Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir:
Herra forseti. Það vill nú svo til að hv. 3. þm. Reykv. var hér að fjalla um mál sem alltaf hefur verið mitt hjartans mál, grunnskólann. Að almennilega og vel sé að honum staðið. Ég tel það hafa mikla þýðingu fyrir hvern nemanda að í grunnskólanum sé vel að honum búið og að hann fái alla þá fræðslu sem möguleg er. Því miður held ég að þessu hafi verið mjög ábótavant víða. Ég held að sá nemandi, og hef reyndar fylgst með því og hef kynni af því að sá nemandi sem t.d. er á eftir hann fær alls ekki þá leiðsögn sem hann þarf, það er langt frá því.
Nú lifum við í þjóðfélagi þar sem alltaf er verið að tala um tækni og alls konar framfarir, tæknivísindi og alls konar framfarir, en þetta höfum við vanrækt skammarlega.
Ég fylgdist fyrir nokkrum árum síðan með dreng sem fór ekki einungis í gegnum grunnskóla heldur líka í gegnum unglingadeild, alltaf á núlli. Ég þekkti þennan dreng, hann var ekkert vangefinn, hann fékk bara ekki neina hjálp. Hugsið þið ykkur hvernig framtíðin blasir við svona ungmenni. Ég hef heyrt núna síðustu árin til tveggja Íslendinga sem eru nú alþjóð kunnir, annars vegar Bubba Mortens hins vegar Bjarna Dags. Þeir sögðu báðir frá því þessir menn að þeir flæmdust úr skóla af því að þeir voru haldnir einhverri lesblindu. Þeir voru bara sagðir latir, ódælir og ómögulegir, enginn veitti þeim hjálp.
Nú hef ég alveg síðustu árin fylgst með dreng sem á við svipuð vandkvæði að stríða. Hann fær enga hjálp. Ég veit það að foreldrar hans hafa verið mjög vakandi yfir þessu og hafa reynt verulega mikið til að fá hjálp, þau fá hana ekki. Svo sé ég að hér stendur í grunnskólalögunum, 38. gr.: ,,Fyrir hverja bekkjardeild eða námshóp í grunnskóla skal skólastjóri velja umsjónarkennara. Hann fylgist sérstaklega með námi nemenda sinna og þroska, leiðbeinir þeim og hefur samband við forráðamenn þeirra.`` Nú langar mig til að fá svar við því ef einhver veit. Hefur þessu verið framfylgt? Er þessi umsjónarkennari til í öllum skólum? Og ef svo er hvernig uppfyllir hann þá sínar skyldur? Það hlýtur þá að vera skylda hans að fylgjast með í svona tilfellum.
Í síðustu málsgr. um þessa umsjónarkennara segir: ,,Nefndin telur nauðsynlegt að staða umsjónarkennara við 7.--9. bekk verði styrkt. Þeim tilmælum er því beint til menntmrh. að mál þetta verði tekið til sérstakrar umfjöllunar í samstarfi foreldra, kennara og fræðsluyfirvalda.`` Þetta er alveg eins og talað út úr mínu hjarta. Og ég legg þá ríka áherslu á það að verði orðið við þessum óskum, þá sé sá ágæti maður sem tekur þetta að sér svo ábyrgur að hann sjái um að enginn týnist úr í bekknum.
Ég vil taka það fram að ég hef ekki lesið þetta frv. með grunnskólalögunum og er bara ekki nógu kunnug því, en þó að það yrði ekki til annars en að betur yrði staðið að þessum málum er það allrar athygli vert.