Guðmundur G. Þórarinsson:
Hæstv. forseti. Góðir áheyrendur. Þegar gagnrýni sjálfstæðismanna á ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar er metin þurfa menn að hafa í huga hvers vegna og við hvaða aðstæður þessi ríkisstjórn var mynduð. Það er ekki nema ár síðan ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar fór frá völdum og skildi eftir byggðarlög og atvinnulíf í rúst. Sjálfstfl. var í raun ekki einn í ríkisstjórn, en sem forustuafl í þeirri ríkisstjórn bar hann meginábyrgð. Undir forustu Sjálfstfl. var gengi íslensku krónunnar haldið föstu í mikilli verðbólgu sem í raun varð til þess að verðstöðvun var sett á helstu undirstöðuatvinnugreinar Íslendinga við mjög erfiðar aðstæður. Undir forustu Sjálfstfl. var eigið fé undirstöðuatvinnugreinanna brennt upp, langt niður fyrir hættumörk, notað til þess að borga niður verðbólgu og halda uppi lífskjörum. Á þeim tíma lét ég í ljós þá skoðun mína við marga fjölmiðla að fastgengisstefnan við þær aðstæður væri hættulegasta efnahagsstefna sem ég hefði séð í framkvæmd á Íslandi. Undir forustu sjálfstæðismanna urðu gífurlegar eignatilfærslur í þessu landi milli landshluta, milli byggðarlaga og milli atvinnugreina. Undir forustu sjálfstæðismanna --- og takið eftir, það er ekki nema rúmt ár síðan --- lá við að allur sjávarútvegur á Íslandi stöðvaðist og það blasti við fjöldaatvinnuleysi.
Á síðasta aðalfundi Vinnuveitendasambandsins risu upp ýmsir stuðningsmenn Sjálfstfl. og þeir töluðu um slysaárið 1987. Þeir töluðu um árið 1987 sem ár hinna mörgu mistaka. Einn kunnasti endurskoðandi landsins flutti þar talnarunu og gerði grein fyrir því að eignatilfærslurnar innan lands væru slíkar að úr því yrði ekki bætt, það yrði ekki leiðrétt. Er það hugsanlegt að menn séu búnir að gleyma því að það er ekki nema rúmt ár síðan ýmis helstu fjöldasamtök þessarar þjóðar spáðu því að sjávarútvegurinn væri allur að stöðvast og fjöldaatvinnuleysi blasti við? Er það hugsanlegt að Sjálfstfl., í málflutningi
sínum núna, treysti því að íslenska þjóðin sé eins og tölva með tveggja mánaða minni og þeir geti þess vegna talað í vestur þó að aðgerðir þeirra séu allar í austur? Það er ekki nema ár síðan Sjálfstfl. gat engri samstöðu náð um efnahagsaðgerðir þrátt fyrir endalausar umræður og tillögur um efnahagsaðgerðir. Og hvað vilja þessir menn nú upp á dekk? Það var við þessar aðstæður sem núverandi ríkisstjórn var mynduð. Og hvernig hefur svo gengið?
Ég er einn þeirra sem gjarnan hefðu kosið að úrbætur hefðu gengið hraðar, en aðstæður voru óvenjuerfiðar í byrjun og við það bættist mikill samdráttur í efnahagslífi Íslendinga. Samdrátturinn í landsframleiðslu á árunum 1988--1990 er áætlaður 5%. Það er hvorki meira né minna en 15--16 þús. millj. kr. Það samsvarar tekjurýrnun hjá fjögurra manna fjölskyldu upp á 230--250 þús. kr. og það munar um minna.
