Hreggviður Jónsson:
    Hæstv. forseti. Góðir Íslendingar. Þingmenn Frjálslynda hægri flokksins hefja galvaskir störf á þessum vetri með það í huga að þeir eru starfsmenn fólksins, kjósenda. Myrkvun ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar grúfir nú yfir þjóðinni. Róm er brunnin. Trú fólksins á Alþingi Íslendinga er fokin út í veður og vind. Ríkisstjórnin er án trausts og án flokka með fylgi. Ráðherrarnir hafast það að sem þeir vilja en þjóðin vill ekki. Ráðherrarnir sitja límdir við stólana og þora ekki að hreyfa sig því þá dytti botninn úr ráðherrabrókunum og ríkisstjórn sem hnappar sig saman af ótta við kosningar.
    Það vita allir að í þjóðfélagi þar sem farið er með áfengi á æðstu stöðum eins og gosdrykki er eitthvað meira en lítið að. Það vita allir að í þjóðfélagi þar sem framkvæmdarvaldið fer með milljarða króna eins og eitt hundrað króna seðla er eitthvað meira en lítið að. Það vita það allir að í þjóðfélagi þar sem æðsta stjórn ríkisins fer með ákvæði laga og stjórnarskrár landsins eins og um danslagakeppni væri að ræða er eitthvað meira en lítið að. Og hæstv. forsrh. segir um þetta í heilopnuviðtali í Tímanum á laugardaginn, með leyfi forseta: ,,Tek ekki þátt í þessum leik.`` Tek ekki þátt í þessum leik. Forsrh. telur sig yfir það hafinn að ræða um grundvallarspurningu í huga almennings, hvernig við stjórnmálamennirnir förum með það vald og fjármuni sem okkur er trúað fyrir.
    Í öllum löndum Vestur-Evrópu þætti framganga í mörgum þeim málum sem mest hefur verið fjallað um að undanförnu varða brottvísun úr ríkisstjórn enda sök sönnuð. Og fólkið í landinu skilur ekki að æðstu menn þjóðarinnar þurfi skriflegar reglur til að greina á milli þess hvað sé eðli máls samkvæmt innan marka velsæmis. Þeir menn sem eiga að taka ákvarðanir um mikilvægustu mál þjóðarinnar eiga að vita hvað hófsemi er. Nei, fólkið í landinu, sem verður að þola skattaáþján núv. ríkisstjórnar til að standa straum af því sem kalla má yfirstéttarlíf æðstu manna þjóðarinnar, lætur ekki segja sér slíka firru.
    Stefna þessarar ríkisstjórnar í skattamálum er sú versta sem um getur síðan vinstri stjórn Hermanns Jónassonar sat við völd fyrir rúmum þrjátíu árum.
    Frjálslyndi hægri flokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn á Alþingi sem barist hefur af einurð gegn öllum þessum skattahækkunum. Ég endurtek: eini stjórnmálaflokkurinn á Alþingi. Frjálslyndi hægri flokkurinn mun á þessu þingi endurflytja frv. sitt um að afnema eignarskatt af eigin íbúðarhúsnæði. Ég vil endurtaka áskorun mína til sjáfstæðismanna um að vera með á frv.
    Hér á eftir vil ég, með leyfi forseta, vitna til bréfs sem Ólafur Thors skrifar á páskadag 1957 til Thors Thors. Bréfið er birt að hluta í ævisögu Ólafs Thors sem Matthías Johannessen ritaði og gæti sem best verið skrifað í þessari viku. Ólafur Thors segir í bréfinu:
    ,,Þessi svokölluðu stóru frumvörp eru nú að koma fram. Það er eignarán sem kallað er stóreignaskattur.

