Þórhildur Þorleifsdóttir:
Virðulegi forseti. Góðir áheyrendur. Það er í gangi málræktarátak. Tungan er í hættu, segja menn, átaks er þörf. Eftir að hafa hlustað á ræðu hæstv. forsrh. er ég sannfærð um nauðsyn málræktarátaks. Tungan er í stórhættu, ekki vegna þess að málfræði eða beygingarvillur hafi verið áberandi, heldur hins hvernig hann notar tungumálið, hvaða veruleika hann er að tjá og hvaða orð hann notar til þess.
Þetta steingerða og staðlaða stofnanamál sem ekki bara hann heldur stjórnmála- og embættismenn og sérfræðingar af ýmsu tagi nota er óskiljanlegt öllum þorra landsmanna og dugir ekki til að lýsa veruleika fólks, lífinu. Í besta falli er það nýtanlegt til að lýsa efnahagslífinu og þá með þeim hætti að enginn skilur nema kannski nokkrir efnahagssérfræðingar og athafnamenn. Þó hvarflar það að manni að þeir skilji ekki heldur og það sé ein orsökin fyrir óstjórninni og öngþveitinu í efnahagslífinu. Kreppuvaldurinn! Stjórn efnahagsmála er marklaus og beinlínis hættuleg ef ekki er tekið mið af þörfum fólks, líðan þess og lífi alveg eins og tungumál er marklaust og skiptir engu máli í sjálfu sér, það er hvað sagt er og hvað verið er að tjá sem gefur tungunni gildi.
Þegar menn halda dauðahaldi í orðaforða hagfræðinnar, nota efnaleg rök ein, eru svo villtir í myrkviði vaxta, peninga, hundraðshluta, markaðar og hagvaxtar og virðast halda að efnahagslífið lifi einhverju sjálfstæðu lífi utan og ofan við mannlífið er ekki að furða þó þeim förlist sýn og skilningur.
Það þarf því engan að undra að í ræðu forsrh. var ekki orð að finna um líf og líðan fólksins í landinu, enda dugir efnahagstungumálið ekki til að lýsa því, greina það. Það er ekki hægt að tala um vergar barnsfæðingar, frelsi í vaxtarskilyrðum barna og unglinga, raunvexti menningar, hlutfall stigvaxandi ofbeldis, hagvöxt ólaunaðrar vinnu á heimilum og hagkvæmni vinnuþrælkunar, svo að dæmi séu tekin. Nei, orðaforðinn spannar ekki raunveruleikann. Tungumál og tungutak endurspeglar hugsanir og skynjanir og því takmarkaðra og sérhæfðara sem tungumálið er, þeim mun takmarkaðri og þrengri er hugsunin, skynjunin. Ekki veit ég hvort menn gera það meðvitað að temja sér þetta afskræmda efnahagstungumál til að villa um fyrir fólki eða hvort skynjun þeirra er í raun orðin svona þröng. En hitt veit ég að orðaforði hæstv. forsrh. er mjög takmarkaður og sérhæfður og þá hugsanlega skynjun hans og skilningur einnig. Þess vegna tæpir hann ekki á þeim málum sem brenna á íbúum þessa lands. Þar er fyrst til að taka að hann minnist ekki einu orði á fjölskyldur og heimili landsins. Vinnuþrælkun sem er að sliga allan almenning er honum ekki áhyggjuefni né hörmulegar afleiðingar hennar. Ekki boðar hann neinar aðgerðir til að létta fólki lífsbaráttuna aðrar en þá að lækka verð á innlendum matvælum, þ.e. það á ekki að skattleggja brýnustu nauðþurftir fólks meira en 13%. En jafnframt er tilkynnt að ekki verði hjá því komist að kaupmáttur launa falli enn. Orðrétt segir:
,,Heildarlaunagreiðslur í þjóðfélaginu eru hærri en atvinnulífið fær borið.`` Ég fullyrði aftur á móti að heildarlaunagreiðslur í þjóðfélaginu séu lægri en heimilin fái borið. Hvernig er hægt að bera það á borð fyrir þær þúsundir kvenna á Íslandi sem hafa um og innan við 50 þús. kr. mánaðarlaun að það verði að skerða kaupmátt þeirra? Um það bil fjórðungur allra barna á Íslandi er á framfæri kvenna sem eru einar um að afla heimilinu tekna. Hvar eiga þær að skera niður? Eiga þær kannski að spara sér greiðslu fyrir gæslu barna sinna? Þar er ekki um neinar smáupphæðir að ræða. Og ekki verður sparnaðurinn minni ef fyrirvinnurnar eru tvær. Heils dags gæsla fyrir barn kostar rúmar 20 þús. kr. á mánuði. Hjón eða sambýlisfólk með tvö börn undir skólaaldri borga því um 500 þús. kr. á ári --- hálfa milljón á ári --- fyrir barnagæslu. Ekki er þessi kostnaður foreldra ungra barna við að sækja atvinnu frádráttarbær á skattaframtali. Það telst ekki jafnmerkilegur kostnaður eins og rekstur á bíl eða að fara út að borða til að ræða viðskipti. Þá er hægt að framvísa reikningi og fá skattafrádrátt.
