Veiting ríkisborgararéttar
Þriðjudaginn 24. október 1989


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um veitingu ríkisborgararéttar á þskj. 53. Í 1. gr. frv. eru talin upp nöfn 13 manna sem sótt hafa um íslenskan ríkisborgararétt og að mati dómsmrn. uppfylla þau skilyrði sem Alþingi hefur sett fyrir veitingu ríkisborgararéttar á undanförnum árum. Í 2. gr. eru sömu ákvæði um nafnabreytingar og gilt hafa síðustu árin.
    Þá liggja fyrir í ráðuneytinu nokkrar umsóknir um ríkisborgararétt sem ekki uppfylla öll skilyrði sem sett hafa verið fyrir veitingu ríkisborgararéttar og verða þær síðar sendar viðkomandi nefnd.
    Ég legg til að að lokinni þessari umræðu verði málinu vísað til 2. umr. og hv. allshn.