Grunnskóli
Þriðjudaginn 24. október 1989


     Flm. (Ragnhildur Helgadóttir):
    Herra forseti. Hér er á nýjan leik flutt frv. sem við þrír þm. Sjálfstfl. fluttum á seinasta þingi. Það er í meginatriðum hið sama. Einn þáttur þess er þó áréttaður frekar.
    Tilgangur frv. er að bæta réttarstöðu barna, að bæta aðstöðu þeirra til að njóta fræðslu og aðstöðu foreldra þeirra til þess að fullnægja uppeldisskyldum sínum. Í þessu sambandi er þó ekki lítið gert úr uppeldishlutverki skólanna, en það er fyrst og fremst fjallað um fræðsluskyldu hins opinbera, þ.e. um skyldu hins opinbera til þess að sjá um að börn fái fræðslu. Skylda til uppeldisins hvílir hins vegar fyrst og fremst á foreldrunum, en skólinn er mikilvægur þátttakandi í framkvæmd foreldranna á þessu hlutverki sínu. Þess vegna er það að miðað við aðstæður í nútímaþjóðfélagi hafa menn hneigst til þess æ meira að gera kröfur um að skólanum séu búin skilyrði til þess að taka þátt í þessu uppeldishlutverki.
    Við gerum ráð fyrir því í 1. gr. frv. að skólaskyldan sé lengd á þann veg að hinu opinbera sé skylt að sjá um að haldinn sé skóli fyrir börn strax frá sex ára aldri. Orðalagið á 1. gr. er örlítið breytt í þessu frv. þar sem lögin um grunnskóla, eins og þau eru nú, gera ráð fyrir að ríki eða sveitarfélagið sjálft haldi skóla, en í þessu frv. er gert ráð fyrir að skyldan miðist við að ríki og sveitarfélög sjái til þess að haldinn sé skóli fyrir öll börn og unglinga á þessum aldri eins og nánar segir í lögunum.
    Ástæðan til þessa er sú að það getur hentað ríki, sveitarfélagi eða öðrum aðilum, foreldrum eða öðrum þeim sem ábyrgð bera á börnum, að koma skólahaldinu fyrir með öðrum hætti og við teljum rétt að sú heimild sé áréttuð í lögum. Þetta þýðir þó að í engu er slakað á kröfum sem gerðar eru til hins opinbera um að sjá um að fræðsluskyldunni sé fullnægt, enda er það svo að við teljum, flm. þessa frv., sem og aðrir sjálfstæðismenn, að á ríkinu hvíli sú skylda að tryggja að allir eigi kost á menntun við sitt hæfi og hafi jafnan rétt til menntunar án tillits til efnahags, búsetu eða fötlunar. Fræðsluskylda ríkisins sé hins vegar framkvæmd með þeim hætti að skólar hins opinbera eða einkaskólar geti starfað hlið við hlið.
    Í ályktun um skóla- og fræðslumál sem samþykkt var á síðasta landsfundi Sjálfstfl., sem hefur tíðum verið umræðuefni í þessum sölum, segir svo, með leyfi hæstv. forseta:
    ,,Markmið menntakerfisins er öðru fremur að uppfylla fjölbreytilegar óskir nemenda eða foreldra barna um fræðslu þeim til handa. Samræma ber vinnutíma foreldra og barna með því að koma á samfelldum skóladegi og einsetnum skóla. Lengja verður daglegan skólatíma yngra og miðstigs grunnskólans til þess að skólinn geti betur sinnt fræðslu- og uppeldishlutverki sínu í samstarfi við heimilin sem bera höfuðábyrgð á uppeldi barnanna.
    Tryggja þarf að til kennslustarfa veljist ávallt vel hæft fólk. Áhersla er lögð á að kennarar skili öllum

starfstíma sínum í skólanum og að símenntun verði hluti af starfsskyldu kennara. Skapa þarf menntakerfinu þau skilyrði að skólarnir eigi sem auðveldast með að ná markmiðum sínum. Það verður best gert með því að stjórnendur og starfsfólk menntastofnana fái að nýta sínar eigin hugmyndir og starfskrafta eins og best á við hverju sinni.
