Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegur forseti. Þeir komu hingað tveir, nýkomnir af landsfundi Sjálfstfl., formaðurinn núverandi og varaformaðurinn fráfarandi sem fórnað var af landsfundinum öllum, til að dylja mistökin hjá formanninum og óánægjuna með flokksstjórnina. Þeir komu hingað tveir af landsfundinum saman til að sýna þjóðinni að þrátt fyrir allt stæðu þeir nú hér sem einn maður. En halda þeir virkilega að Íslendingar séu búnir að gleyma fimm ára ferli Sjálfstfl.? Sjálfstfl. fékk fimm ár til að sýna sín ráð. Hann fékk fimm ár til að sýna Íslendingum í verki hvað stefna Sjálfstfl. þýddi. Árin 1983--1988. Það er ekki liðinn langur tími síðan og þessi fimm ára ferill Sjálfstfl., við skulum draga hann hér upp fáeinum dráttum.
    Hvað blasti hér við fyrir ári síðan? Jú, eftir fimm ára feril voru atvinnuvegir Íslendinga að stöðvast. Allir forystumenn atvinnulífsins í landinu voru sammála um það að stöðvun atvinnulífsins blasti við. Kunnáttumenn á öllum sviðum voru sammála um það að 5.000--15.000 manna atvinnuleysi yrði orðinn veruleiki eftir fáeina mánuði. Eftir fimm ára valdaferil Sjálfstfl. var dansaður trylltur vaxtadans á peningamarkaðinum þar sem vextirnir á gráa markaðinum, raunvextirnir, sem voru ekki 6 og 7, heldur 12, 16 og 18%, möluðu skattfrjálsan gróða í hendur stóreignamanna í okkar landi. Eftir fimm ára valdaferil Sjálfstfl. höfðu erlendar skuldir Íslendinga á góðæristímanum sjálfum vaxið meira en dæmi voru til um áður. Og hvernig var fimm ára valdaferill Sjálfstfl. í fjmrn.? Þegar Ragnar Arnalds gekk þar út á fyrstu mánuðum ársins 1983 hafði ríkt jafnvægi í ríkisfjármálum Íslendinga um árabil en þegar Sjálfstfl. kom þangað inn fóru málin að fara úr skorðum. Ár eftir ár eftir ár á þessum fimm ára ferli fóru ríkisútgjöldin upp og upp og upp. Hallinn varð svo mikill í fjármálaráðherratíð Þorsteins Pálssonar að eitt víðlesnasta dagblað landsins hefur reiknað hann á núvirði sem 12 milljarða kr. halla. En juku þeir tekjurnar? Nei. Þeir meira að segja sögðu við þjóðina: Við ætlum að lækka skattana. En þeir juku ríkisútgjöldin þannig að bilið ár eftir ár á þessum fimm ára ferli var svo mikið að nú blasir við 10--15 milljarða kr. gat sem þarf að brúa á næstu árum eftir þennan valdaferil Sjálfstfl. Og svo koma þessir menn hér og halda að þeir geti boðið íslenskri þjóð öruggari og betri fjármálastjórn. Og hver var staðan í málefnum landsbyggðarinnar eftir fimm ára valdaferil Sjálfstfl.? Hrun og flótti og á höfuðborgarsvæðinu sjálfu þensluæði á öllum sviðum. Þetta er myndin eftir fimm ára reynslu Íslendinga af stjórn Sjálfstfl., stjórn sem byggðist á kenningum Hannesar Hólmsteins, Hayeks og Friedmans.
    Og gerðist eitthvað nýtt á landsfundi Sjálfstfl. annað en það að Friðrik Sophusson var látinn segja af sér og Davíð Oddsson tók við? Nei, auðvitað gerðist ekkert annað því að sömu gömlu stefnumálin voru endurnýjuð. Flokkurinn kom aftur til þjóðarinnar í trausti þess að þjóðin hefði gleymt og bauð upp á

sömu stefnuna. Það eru 13 mánuðir síðan Alþb. kom að þessu stórslysi sem Sjálfstfl. hafði skilið eftir á þjóðvegi Íslendinga. Sárin voru vissulega mun dýpri en nokkurn mann hafði grunað. Blæðingarnar hættulegri og gröfturinn út um allt. Á 13 mánuðum hefur tekist við mjög erfið skilyrði, minnkandi afla og lækkandi verð á erlendum mörkuðum að snúa þessari þróun við. Sárið hefur verið saumað saman. Blæðingarnar hafa verið stöðvaðar. Gröfturinn hefur verið hreinsaður út og nú blasa við, aðeins rétt rúmu ári eftir að Alþb. kom að þessu verki, staðreyndirnar um trausta efnahagsstjórn. En það var athyglisvert að núverandi formaður Sjálfstfl. og varaformaðurinn sem fórnað var, þeir treystu sér ekki til að ræða þessar staðreyndir hér. En hverjar eru þær? Við skulum fara yfir tíu höfuðþætti í efnahagsstjórninni í dag sem allar bera það einkenni að vera á hverjum tíma taldar traustasti vitnisburður um góða efnahagsstjórn, efnahagsstjórn sem er á réttri leið.