Þegar þessar tölur um kostnað vegna barnagæslu eru hafðar í huga þarf engan að undra upplýsingar sem fram koma í heilbrigðisskýrslu landlæknis sem ber heitið Mannvernd í velferðarþjóðfélagi. Þar segir að um það bil fjórðungur barna 7 ára og yngri gangi sjálfala allan daginn og 64% barna á aldrinum 7--12 ára. Er þetta ekki, hæstv. forsrh., áhyggjuefni? Hvernig heldur hann að þessum börnum líði, eða mæðrum þeirra? Heldur hann að þær velji þennan kost, að láta börnin ein og afskiptalaus allan daginn, með glöðu geði? Nei, þær annaðhvort fá ekki gæslu eða hafa ekki efni á henni. Hvar eiga þær að skera niður næst? Sér hæstv. forsrh. ekkert samhengi milli sívaxandi vandamála og erfiðleika barna, unglinga og fjölskyldna og efnahagsstefnunnar?
En það er ekki bara kaupmátturinn sem á að minnka heldur er líka spáð vaxandi atvinnuleysi. Á hverjum bitnar það fyrst og fremst? Á láglaunafólki og meir á konum en körlum. Það dregur auðvitað ekkert úr vandamálum atvinnulausra karla að atvinnulausar konur séu fleiri. En það eru þó uppi einhverjir tilburðir í þá átt að leysa atvinnumál karla. Fljúgandi hugmyndaflugi er beitt
og lausnin fundin, stóriðja, dýrustu atvinnutækifæri sem völ er á. Mengun, byggðaröskun, erlendar skuldir og dýrt rafmagn til landsmanna eru helstu kostirnir. Í stóriðjuverið eiga svo atvinnulausir karlar úr öllum landshornum að flykkjast, hvernig sem það nú kemur heim og saman við jafnvægi í byggðum landsins. Og hvað með konurnar? Það er ekki orð um þeirra atvinnumál í stefnuræðunni. Þær búa þó við fábreyttari atvinnu, lægri laun og meira atvinnuleysi en karlar. Er líklegt að karlasamstarfsnefndinni sem á að skoða allar skynsamlegar og viðráðanlegar leiðir til að draga úr atvinnuleysi detti einhver úrræði í hug konum til handa? Detti konur yfirleitt í hug?
Nú ríður á fyrir konur að halda vöku sinni og standa saman um að verjast þeim árásum sem eru í
undirbúningi. Það verður enn harðar sótt að þeim en fyrr og þykir þó mörgum nóg um. Enn einu sinni verður þeim sagt að bíða þangað til ,,svigrúm myndast``. Enn eiga þær að gjalda fyrir óráðsíu og bruðl, offjárfestingar
og vitleysur annarra. Enn eiga þær að vinna á smánarlaunum allan þann fisk sem útgerðarmönnunum þóknast að landa, þræla við aðstæður sem eru ekki mönnum bjóðandi, í ærandi hávaða, kulda og bleytu. Enn eiga þær að halda áfram að þjóna, hjúkra, fræða og annast innan veggja heimilisins, launa- og réttindalausar, utan þeirra á ,,viðurkennda vinnumarkaðnum`` launalitlar og vanmetnar. Þær telja ekki eftir sér þessi störf og þær skorast ekki undan að vinna þau, en þær vilja hvorki né geta lagt allan sólarhringinn undir. Það vinna margir langan vinnudag á Íslandi en konur sýnu lengstan. Það hafa margir lág laun en konur lægst og eru stærsti láglaunahópurinn. Konur á Íslandi búa við vinnuþrælkun. Staða þeirra og kjör eru slík að það hlýtur að ofbjóða réttlætiskennd allra hugsandi manna. En ekki hæstv. forsrh. Hann hefur ekkert um þetta að segja, ekki eitt orð. Konur komast ekki einu sinni á blað í stefnuræðu hans, nema sem einhvers konar pakki, innifalinn í of háum heildarlaunagreiðslum þar sem þær eru þó varla hálfdrættingar.