Er hyggilegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að taka því ósköp rólega, segja sem svo: Þetta er fyrst og fremst mál sem verður að athuga frá því sjónarmiði að atvinnulífið þrengist ekki þannig að hagur hins almenna verkamanns eða launþega versni. Þetta er alveg rétt sjónarmið. Ég hygg nú að sannleikurinn sé sá að afleiðing af þessu sé að sparifé minnkar, verður tekið úr umferð, og að atvinnurekstur færist saman og atvinnuleysi fer vaxandi. Ég hygg þetta. En jafnvel þó þessu væri ekki til að dreifa þá er það náttúrlega andstyggilegt ef á að fara á hverjum áratug í þessu fátæka landi að segja við skattþegninn: Ef þú vegna hygginda og dugnaðar hefur eitthvað eignast, þá komdu og skilaðu því. Það er andstyggilegt og það endar á því að menn nenna ekki að vera að reyna að eignast eitthvað. Þeir reyna hins vegar að eyða og hafa það gott og lifa sællífi. Þetta gerir ekkert til fyrir okkur sem einu sinni vorum efnamenn og erum nú skuldum vafðir eins og skrattinn skömmunum. Það eru fleiri en ég sem slíkir eru. Það eru útgerðarmenn allir og það eru margir aðrir. En ég hefi jafnan andstyggð á því að innleiða þann hugsunarhátt, eyddu og eyddu, sparaðu ekki, láttu þér líða vel þessa stundina, hugsaðu ekkert um framtíðina. Það er þetta sem þessir angurgapar eru að gera og nú eingöngu til að hefna sín á þeim sem eitthvað kunna að eiga og til að sýnast. Ég held ekki að þessir menn séu svo skyni skroppnir að þeir gangi þess duldir að þetta dregur dilk á eftir sér. En það hæfir nú sem veisluréttur eins og sakir standa og það sjónarmið er látið ráða. Ég veit að það er enn á ýmsu illu von. Þessi stóru mál þeirra eru sýndarmál og leiktjöld.``
    Þetta voru orð Ólafs Thors. Þau eru jafnlifandi nú og þau voru þá. Ég gæti ekki orðað þetta betur.
    Hæstv. forseti. Frjálslyndir hægri menn munu berjast hart gegn eignarskattinum á eigin íbúðarhúsnæði, eignarskattinum sem leggst þyngst á einstaklinga og er nær eingöngu lagður á íbúa Reykjaness að Reykvíkingum meðtöldum, eignarskatti sem fólki er ætlað að greiða af sömu launum og því er ætlað að lifa af í viðbót við há fasteignagjöld sem eru hvergi eins há og á þessu sama svæði.
    Utanbæjarþingmenn þessarar ríkisstjórnar laumuðu inn stórfelldri hækkun á
fasteignagjöldum á fólk úti á landi þegar lög um verkaskiptingu sveitarfélaga voru samþykkt sl. vetur sem ég einn allra þingmanna benti á í ræðu og varaði við. Og ég vara við því enn þá. Eins og ég var eini þingmaðurinn sem mótmælti álagningu og hækkun eignarskatta við afgreiðslu fjárlaga. Aðrir þingmenn en í þingflokki Frjálslynda hægri flokksins vöknuðu ekki af draumi fyrr en seinna. Ég hef andstyggð á því, eins og Ólafur Thors, að innleiða þann hugsunarhátt, eyddu og eyddu og sparaðu ekki. Láttu þér líða vel þessa stundina, hugsaðu ekkert um framtíðina. Það er andstyggilegt að þeim sem hafa verið sparsamir, fyrirhyggjusamir og lagt á sig ómælt erfiði við að eignast eigið íbúðarhúsnæði skuli nú vera refsað af félagshyggjulýðnum sem fylgir þessari ríkisstjórn. Ég skora á alla kjósendur að fylkja sér um merki

Frjálslynda hægri flokksins gegn eignarskattinum, gegn allri skattaáþján félagshyggjulýðsins, sjálfstæðismenn líka.
    Ég hef líka andstyggð á því fláræði sem þessi ríkisstjórn er mynduð með, fyrst með hvaða hætti slitin á ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar bar að, síðan á aðdraganda og myndun þessarar ríkisstjórnar. Þessi ríkisstjórn er á brauðfótum. Það er vissara fyrir hana að vaða ekki út í Tjörnina hans Davíðs, því ekkert þykir öndunum betra en brauð, jafnvel félagshyggjubrauð.
    Það kom ekki á óvart þegar félmrh. lýsti því yfir fyrir síðustu helgi að stjórn Húsnæðisstofnunar hefði átt að svíkja húsbyggjendur í landinu. Það kom heldur ekki á óvart að ríkisstjórnin skyldi styðja svik við húsbyggjendur um fjóra milljarða. Þetta er nýfélagshyggjan í framkvæmd. Frjálslyndir hægri menn vara við nýfélagshyggjunni. Nú á að vega sjálfseignaríbúðakerfið og koma á laggirnar þurfamannabúðum þar sem gæðakonan góða slettir úr félagshyggjupottinum sínum.