    Í fyrsta lagi: Staða atvinnugreinanna í útflutningnum hefur styrkst svo mjög að nú heyrum við ekki lengur raddirnar um að þær séu að stöðvast. Þvert á móti eru forystumenn atvinnulífsins sammála um það að staðan í dag sé gjörbreytt frá því sem hún var áður.
    Í öðru lagi: Hinu stórfellda atvinnuleysi hefur verið forðað. Það hefur dregið þannig úr þenslunni að atvinnan í útflutningsgreinunum er núna traust og það er fyrst og fremst í eyðslugreinunum sem umskipti eru að verða.
    Í þriðja lagi: Vöruskiptahallinn. Mælikvarðinn á óstjórnina sem var geigvænlegur á síðustu valdaárum Sjálfstfl. jafnvel í góðærinu sjálfu. Hverjar eru staðreyndirnar í dag? Vöruskiptajöfnuður Íslendinga verður á þessu ári jákvæður, jákvæður um fimm milljarða króna. Við flytjum meira út en við flytjum inn. Þetta hefur ekki gerst síðan 1986. Og viðskiptahallinn í heild, hann hefur verið að minnka þrátt fyrir erfiðar aðstæður í þjóðarbúskap okkar Íslendinga.
    Fimmta atriðið endurspeglast svo í gjörbreyttri stöðu gengismálanna. Hér hefur tekist að breyta raungenginu svo, útflutningsgreinunum í hag, að það er núna orðið hagstæðara útflutningsgreinunum heldur en meðaltal gengismálanna
frá árunum 1979 til 1989. Slík raungengisbreyting hefur aldrei áður verið gerð án efnahagslegrar kollsteypu og án verðbólguöldu. Það er hið stóra í árangri þessarar ríkisstjórnar að hafa breytt þannig gengisþróuninni útflutningsgreinunum í hag án þess að efnahagslífið hafi farið úr skorðum.
    Í sjötta lagi hefur verðbólgan verið hamin. Það hefur aldrei fyrr gerst í efnahagssögu okkar Íslendinga að á árum þar sem landsframleiðslan minnkar, þar sem samdráttur á sér stað, hafi tekist að halda verðbólgunni í skefjum og það sem meira er: Draga úr henni.
    Ætíð áður á samdráttartímum, líka þegar Sjálfstfl. hefur verið í forsæti fyrir ríkisstjórnum og borið ábyrgð á fjármálunum, hefur verðbólgan rokið upp.

    Í sjöunda lagi er jafnvægið í peningamálunum. Það jafnvægi endurspeglast í því að lausafjárstaða bankanna er nú jákvæð um nær 10 milljarða króna í lok síðasta mánaðar og það hefur tekist þrátt fyrir hrakspár Þorsteins Pálssonar og Friðriks Sophussonar hér á Alþingi fyrr á þessu ári að fjármagna ríkissjóð með sölu spariskírteina innan lands og sölu ríkisvíxla hér innan lands þannig að í stað þess að safna erlendum skuldum erum við farin að spara, þjóðin sjálf, til þess að standa undir okkar útgjöldum.
    Í áttunda lagi er þenslan úr sögunni. Þenslan sem var orsök óstjórnarinnar hér áður fyrr og gerði ógerlegt að ná raunverulegum tökum á efnahagsstjórninni.
    Í níunda lagi eru vaxtamálin. Vaxtadansinn á gráa markaðinum hefur verið stöðvaður. Þær eru nánast horfnar úr sjónvarpinu glæsiauglýsingarnar sem áður fyrr á blómatíma Sjálfstfl. komu kvöld eftir kvöld með gylliboðin frá gráa markaðinum, bjóðandi 10, 11, 12, 16 og 18% raunvexti. Þær eru farnar heilsíðuauglýsingarnar úr blöðunum sem dag eftir dag buðu þessi gylliboð á gráa markaðinum og hvað er komið í staðinn? Jú, í staðinn er kominn sparnaður ríkissjóðs Íslendinga sjálfra með raunverulegum árangri þar sem u.þ.b. sex milljarðar eru komnir hér inn í sparnað landsmanna sjálfra á lægri vöxtum en dæmi eru til um áður. Í stað þess að grái markaðurinn fylli fjölmiðlana er það sameiginlegur sjóður okkar Íslendinga sem nú er orðinn söfnunartæki landsmanna sjálfra. Í þessu birtist vel árangurinn og þátttaka fólksins í þessum breytingum því þetta er frjáls þátttaka fólksins í þessum sparnaði. Það er frjáls vilji fjöldans sem hefur komið til liðs við ríkisstjórnina með þessum hætti og vikið til hliðar hinum erlendu lántökum Sjálfstfl. eða tryllta dansinum á gráa markaðinum og byggir í staðinn upp sparnað okkar Íslendinga sjálfra í formi spariskírteina ríkissjóðs.