    Stjórnendur skóla hafa í flestum tilvikum besta þekkingu á því hvaða leiðir ber að fara. Æskilegt er því að miðstýring menntakerfisins sé mun minni en nú er hvað varðar rekstur, fjármagn, stjórnun, hugmyndir og kennsluaðferðir. Yfirstjórn menntamála ber hins vegar að sjá til þess að mat sé lagt á árangur starfs í hverjum skóla og að niðurstöður þess mats séu gerðar almenningi aðgengilegar í samræmi við upplýsingaskyldu stjórnvalda.``
    Hér lýkur þessari tilvitnun, herra forseti, en af henni má sjá að frv. sem við flytjum hér er mjög í samræmi við þær hugmyndir sem fram koma í þessari stefnumörkun sem má segja að hafi það höfuðeinkenni auk þess að leggja áherslu á hið ólíka eðli einstaklinganna að efla samstarfið milli heimila og skóla og að virða höfuðábyrgð heimilisins og fjölskyldunnar á uppeldi barnanna. Þetta inntak er í mörgum fleiri málefnaályktunum Sjálfstfl., bæði að því er varðar almennar stjórnmálaályktanir, félagsmál, fjölskyldumál, jafnréttismál og fleira. Ástæðan til þessa er einfaldlega sú að við teljum að við séum hér að fjalla um hluti sem eru svo ríkir þættir í eðli einstaklinganna og svo mikilvægir. Þeir séu lykilatriði í mörgum starfsþáttum þjóðfélagsins. Við séum að fjalla um aðgang að því að geta notið náms í lífsins skóla og að geta staðið sig í lífsbaráttunni. Þess vegna er það að við leggjum á það höfuðáherslu að Íslendingar megi undir engum kringumstæðum og síst nú á dögum dragast aftur úr um fræðslu og uppeldisaðstöðu sinnar yngstu kynslóðar og þess vegna gerum við okkur grein fyrir því að þær breytingar sem þarf að gera, sú bætta aðstaða sem skólarnir þurfa að fá, hlýtur að verða eitt af höfuðviðfangsefnum stjórnmálanna og í útgjöldum hins opinbera á næstu árum. Við gerum okkur grein fyrir því að hér er um að ræða málefni sem við getum því miður ekki náð í einu skrefi, en í grg. frv. eru ítarlegar áætlanir um það
hvernig unnt sé að ná þessum markmiðum í nokkrum áföngum.
    Við gerum grein fyrir því að frv. er að mestu byggt á áliti nefndar um fjölskyldumálefni sem sett var af þáverandi forsrh., hv. 1. þm. Suðurl. Þorsteini Pálssyni, sem reyndar hafði látið það koma fram í ýmsum málefnum sinnar ríkisstjórnar að höfuðáhersla væri lögð á bætta aðstöðu fjölskyldna og barna. Þessi nefnd byggði m.a. álit sitt á starfi annarra nefnda sem starfað höfðu í menntmrn. og höfðu gert kannanir meðal kennara og foreldra um það sem brýnast væri talið til að bæta samstarf heimila og skóla til að bæta aðstöðu barna.
    Það þarf ekki að hafa um það langt mál hvaða áhrif þjóðfélagsbreytingar síðustu áratuga hafa haft á

líf og leik lítilla barna í okkar þjóðfélagi. Þetta eru þó þeir þjóðfélagsborgarar sem við öll, á hvaða aldri sem við erum, berum mikla umhyggju fyrir og við teljum það raunar höfuðatriði sé að vel sé búið að þessum hópi þjóðfélagsborgaranna.
    En hver er staðreyndin? Við skulum líta á skýrslu sem nokkuð hefur verið talað um og liggur hér fyrir sem fylgirit við heilbrigðisskýrslur, þ.e. skýrsla sem landlæknisembættið lét gera og heitir Mannvernd í velferðarþjóðfélagi. Þessi skýrsla vitnar í ýmsar tölfræðilegar staðreyndir, m.a. úr skólaskýrslum í Reykjavík, og þar er sýnt fram á að um langt árabil hefur verið ótrúlegur fjöldi lítilla barna á aldrinum 7--12 ára sem eru meira eða minna ein heima á daginn. Og af hverju er þetta? Í sumum tilvikum er þetta vissulega matsatriði foreldranna. Í öðrum tilvikum er þetta óhjákvæmilegt. Og hvað viljum við gera til að auka öryggi þessara barna? Við þurfum ekkert að ræða það hvaða áhrif þessi aðstaða getur haft á þetta unga fólk. Ýmsar niðurstöður kannana sem birtar eru í þessari sömu skýrslu gefa líka til kynna að það er ljóst að til þessarar aðstöðu má rekja ýmiss konar heilsubrest þessara sömu einstaklinga síðar á ævinni, ýmiss konar örðugleika, bæði við að stunda nám í öðrum skólum eða störf. Sumir komast sem betur fer klakklaust í gegnum þetta en einstaklingarnir eru misjafnir og það verður að sjálfsögðu að sinna þeim í ljósi þeirrar staðreyndar. Þess vegna leggjum við til að daglegur skólatími barna sé lengdur. Við leggjum raunar líka til að árlegur skólatími barna sé lengdur. Og við leggjum líka til að einu ári sé bætt við skólaskylduna.