Nei, það er margt sem ekki komst á blað. Þó rötuðu aldraðir og fatlaðir þangað sem dæmi um hlutfallslega bætta aðstöðu. Er það vegna þessarar ,,hlutfallslega bættu aðstöðu`` sem fatlaðir héldu nýlega fund fyrir framan Alþingishúsið til að vekja athygli á neyðarástandi í húsnæðismálum fatlaðra? Eru síendurteknar peningasafnanir þeirra með aðstoð fjölmiðla og stuðningshópa merki um hið sama? Birtist ,,hlutfallslega bætt aðstaða`` aldraðra í því að biðlistar fyrir alls konar þjónustu á heimilum og stofnunum lengjast sífellt? Eða birtist hún kannski í frelsi aldraðra til að kaupa svo rándýrar þjónustuíbúðir að andvirði einbýlishúss nægir varla fyrir smáíbúð? Og hvað um félags-, heilbrigðis-, trygginga- og menntunarmál? Jú, það segir í stefnuræðunni að þau séu ,,í stöðugri athugun``. Markmiðið er að bæta og auka hagkvæmni og skilvirkni. Ágætt svo langt sem það nær, en varla fullnægjandi. Hvernig skilvirkni? Hvers konar hagkvæmni er verið að tala um? Er aukin hagkvæmni í félags- og tryggingamálum e.t.v. að hirða ellilífeyrinn af öldruðum? Eða lækka greiðslur til þeirra sem annast fatlaða eða sjúka í heimahúsum? Er skilvirkni í menntunarmálum fólgin í því að festa í sessi stuttan sundurslitinn skóladag, í ónógum kennslutækjum og bókakosti, í því að senda lítil börn í skóla fjarri heimilum sínum? Það er sjálfsagt hagkvæmni að forsmá allar lista- og verkmenntagreinar innan skólakerfisins, skilvirkni að ala upp menningarsnautt fólk úr tengslum við land sitt, verkmennt þjóðarinnar og menningu.
Það hriktir í stoðum íslenskrar menningar. Enda segir í margnefndri stefnuræðu að framlög til menningarmála hafi aukist að raungildi. Er það Þjóðleikhúsið sem verið er að tala um? Þjóðleikhús
Íslendinga sem er að hruni komið og hefur búið við fjársvelti árum saman? Önnur dæmi þekki ég ekki um aukið fé að raungildi. Viðgerð Þjóðleikhússins á að kosta með þjóðarbókhlöðuskattinum og bæta það svo upp með því að fjármagna byggingu Þjóðarbókhlöðunnar, þessarar síðbúnu afmælisgjafar, með fé frá Happdrætti Háskóla Íslands.
Umhverfismál ræddi hæstv. forsrh. að vísu um, en því miður með þeim hætti að helst mátti skilja það svo að við þyrftum að vernda land, loft og lög til að það gengi betur út, yrði girnilegri söluvara. Ekki vegna þess sjálfs, ekki vegna komandi kynslóða, nei, fyrir ferðamenn.
Ekki var orð að finna um herinn í landinu. Hann á greinilega að vera áfram. Engar áhyggjur af þeirri mengun sem honum fylgir, hvorki hugarfars- eða menningarlegri. Ekki einu sinni efnahagslegri! Ekki orð um að brjótast úr herfjötrum og hernaðarbandalagi, ekki orð um kjarnorkuvopnalaus höf, afvopnun eða frið. Ekki einu sinni sívaxandi ofbeldi innan lands er áhyggjuefni. Ekki orð um að börn séu barin og konum nauðgað, hvað þá um einhver úrræði. Nei, allt þetta og miklu fleira er utan gáttar í stefnuræðu hæstv. forsrh. Og það verður svo trúi ég þar til konur hefja sitt eigið málræktarátak og kenna ráðamönnum þessa lands nýtt tungutak.
Virðulegur forseti. Hæstv. forsrh. komst svo að orði: ,,Sameinuð getur íslenska þjóðin gert hvað sem er.`` En ég segi: Sameinuð getur íslenska þjóðin
ekki verið þegar tungutakið er eins ólíkt og raun ber vitni, auðæfum svo misskipt, misréttið svo himinhrópandi. En ég hef þá trú að konur geti sameinast og að sameinaðar geti þær gert nánast hvað sem er. Ég skora því á konur og alla aðra sem vilja ljá þeim lið að sameinast um nýtt málræktarátak, málræktarátak sem hefur til vegs og virðingar tungumál sem endurspeglar mannlíf og menningu þessarar þjóðar --- áður en það er orðið um seinan.
Ég þakka áheyrnina. Góða nótt.