    Og að lokum þá er auðvitað sá mikli árangur sem felst í því að halli ríkissjóðs fer mjög minnkandi.
    Þeir hafa reynt, þessir herramenn, og Þorsteinn Pálsson situr nú í sæti sínu og hlær, maðurinn með 12 milljarða kr. hallann á bakinu. En hverjar eru staðreyndirnar, Þorsteinn Pálsson? Þorir formaður Sjálfstfl. ekki að hlýða á staðreyndirnar heldur hlær bara eins og lítill strákur úti í bæ. Staðreyndirnar eru nefnilega þær að þrátt fyrir erfiðleikana, þrátt fyrir samdráttinn, þá verður halli ríkissjóðs á þessu ári helmingi minni heldur en hann var á síðasta ári, 1,5% af landsframleiðslu í staðinn fyrir 2,8% í fyrra. Og hver var hann í góðærinu hjá þér, í góðærinu hjá þér þegar allt var glæst í ytri skilyrðum og hefði verið hægt að reka ríkissjóð með stórfelldum afgangi ef hér hefði ekki ríkt þessi ga-ga efnahagsstjórn frjálshyggjunnar og Sjálfstfl.? Í góðærinu sjálfu rakst þú ríkissjóð með 1,3% halla, 1,3% halla. Eða í ár verður ríkissjóðshallinn álíka og hann var í góðærinu hjá Sjálfstfl., þegar ytri skilyrðin voru þannig að það hefði verið hægt að dansa leikandi með stórfelldan afgang á ríkissjóði.
    Þetta er munurinn í nokkrum helstu

höfuðeinkennum efnahagsstjórnarinnar sem sýnir það að eftir að núverandi flokkar tóku saman höndum í ríkisstjórn og Borgfl. gekk til liðs við okkur síðan, þá hefur verið lagður hér grundvöllurinn að heilbrigðu hagkerfi. Það hagkerfi ber öll höfuðeinkenni heilbrigðs vestræns hagkerfis og það er einmitt merkilegt að það skuli vera þátttaka Alþb. í ríkisstjórninni sem snýr öfugþróun síðustu ára yfir á þennan heilbrigða grundvöll, grundvöll sem einkenndist af því að við getum í upphafi nýs árs lokað millifærslukerfinu, lagt þá sjóði til hliðar, komið þeim fyrir inni í bankakerfinu og látið þetta jafnvægisástand, sem okkur hefur nú tekist að skapa stig af stigi, taka við. Jafnvægisástand þar sem raungengið er orðið eðlilegt, vextirnir komnir niður, vöruskiptajöfnuðurinn orðinn hagstæður, viðskiptahallinn að hverfa og ríkissjóður rekinn fyrir innlent fé landsmanna sjálfra. Þetta eru hin stóru þáttaskil. Þetta er munurinn á því stórslysi sem Sjálfstfl. skildi eftir á þjóðvegi Íslendinga fyrir ári síðan og því sem blasir við í dag. Og það eru nánast kraftaverk hjá þessari ríkisstjórn við þau erfiðu ytri skilyrði sem hafa ekki hent íslenska þjóð í 40 ár, að þrjú samdráttarár komi í afla og landsframleiðslu, að geta náð þessum efnahagslega árangri og geta einnig til viðbótar sýnt fram á í verki stórfelldar jöfnunaraðgerðir á fjölmörgum sviðum, jöfnunaraðgerðir sem birtast í fyrsta lagi í því að hagur landsbyggðarinnar í dag gagnvart höfuðborgarsvæðinu er með allt öðrum hætti, birtist í öðru lagi í því að þegar virðisaukaskatturinn
verður tekinn upp verður hér lækkuð skattlagning á matvælum stórfelldlega en Sjálfstfl. sjálfur ætlaði sér hins vegar að hafa fulla skattlagningu á matvælum þegar hann samþykkti frv. um virðisaukaskatt hér í forsætisráðherratíð Þorsteins Pálssonar. Í þriðja lagi: Stórfelldar umbætur í félagslegum húsnæðismálum, umbætur í þágu láglaunafólks þar sem kaupleiguíbúðir, búsetaíbúðir og verkamannabústaðir hafa forgang. Lækkun verðs á matvælum um næstu áramót þegar virðisaukaskatturinn verður tekinn upp og úrbæturnar í húsnæðismálum eru auðvitað