    Nú er húsnæðiskerfið orðið þannig að gæðakonan góða stendur og tínir þá úr sem hljóta náð fyrir augum hennar. Og nú er úthlutað eftir reglum sem mismuna meir en nokkru sinni fyrr. Til að mynda er réttur einstaklinga sáralítill í þessu kerfi. Þeir eiga aðeins að borga eignarskatta, hærri tekjuskatt og full gjöld í lífeyrissjóðina, en það er búið að svipta þá stórum hluta þeirra réttinda sem þeir höfðu til að fá lán þegar hv. 1. þm. Vesturl. var félmrh.
    Góðir áheyrendur. Nýfélagshyggjuflokkarnir hafa undanfarið lagt milljarða á almenning til að geta haldið uppi fölskum atvinnurekstri með gjafafé úr opinberum sjóðum. Þetta er eitt versta innanmein í efnahagslífi þjóðarinnar. Hagstæður rekstur án afskipta stjórnvalda er eini atvinnureksturinn sem skilar þjóðinni arði og betri lífskjörum. Það verður að láta illa rekin fyrirtæki fara á hausinn. Það verður að hætta að dæla milljörðum í fyrirtæki sem aldrei munu bera sig. Það verður að hætta að fá sömu mönnum í hendur milljarða í sömu vonlausu fyrirtækin sem kalla á aukna skatta á almenning, lægri laun og gengislækkun mörgum sinnum á ári. Það er búið að eyða milljörðum í grátsjóði vegna misskilnings, milljörðum í vonlaus fyrirtæki og ævintýri. Þetta er þjóðin að borga með erlendum lánum og þjóðfélagslega verri afkomu.
    Góðir Íslendingar. Við stöndum á þröskuldi nýrra tíma. Hraðfara breytingar í Evrópu eiga sér nú stað. Evrópubandalagið hefur sett markið á árið 1992. Nú þegar hafa átt sér stað miklar breytingar og unnið er hörðum höndum við að hafa allt tilbúið árið 1992. Austur-Evrópa titrar og kommar viðurkenna mistök sín í nánast öllum málaflokkum. En hér á landi hefur nýfélagshyggjan gengið á vit sömu aðferða og kommúnistar eru búnir að gefast upp við. Miðstýrðir ölmususjóðir undir stjórnmálalegri forsjá og barnaleg trú á forræði ríkisins munu koma okkur í koll í framtíðinni. Fjöldi fólks hefur þegar gert sér grein fyrir þessu.

    Hæstv. forseti. Í alþjóðamálum eru þeir atburðir að gerast sem erfitt er að segja um hvert leiða. Kommúnisminn er hruninn. Evrópubandalagið er að rísa. Ríkisstjórn Íslands er hikandi og án stefnu. Utanrrh. flöktir á milli landa án þess að vita hvað hann eða ríkisstjórnin vill. Við stöndum frammi fyrir breyttum tímum.
    Nú í haust átti ég þess kost að eiga viðræður við sendinefndir frá Póllandi, Ungverjalandi, Júgóslavíu og Sovétríkjunum. Þær viðræður eru mér minnisstæðar og nú eftir nokkra daga mun forseti Frakklands koma til landsins til að eiga viðræður við ríkisstjórn Íslands. Hann mun ræða um það við ríkisstjórn Íslands að Póllandi, Ungverjalandi, Júgóslavíu og Sovétríkjunum verði boðin aðild að EFTA. Hann mun einnig ræða mögulega inngöngu Íslands í Evrópubandalagið. En í dag gætu, eins og sakir standa, Noregur og Ísland gerst aðilar að Evrópubandalaginu, einar þjóða EFTA, vegna afstöðu sinnar til varnarmála. Fyrir liggur að tilvera Austur-Þýskalands er úr sögunni, aðeins kommúnisminn kemur í veg fyrir að Þýskaland verði sameinað í eitt ríki eða ríkjasamband. Öll þessi atriði benda til þess að við eigum strax að sækja um aðild að Evrópubandalaginu með okkar skilyrðum. Sannleikurinn er nefnilega sá að aðeins með því að ræða við ráðamenn Evrópubandalagsins getum við gert okkur grein fyrir því hvort aðild okkar kæmi til greina.
    Góðir áheyrendur. Ég vil fyrir hönd Frjálslynda hægri flokksins þakka ykkur fyrir þessa kvöldstund. Lifið heil.