Ég er alveg sannfærður um að fljótvirkasta leiðin til að fá hjólin til að snúast aftur var einmitt að stofna
Atvinnutryggingarsjóð og skuldbreyta skammtímaskuldum fyrirtækjanna, stofna hlutabréfasjóð og auka eigið fé þeirra fyrirtækja sem í þrot voru komin og voru burðarás sinna byggðarlaga. Í því sambandi gef ég ekkert fyrir gagnrýni þeirra manna sem halda að lausn vandans liggi í því að látast ekki sjá erfiðleikana, fyrir gagnrýni þeirra manna sem auðvelda spurningarnar með það eitt að markmiði að geta sjálfir gefið svör sem þeir eru ánægðir með. Á þessu eina ári hefur talsverður árangur náðst. Milliuppgjör sýna það að grundvöllur er að nást fyrir sjávarútveginum og við erum að snúa dæminu við. Og ekki bara það. Ef samdráttarskeið fyrri tíma í efnahagslífi Íslendinga eru athuguð kemur í ljós að einmitt á samdráttarskeiðunum hafa Íslendingar misst verðbólguna upp og misst tök á viðskiptajöfnuðinum við útlönd. Núna, í þeim samdrætti sem við höfum búið við, hefur okkur ekki bara tekist að bæta rekstrargrundvöll útflutningsgreinanna, þó að skuldahalinn sé enn þá gríðarlega erfiður frá forustutíð Sjálfstfl., heldur hefur líka, einmitt í þessum samdrætti, tekist að halda verðbólgunni niðri og viðskiptahallinn hefur minnkað, vöruskiptajöfnuðurinn hefur í reynd verið jákvæður. Ráðstöfunartekjur heimilanna hafa minnkað og atvinnustig er erfitt. Það er alveg rétt. En þar eigum við við að glíma gríðarlega erfiðar ytri aðstæður, mikinn samdrátt í landsframleiðslu eins og ég þegar hef lýst.
Því hefur að undanförnu oft verið varpað fram að þessi ríkisstjórn, sem nú situr, fimm flokka ríkisstjórn, hljóti að vera sjálfri sér sundurþykk vegna þess hve margir flokkar eru í henni. En það er nú einu sinni eðli lýðræðisins að verða að taka tillit til margra sjónarmiða ef lýðræðið á að vera virkt. Það er eðli lýðræðisins að leita málamiðlana. Ég styð þessa ríkisstjórn vegna þess að hún er einfaldlega sú besta sem kostur er á. Ég verð sjálfsagt ekki ánægður með allar hennar gjörðir nema hún færi þá í einu og öllu eftir stefnu Framsfl. sem ég reyndar á ekki von á.
En hvað með stóra flokkinn, Sjálfstfl.? Það er nú ekki auðvelt að stjórna með honum. Sjálfstfl. er í reynd fjölmargir flokkar. Hafa menn ekki tekið eftir því að hluti Sjálfstfl. er algjörlega á móti allri byggðastefnu? Hinn hlutinn telur sig í raun vera máttarstólpa byggðastefnunnar í landinu. Hluti
Sjálfstfl. berst fyrir auðlindaskatti og veiðileyfasölu. Hinn hlutinn heldur sig algjörlega fast við kvótann. Hluti Sjálfstfl. berst fyrir frjálsum innflutningi landbúnaðarvara. Hinn hlutinn berst fyrir að halda þeirri landbúnaðarstefnu sem nú er við lýði. Hluti Sjálfstfl. berst fyrir óheftri frjálshyggju, en hinn hlutinn er sannir íhaldsmenn sem helst vilja engar breytingar. Þessi sundurleitu regnhlífasamtök ólíkustu sjónarmiða sem um getur í íslensku þjóðlífi virðast síðan halda saman eftir einhverju lögmáli sem helst mætti líkja við hagkvæmni stærðarinnar.
Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar er nú að vinna sig út úr erfiðleikunum. Það eru vissulega erfiðleikar fram undan og veturinn verður erfiður. En
þar fyrir framan birtir. Stækkun álbræðslunnar í Straumsvík, ef samningar nást, mun auka þjóðartekjur um 4% og þó að klak þorsksins hafi misfarist nú um nokkur ár sé ég fyrir mér þá framtíð þegar seiðastöðvar strandlengjanna verða notaðar til að framleiða milljónir seiða, hjálpa klaki náttúrunnar, sleppa þessum seiðum og örva á ný þorskveiðarnar.
Við þurfum að auka ráðstöfunartekjur heimilanna. Við þurfum að stórlækka verð á matvælum. Við þurfum að koma á húsaleigubótum og við þurfum að lækka eignarskatt. Halli á ríkissjóði í samdrætti er miklu minna mál en í þenslu. Ríkissjóð og stofnanir ríkisins verður að skera upp. Ríkissjóður getur ekki sótt aukna skattheimtu til heimilanna eða fyrirtækjanna í samdrætti. Við þurfum að leggja niður og sameina stofnanir hjá ríkinu. Við þurfum að auka ábyrgð stjórnenda og auka sjálfstæði stofnana. Og við þurfum að bjóða út rekstur þar sem hann er hagkvæmur.
Góðir áheyrendur. Við erum á réttri leið. Við erum að snúa dæminu við. Við þá sem finnst of seint ganga vil ég að lokum segja þetta: Rifjið upp stöðuna þegar forustu Sjálfstfl. í þjóðmálum linnti. Sú staða var gríðarlega alvarleg.