tvíþættar stórfelldar jöfnunaraðgerðir í þágu láglaunafólks í þessu landi. En það er ekki búið. Það hefur einnig verið ákveðið að afnema þau forréttindi fjármagnsteknanna og gróðaaflanna á peningamarkaðinum sem Sjálfstfl. vill viðhalda og láta hinn stórfellda fjármagnsgróða sitja við sama borð eins og launavinnuna. Og kaupmátturinn. Kaupmáttur láglaunafólksins hefur ekki bara haldist, hann hefur vaxið, enda er það athyglisvert að forystumenn Sjálfstfl. hér í umræðunum treystu sér ekki til að nefna einu orði að ekki hefði verið staðið við fyrirheitin úr kjarasamningunum varðandi kaupmátt láglaunafólks og verðlag á landbúnaðarvörum vegna þess að staðreyndin er sú að á sama tíma og kaup u.þ.b. fjórðungs eða þriðjungs félagsmanna BSRB hefur hækkað um 14--18%, þá hefur verðlagið á landbúnaðarvörum hækkað um 13%, á öllum innlendum matvælum um 10%. Kaupmáttaraukningin á erfiðleikatímum hefur því verið með þeim hætti að

hinir sem lægst hafa launin hafa ekki bara haldið sínum hlut heldur hefur hann styrkst. Það sýnir hinn raunverulega mun á Sjálfstfl. annars vegar og okkur hins vegar að þegar hart er í ári þá viljum við ekki bara hlífa þeim sem verst hafa kjörin, við viljum styrkja stöðu þeirra.
    Þessari ríkisstjórn hefur þess vegna á aðeins 13 mánuðum tekist að snúa þessari þróun við og það er auðvitað skýringin á því hvers vegna Sjálfstfl. hefur ekki, þótt tvær vikur séu liðnar af þingi, þorað að hefja hér umræður um efnahagsmál, heldur viljað tala um eitthvað allt annað. Vegna þess að Sjálfstfl. forðast eins og heitan eldinn að bera saman annars vegar þennan fimm ára feril sinn frá árunum 1983--1987 og hinn raunverulega árangur sem þessi ríkisstjórn er nú þegar að ná á öllum þessum sviðum. Árangur sem mun gera okkur kleift með nýju ári að leggja hér nýjan grundvöll að varanlegri umsköpun í íslensku efnahagslífi. Nýjan grundvöll í sjávarútvegsmálum. Nýjan grundvöll í landbúnaðarmálum. Nýjan grundvöll í byggðamálum. Nýjan grundvöll í ríkisfjármálum. Nýjan grundvöll í velferðarkerfinu og tekjukerfi ríkisins. Nýjan grundvöll í samskiptum Íslands við umheiminn þar sem raunverulegt sjálfstæði þjóðarinnar og traust og náin samskipti við nágrannaþjóðir okkar verða hornsteinninn í þeirri utanríkisstefnu sem Íslendingar munu reka í framtíðinni. Verkefnin eru því ærin. Árangurinn sem þessir 13 mánuðir sýna er slíkur að það er í raun og veru mjög einfalt að bera saman feril Sjálfstfl. annars vegar og verk þessarar ríkisstjórnar hins vegar. Þess vegna var það skiljanlegt að Sjálfstfl. léti varaformanninn víkja, vegna þess að varaformaðurinn hafði drýgt þá dauðasynd að segja satt. Hann hafði á þingi ungra sjálfstæðismanna sagt þann sannleik að það væru ekki verðleikar Sjálfstfl. sem gerðu það að verkum að hann hefði tímabundið fylgi í skoðanakönnun, það væri ekki stefna Sjálfstfl. sem væri grundvöllurinn að þeim breytingum, þvert á móti. Varaformaðurinn hafði sagt satt. Hann hafði eins og barnið í ævintýrinu bent á keisarann í formannsstólnum og sagt þjóðinni frá því, hann er ber, hann er ekki í neinum fötum. Hann er ber. Og íslenska þjóðin ætlar ekki að láta þessa menn taka að nýju við stjórn landsins. Það verður ekki, hvorki í ár eða næsta ár, hvorki að loknu þessu kjörtímabili né hinu næsta. --- Góða nótt.