþfl. er í meirihlutaaðstöðu eða með meiri hluta hefur vel til tekist. Kratabæirnir geta státað af glæstum framförum, byltingu á sviði framkvæmda og styrkri fjármálastjórn. Nú þarf að hefja baráttuna fyrir enn stærri sigrum, fylkja liði til sigurs jafnaðarstefnunnar. Góður árangur er gott veganesti.
Ég minntist á Jón Sigurðsson í upphafi ræðu minnar. Ég er sannfærður um að honum hefðu ofboðið þær ofsóknir sem einstaklingar eru beittir í stjórnmálunum. Ég er sannfærður um að umgengni fjölmiðla og óprúttinna stjórnmálamanna gagnvart Alþingi og stjórnkerfinu öllu hefði honum þótt af því illa og fyrir neðan virðingu þjóðarinnar. Minnumst
þess að slíkur verknaður brýtur niður lýðræðishefð okkar Íslendinga, færir okkur nær hugsunarhætti miðaldanna þar sem tilgangurinn helgaði meðalið.
Góðir Íslendingar. Við búum í landi tækifæranna þar sem framtíðin blasir við okkur þrátt fyrir augnablikserfiðleika. Tökum höndum saman við að verja efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar og trú á framtíðina. Berjumst gegn fulltrúum svartnættisins og niðurrifs. Látum málefni en ekki meinfýsni ráða ferðinni.