    Ég hygg nú að þeim fari fækkandi sem undrast það að menn vilji veita börnum aðstöðu til þess að dveljast lengur í skóla heldur en nú er. Sumum leiðist í skóla eins og gengur en það er ekki annað heldur en víða er í þjóðfélaginu. Sumum leiðist á sínum vinnustað. Engum þeim sem hér eru inni neitt að ráði kannski, því að þeir eru svo áhugasamir um þetta málefni. En það kemur fyrir á öllum vinnustöðum hvort sem það er skóli eða ekki, að heldur vildu menn sitja og spila á spil við vini sína eða gera sér eitthvað annað til dundurs. Börn eru líka mismunandi heppin með aðstöðuna í sínum skóla og í skólanum er misjöfn aðstaða til að sinna hverjum einstaklingi fyrir sig. ( MB: Hún er að skamma okkur sem inni erum.) Ég var einmitt að hrósa þeim sem inni eru hvað þeir sýndu mikinn áhuga á þessu mikilvæga málefni og því fagna ég mjög. Og ég tel sérstaka ástæðu til þess að segja það sérstaklega við hv. 1. þm. Vestf. að við erum að fjalla um málefni yngstu borgaranna og það eru einmitt málefni sem snerta hug og hjarta þingmanna og annarra Íslendinga á öllum aldri. Við erum ekki að fjalla um eitthvert sérmál kvenna eins og stundum mætti ætla þegar talað er um skólamál hér á hv. Alþingi. Og sú framför hefur orðið að ég sé ekki betur en að hér séu hlutföllin á þessum fundi nokkuð góð milli karla og kvenna. Stundum hefur það verið svo í þessum sal, þegar slík málefni hafa verið rædd, að aðallega hafa það verið konur sem þeim hafa

sinnt. En hvað sem því líður --- að miklu leyti get ég vitnað til þeirra röksemda sem fram koma í ítarlegu nál. frá þeirri nefnd sem ég gat um áðan,
fjölskyldumálefnanefnd hv. þm. Þorsteins Pálssonar og þáv. forsrh. Þar kemur fram að við gerum ráð fyrir því að frv. komi ekki til framkvæmda fyrr en ári eftir að það fær afgreiðslu á Alþingi. Í fyrsta áfanga verði lengdur skóladagur fyrir sjö og átta ára börn og í næsta áfanga verði sex ára bekkurinn látinn fá betri aðstöðu eins og sjö og átta ára hóparnir og kennsla sex ára barna verði með sama hætti og í öðrum hópum grunnskólans að það verði bekkjakerfi en ekki eins og nú er, það fari eftir fjölda í sex ára bekk. En við gerum ráð fyrir því að á hvern nemanda verði í fyrsta bekk sex ára barna 1200 mínútur á viku. Við gerum okkur grein fyrir því að þetta er framtíðarmarkmið en við stefnum að því að með þessu verði dvöl barns í skólanum allt að sex klukkustundir, þ.e. að það séu kennslustundirnar sjálfar sem eru 40 mínútur hver, stundahlé á milli og matarhlé og þess vegna verði þetta samtals í skólanum um sex stundir.
    Við gerum ráð fyrir því líka að það verði aðstaða til þess að börnin geti dvalist í skólanum utan kennslustunda. Að það sé gert ráð fyrir skólaathvörfum við hvern grunnskóla og við gerum ráð fyrir því, þar sem hér er um kostnaðarsamt atriði að ræða, að heimilt sé að taka gjald fyrir dvöl nemenda í skólaathvörfum og upphæð gjaldsins skuli ákveðin af skólastjóra í samráði við
fræðslustjóra. Þessi hugmynd kom fram í áliti sem forskólanefnd hafði skilað á árinu 1981, þá þegar, og lagði sú nefnd mikla áherslu á að bæta aðstöðu þessa hóps.
