Matthías Bjarnason:
Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Síðasti ræðumaður sagði að við værum á réttri leið, en síðla sumars gerði hann kröfu um það að ný efnahagsstefna yrði tekin upp. Hann hefur horfið frá þeirri kröfu sinni og er nú ánægður með sitt eftir að þing kemur saman. Sjaldan hef ég heyrt ósmekklegra upphaf að ræðu en var hjá Ásgeiri Hannesi Eiríkssyni hér áðan.
Það er mikið ósamræmi í málflutningi stjórnarsinna. Að bera saman stefnuræðu forsrh. og ræðu fjmrh. Ólafs Ragnars Grímssonar, það þolir ekki samanburð. Forsrh. heldur sér þó við jörðina og flestir af stuðningsliði stjórnarinnar, en fjmrh. snýr öllu við. Ég held að fjmrh. ætti nú að skilja að hann hafi fengið heldur betur löðrung frá samflokksmanni sínum sem tók við eftir að hann fór hér úr ræðustóli og lýsti ástandinu með nokkuð öðrum augum en fjmrh. gerði. Ég vil minna fjmrh. á það að hann gat ekki varið eigin ríkisstjórn samkvæmt línuriti með fjárlagafrv. Þá byrjaði hallinn á ríkissjóði í tíð fjmrh. Ragnars Arnalds. Hann var minnstur það tímabil sem Þorsteinn Pálsson var fjmrh. en fór aftur vaxandi þegar Jón Baldvin Hannibalsson tók við og Ólafur Ragnar Grímsson. Hann talar síðan um að hallinn á ríkissjóði fari minnkandi. Þrátt fyrir það að fjárlög voru afgreidd með greiðsluhagnaði er nú lagt fram fjárlagafrv. með þriggja milljarða halla. Allt stangast á í málflutningi stjórnarliða. Ástand og horfur í þessu landi eru hörmulegar og þegar fjmrh. talaði um slysið á þjóðveginum sagði hann að það væri pumpað í sjúklinginn blóði. Það sem gert er þegar slys verða, hvort sem er á þjóðvegum eða annars staðar, er að það er reynt að stöðva blóðrásina, hæstv. fjmrh., en ekki byrjað að pumpa í sjúklinginn blóði.
Forsrh. sagði í ræðu sinni að Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins hafi verið greidd sérstök aðstoð til frystingar og gert ráð fyrir að svo verði út þetta ár. Nauðsynlegt er að skýra að þessi aðstoð er með þeim hætti að frystideild Verðjöfnunarsjóðsins, sem á engar eignir, er látin taka lán upp á 1200 millj. sem nú er komið með fjármagnskostnaði í um 1500 millj. a.m.k. Það er því verið að gera þessar aðgerðir frá því að ríkisstjórnin tók við til nk. áramóta með lánsfé gegnum Seðlabanka sem í reynd þýðir að erlent lánsfé hækkar að sama skapi um þessa upphæð og sem ríkið kemur til með að þurfa að greiða þegar þar að kemur. Forsrh. segir að mjög fá fiskvinnslufyrirtæki hafi stöðvast, enda hafi afkoman batnað verulega fyrir aðgerðir stjórnvalda. Ja, mikið má forsrh. vera glaður með allar sínar aðgerðir til að treysta grundvöll atvinnulífsins í landinu.
Það er búið að taka lán til að dæla í sjávarútveginn og reka hann með stórkostlegum halla frá því að ríkisstjórnin tók við og enn hefur ekki tekist að komast úr þeim mikla vanda. Enn þá eru óleyst mörg verkefni vítt og breitt um landið hjá sjávarútvegsfyrirtækjum sem eru grundvöllur atvinnulífsins á þessum stöðum. Ekki er ástandið betra í öðrum atvinnugreinum og þó sérstaklega í
landbúnaði. Eitt af þeim loforðum sem ríkisstjórnin gaf er hún tók við völdum var að efla Byggðastofnun. Það var gert með þeim hætti að framlag til hennar var óbreytt að krónutölu í tvö ár í röð. En nú loksins á að hækka það nokkuð í næstu fjárlögum. Á sama tíma hafa hrannast upp verkefni hjá Byggðastofnun þannig að hún hefur ekki ráðið við að leysa nauðsynlegan vanda atvinnulífsins nema með því að taka rándýr erlend lán, enda eru ástand og horfur í málefnum strjálbýlisins með þeim hætti að fólkið heldur áfram að yfirgefa þessa staði og leita hingað á suðvesturhornið. Forsrh. sagði að þrátt fyrir erfiða varnarbaráttu hafi tekist ekki aðeins að verja velferðarkerfið, heldur bæta og auka það á ýmsum sviðum. Þetta er mikil kokhreysti að láta út úr sér hér á sjálfu Alþingi.
