Guðmundur Ágústsson:
    Góðir áheyrendur. Við höfum hlýtt á boðskap forsrh. og heyrt á hverju við megum eiga von næstu missirin. Því miður er staðan ekki glæsileg og útlitið fram undan gefur ekki tilefni til bjartsýni. Þriðja árið í röð stefnir í samdrátt þjóðartekna með tilheyrandi áhrifum á íslenskt efnahagslíf. Þegar svo er ástatt í þjóðarbúinu er rýrnun kaupmáttar óumflýjanleg. Höfuðmarkmið þessarar ríkisstjórnar verður að vera að koma í veg fyrir að fyrirsjáanleg skerðing kaupmáttar komi niður á þeim sem lakast eru settir og koma í veg fyrir að samdrátturinn leiði til stórfellds atvinnuleysis.
    Það var okkur borgaraflokksmönnum ljóst í viðræðunum í sumar að hverju stefndi. Lagði flokkurinn því höfuðáherslu á lækkun matarverðs með tveimur þrepum í virðisaukaskatti, þar sem lægra þrepið yrði á matvælum og öðrum lífsnauðsynjum heimilanna. Þó krafan hafi ekki náðst til fulls, þá verður um næstu áramót stigið áfangaskref til lækkunar verðs á helstu matvælum. Atvinnuleysi hefur gert vart við sig í kjölfar þessa samdráttar og dregið hefur úr eftirvinnu hjá mörgum. Er þetta eitt af þeim málum sem ríkisstjórnin verður að taka á á næstu mánuðum eigi hún að standa undir þeim væntingum sem við borgaraflokksmenn gerum til hennar. Við verðum að marka okkur nýja atvinnustefnu og nýta af skynsemi þær auðlindir sem við eigum. Við verðum að komast úr því fari að benda á möguleikana með fögrum orðum. Þess í stað þurfum við að hefjast handa af alvöru og nýta þá miklu fjárfestingu sem við höfum sett í menntun fólks. Það er einkennilegur hugsunarháttur sem ríkt hefur að styðja við bakið á öllum þeim sem leita vilja sér menntunar og eyða til þess óhemjufé en gefa þessu fólki síðan ekki tækifæri á að nýta menntunina til hagsbóta fyrir þjóðfélagið.
    Örlög margra hugsandi manna sem lagt hafa sig í óhemjuvinnu við að leita að þekkingu hafa verið starf hjá ríkinu þar sem framtak og háleitar hugmyndir hafa fengið snöggan endi. Að hasla sér völl á hinum almenna vinnumarkaði þar sem aðstæður eru þannig að lánafyrirgreiðsla er engin og skilningur opinberra aðila er lítill er vísasta leiðin til glötunar. Þar er einnig við hagsmunaaðila að etja sem vilja engar breytingar og ríkisvaldið lætur sitt ekki eftir liggja með skattheimtu. Við getum talað um möguleikana sem bíða unga fólksins en við skulum ekki fara mörgum orðum um þá sem reyndu og mistókst. Framtíðarsýn eins og nú horfir er ekki björt en vonandi tekst þessari ríkisstjórn að marka þannig atvinnustefnu að draumur hugsjónamannsins verði að veruleika.
    Góðir áheyrendur. Á síðustu mánuðum hefur farið fram ein lágkúrulegasta stjórnmálabarátta sem sögur fara af á Íslandi. Í stað spurningarinnar um markmið og leiðir í stjórnmálum er blásið úr gjallarhorninu í Valhöll til upprætingar spillingar. Að sjálfsögðu styðjum við borgaraflokksmenn aðgerðir til að uppræta spillingu innan ríkiskerfisins en þegar spjótin beinast

að einstökum mönnum í mynd ofsókna og skaða störf Alþingis þá er komið út fyrir þau mörk sem við borgaraflokksmenn getum sætt okkur við. Sú baráttuaðferð að höfða til lægsta stigs mannlegra tilfinninga á ekki að eiga heima í stjórnmálum og skömm sé þeim sem taka upp slík vinnubrögð.
    Borgfl. kom ekki inn í íslensk stjórnmál til að gerast böðull spillingarinnar heldur færa það sem aflaga hefur farið til betri vegar. Undir yfirstjórn ráðherra Hagstofu Íslands fer nú fram tillögugerð um endurskipulagningu á Stjórnarráði Íslands og gerð frv. um starfsemi, uppbyggingu og skipulag ráðuneytanna. Það er ekki vanþörf á að slíkt verk verði unnið. Ekki það að starfsmenn sinni ekki skyldum sínum og leysi ekki verk sín af hendi heldur er uppbygging ráðuneytanna með þeim hætti að erfitt er að gera sér grein fyrir samskiptum undir- og yfirmanna og hverjir eru undirmenn og hverjir eru yfirmenn. Í þeim 13 ráðuneytum sem eru nú við lýði eru fyrir utan ráðherra, aðstoðarráðherra og ráðuneytisstjóra 34 skrifstofustjórar og 97 deildarstjórar yfir 40 deildum sem að vísu sum ráðuneytin hafa kosið að kalla svið. Sumir þessara deildarstjóra hafa engin mannaforráð og aðrir hafa óljós verkefni.
    Æviráðning embættismanna hefur gengið sér til húðar og sú þörf sem var er ekki lengur fyrir hendi. Ríkisvaldið verður að laga sig að þörfum tímans og haga sér í samræmi við þær reglur sem almennt gilda í þjóðfélaginu. Sá hugsunarháttur að sá sem ræðst í þjónustu ríkisins skuli þar með æviráðinn, hvernig sem hann stendur sig í starfi, verður að hverfa.
    Endurskipulagning Stjórnarráðsins lýtur ekki aðeins að starfsmönnum heldur einnig þeim verkefnum og málaflokkum sem skipa á undir hvert ráðuneyti. Frá því stjórnarráðslögin voru sett árið 1969 hafa orðið miklar þjóðfélagslegar breytingar og verða ráðuneytin eins og aðrar stofnanir að laga sig að þörfum fólksins. Skilgreina verður því hvert ráðuneyti upp á nýtt og hliðra til verkefnum á milli ráðuneyta, fella sum niður og sameina önnur.
    Nýtt umhverfisráðuneyti er nú um það bil að líta dagsins ljós, en sá málaflokkur er orðinn einn fyrirferðarmestur á alþjóðavettvangi enda blasa við
þjóðum heims ógnvænleg vandamál í umhverfismálum.
    Við Íslendingar teljum sjálfum okkur trú um að við búum hér í hreinu landi og við tært andrúmsloft og að við höfum ekki sömu vandamál og aðrar þjóðir. Það er því miður misskilningur. Umhverfið varðar alla jarðarbúa og mengun eins lands er vandamál alls heimsins. Trú mín er sú að athygli manna á næstu árum og áratugum beinist öðrum málum frekar að umhverfismálum enda er um ógn að ræða sem er hættulegri en tilvist kjarnorkuvopna.
    Góðir áheyrendur. Borgfl. gekk inn í núv. ríkisstjórn til þess að hafa áhrif á mótun þjóðmála og til að byggja upp hér gott mannlíf. Við vonum að störf okkar megi verða landi og þjóð til hagsældar. --- Lifum heil.