    Við gerum ráð fyrir því að lengri kennslutími fyrir eldri bekki komi svo síðar til framkvæmda. Í þriðja áfanga verði lengingin fyrir alla bekkina komin þannig að fyrsti, annar og þriðji bekkur fái 28 kennslustundir á viku hver, fimmti bekkur fái 33, sjötti 35 stundir, sjöundi, áttundi og níundi 36 kennslustundir á viku hver og síðan aukist þetta á árunum 1992 og 1993 þannig að fyrsti, annar og þriðji bekkur fái 30 kennslustundir á viku, fjórði 32, fimmti 34, sjötti 35, sjöundi, áttundi og níundi 36--37 kennslustundir á viku. Við gerum ítarlega grein fyrir því hvað þessar aðgerðir muni kosta hverju sinni en eins og menn sjá þá erum við með tölur sem eru miðaðar við verðlag á árinu 1988 og þær þurfa að sjálfsögðu að taka breytingum. Ég geri reyndar ráð fyrir að eftir verðlagsútreikningum hæstv. fjmrh. séu þessar upphæðir kannski lægri heldur en það sem við teljum að þurfi að vera, því við teljum nú að verðbólgan sé meiri heldur en hæstv. fjmrh. sagði a.m.k. hér í gær. En ef hans kenningar um það gilda þá verður þetta nú ekki eins há krónutala sem við erum hér að leggja til í auknum kostnaði. En við skulum líta á hina hlið málsins. Þó að við fjöllum hér um mikla fjármuni þá erum við líka að skapa tryggingu. Við erum að tryggja meira öryggi, við erum að afstýra slysum, við erum að afstýra lakari geðheilsu, við erum að stuðla

að betri aðbúnaði, ekki aðeins barnanna, heldur líka fjölskyldnanna. Við erum að draga úr streitu foreldra og hver er tilbúinn til þess að slá á það mati hvaða fjármunir sparast með því að sporna gegn þessum hlutum sem ég hef hér nefnt, slysum, vanheilsu, streitu og losi í fjölskyldum? Ég held að til lengri tíma litið þá sé hér um einhverja öruggustu fjárfestingu að ræða sem við gætum valið. Og ekki einungis það heldur séum við að fullnægja skyldum, siðferðislegum skyldum sem hvíla á fullorðnu fólki í þessu landi, á öllum þeim sem eru komnir til vits og ára og þeim sem eru á þeim aldri að þeir beri yfir höfuð ábyrgð á uppeldi ungs fólks og lítilla barna.
    Ég held, herra forseti, að ég hafi ekki fleiri orð sérstaklega um það sem hér er gert ráð fyrir í þessu frv. Í greinargerð er það skýrt og líka sú breyting sem varð á frv. frá því í fyrra. Gerð hefur verið grein fyrir henni. Þar er áréttuð heimildin fyrir hið opinbera til þess að fela öðrum aðilum en sjálfu sér að halda skólana, að sjá um skólastarfið. Hið opinbera getur falið eða samið við einstaklinga eða aðra að halda skóla. Hins vegar njóti slíkir skólar fjárhagslegs stuðnings hins opinbera, en rammi yrði settur um nánara fyrirkomulag þessa stuðnings í reglugerð og veitt yrði leyfi fræðsluyfirvalda sem fyrst og fremst mundi miða við að faglegum kröfum væri fullnægt. Það er líka meginatriði að hinum faglegu kröfum sé fullnægt.
    Ég veit, herra forseti, að hæstv. menntmrh. mun hafa látið smíða frv. til grunnskólalaga. Frá því var sagt í fjölmiðlum nú fyrir allnokkru síðan, þó nokkrum tíma. Í síðustu viku var skýrt frá því í fjölmiðlum. Það frv. hefur ekki verið lagt hér á borð þingmanna svo ég veit nú ekki hvort það er réttnefni að kalla þær hugmyndir frv. enn þá. En hann mun þó hafa kynnt þessi drög að frv. fyrir stjórnarflokkunum. Lýðræðishugsunin er nú ekki meiri en svo í hæstv. ríkisstjórn að stjórnarflokkunum er kynnt frv. um jafnmikilvægt efni, það kynnt í fjölmiðlum, án þess að stærsta þingflokknum sé svo mikið sem sýnt þetta mál. Hvað sem um það er þá vonast ég auðvitað til að sem flestar af þeim hugmyndum sem hér eru inni í þessu frv. séu inni í stjfrv. Ég veit að það eru góðir fagmenn sem hafa farið höndum um það mál, ég efa það ekki. Og ég vek athygli á því að sjálfstæðismenn hér á hv. Alþingi hafa flutt fleiri mál sem þetta varðar og þær hugmyndir sem fjölskyldumálefnanefndin lagði til. Þar vil ég nefna mál sem hv. 6. þm. Reykn. flutti í Ed. og hefur flutt þing eftir þing og fjallar um skólaráð sem á að festa í lögum nánara samstarf foreldra og skóla. Svo og vek ég athygli á þeirri þál. sem vísað var til ríkisstjórnarinnar í fyrra. 1. flm. hennar var hv. 2. þm. Reykv. Ég hef ástæðu til að ætla, þar sem ekki var annars getið í þessum útvarpsfréttum sem ég heyrði og voru um hugmyndir hæstv. menntmrh., að þessar hugmyndir séu inni í hans frv. og vil a.m.k. trúa því þangað til annað reynist réttara.
    En til þess að árétta þessa stefnu okkar flyt ég þetta frv. og hv. Alþingi á þá kost á því að

samþykkja það ef hæstv. ráðherra skyldi nú ekki leggja fram frv. um sama efni.