Hverjar eru staðreyndir þessa máls? Hefur tekist að verja velferðarþjóðfélagið? Því miður hefur það ekki tekist. Það er alltaf verið að ganga meira og meira á þetta velferðarkerfi og það sem meira er um vert, stjórnvöld hafa nú í hótunum um að ganga enn frekar á þetta velferðarkerfi og fara marga áratugi aftur í tímann. Það eru áform uppi um að afnema grunnellilífeyri til þeirra sem hafa bærilegar tekjur. Það á að raska grundvellinum að almannatryggingakerfinu af þessum flokkum sem kenna sig við félagshyggju. Fólki var sagt fyrir mörgum áratugum að almannatryggingakerfið væri réttur sem hver og einn væri að kaupa sér til efri ára. Einstaklingar greiddu iðgjöld til almannatrygginganna burt séð frá tekjum. Því var svo breytt árið 1972 á þann veg að þá var tekið meira af þeim sem höfðu hærri tekjur og greiddu þar af leiðandi meira til almannatryggingakerfisins. Þeir sem minnst mega sín fengju tekjutryggingu. Á að hverfa frá því sem hefur verið í gildi, svíkja á þann veg þann rétt sem menn hafa öðlast í gegnum árin? Hvers vegna á að ganga lengra í skattlagningu á fólk eftir að það hefur náð ákveðnum aldri? Eða er ætlunin að ganga enn lengra og hætta að greiða úr hinu sameiginlegu almannatryggingakerfi til þeirra sem hafa góðar tekjur á þann veg að svipta þá áunnum réttindum?
Þegar almannatryggingalögin voru sett var horfið frá fátækraframfærslu og
tekið upp heilbrigt tryggingakerfi. Aldrei hefur komið til mála þegar Sjálfstfl. hefur verið í ríkisstjórn að traðka á grundvallarréttindum fólks sem hefur áunnið sér rétt til bóta úr almannatryggingakerfinu.
Það hefur gerst á öðrum sviðum, það er alltaf verið að hækka hlutdeild einstaklings með öllum tegundum þessara bóta. Þannig er það einnig í öðrum málum sem velferðarþjóðfélagið hefur státað af á undanförnum árum. En eitt á þessi ríkisstjórn. Ráðherrar hennar opna varla munninn án þess að þeir tali um að almenningur í landinu spari, dragi saman seglin, atvinnurekendur beiti aukinni hagræðingu í atvinnurekstrinum. Vitaskuld er sjálfsagt að allir fari vel með fé og hagræðingu sé beitt í atvinnurekstri. En þegar menn heyra þetta sífellda tal ráðamanna og þjóðfélagsins spyrja menn gjarnan: Hvernig er það hjá
ykkur, herrar mínir, sparið þið? Farið þið vel með þá fjármuni sem ykkur er trúað fyrir og þjóðfélagsþegnarnir færa ykkur upp í hendurnar? Nei, það er öðru nær. Síðasta dæmið er það að þið fjölguðuð í ríkisstjórn um tvo ráðherra. Þið fóruð á hrossamarkað og keyptuð tvo ráðherra. Ég held að þeir verði ekki taldir miklir veðhlaupahestar sem voru keyptir á kostnað þjóðarinnar fyrir ekki minna en 20--30 millj. kr. Hafa ráðherrar verið að spara pólitíska aðstoðarmenn sína eða aðra trúnaðarmenn? Þeir eru víst komnir upp í 16 eða 17 en út yfir hefur þó tekið þegar hagstofuráðherrann er kominn með sérstakan aðstoðarmann.
Annað dæmi er vegáætlun sem Alþingi samþykkti 20. maí í vor. Örfáum mánuðum síðar er farið að skera vegáætlunina niður án heimildar Alþingis og nú er ætlunin að skera vegáætlunina enn þá meira niður þannig að niðurskurður verður upp á 1015 millj. á næsta ári. Nú kemur til kasta þm. Ætla þeir að láta bjóða Alþingi slíka ósvinnu með þessum hætti?
Alþfl. átti einu sinni stórt baráttumál sem var afnám tekjuskatts og sérstaklega á almennar launatekjur. En nú á að hækka tekjuskattinn, það á að hækka virðisaukaskattinn, það á að hækka alla skatta á launþega í landinu. Eignarskattar hafa verið hækkaðir á fólki sem hefur lagt til hliðar. Ef stjórnarherrarnir ætlast til að fólkið í landinu spari, þá ætlast almenningur í landinu til þess að stjórnarherrarnir sýni með fögru fordæmi að þeir ætla að sýna öðrum leiðina til þess að spara. Það verður ekki gert með því að vera í sífelldum utanlandsferðum, eyða og sóa í þær, í veislur, aðstoðarmenn og alls konar óþarfa. Ég neita því ekki að það er nauðsynlegt að sækja ýmsar ráðstefnur, fundi og þekkingu til erlendra þjóða, en hér er of langt gengið. Við teljum að þeim fjármunum sé betur varið sem eytt er til annarra og nefni ég þar bæði öryrkja, þroskahefta og aðra sem eiga við sjúkdóma og böl að stríða. Við þurfum að taka upp manneskjulegra samstarf og hugarfar en nú er. Við þurfum að leggja okkur fram um það að bæta úr því sem hefur farið aflaga í þjóðfélaginu, en ekki sýna hroka og stærilæti eins og er háttur sumra þeirra sem nú standa við stjórnvölinn.
Virðulegi forseti. Ég er að ljúka máli mínu. Þjóðin treystir ekki núv. ríkisstjórn. Því á hún að segja af sér og láta kosningar fara fram sem allra fyrst. --- Góða nótt.