Lára V. Júlíusdóttir:
Virðulegi forseti. Ég vil leyfa mér að koma inn í umræðuna þar sem hér er verið að fjalla um mál sem fjölskyldunefnd vann að á sínum tíma. Það vildi svo til að ég átti sæti í þessari ágætu nefnd. Nefndin átti að fjalla um ýmislegt til viðbótar því sem hún fjallaði um. Hún skilaði áfangaskýrslu sinni í lok fyrsta starfsárs og sú áfangaskýrsla fjallaði um dagvistarmál og skólamál. En mikilsverðir flokkar urðu út undan, flokkar eins og lífeyrismál og tryggingamál sem nefndinni var falið að fjalla um í skipunarbréfi. Því miður var fjölskyldunefnd ekki vakin til lífsins á ný eftir að stjórn Steingríms Hermannssonar tók við haustið 1988.
Ég er afskaplega ánægð með að sjá nokkrar af hugmyndum fjölskyldunefndar komnar hér á blað í frumvarpsform. Eins og nefndin fjallaði um málið og skilaði af sér, þá lagði hún mesta áherslu á lengingu skóla yngstu barnanna. Það var lagt út með það sjónarmið að grunnskólanemar ættu a.m.k. kost á sex klukkustunda dvöl í skóla á dag. Og eins og fyrri ræðumenn hafa rakið hér þá er þetta ekki síst mikilvægt fyrir fjölskylduna í heild sinni vegna þeirrar staðreyndar að konur hafa verulega aukið þátttöku sína á vinnumarkaði. Svo var komið árið 1986 að 84% giftra kvenna voru með atvinnutekjur. Þetta þýðir að það umhverfi sem skólabörn alast upp við er þannig að mæðurnar eru ekki heima á heimilunum, þær eru útivinnandi. Þess vegna eru þau markmið sem sett eru fram í áliti fjölskyldunefndar um lengingu skólavistar og samfelldan skóladag og skólaathvörf afar brýn og í rauninni má furðu sæta að þessum málum hafi ekki verið skipað með lögum og þau færð til betri vegar fyrr en þá umræðan er komin á þetta stig nú.
Það sem var rætt um í nefndinni var ekki bara lenging skóladagsins, heldur líka lenging skólaársins. Það sem vakti athygli okkar þegar við
fórum að rýna í upplýsingar, tölur sem við fengum víða að af landinu, að aðeins 75% barna í landinu búa við níu mánaða skólaár. Þegar við vorum að tala um lengingu skólaársins vorum við fyrst og fremst að tala um samræmingu á skólaárinu yfir landið, þ.e. að tryggja að þau 25% barna sem búa ekki við níu mánaða skólaár fái notið lengds skólaárs.
Það var annað sem við höfðum verulegar áhyggjur af og kemur alltaf upp í umræðunni þegar konur ræða um skólann og vandamál tengd skóla. Það eru fríin sem gefin eru í skólanum, skólafríin sem eiga sér stað á vinnudögum, á virkum dögum. Þetta er sérstaklega slæmt varðandi yngstu börnin, sex, sjö, átta og níu ára börnin. Það er verið að gefa frí vegna páska, vegna jóla, vegna öskudags og slíks. Þessi frí eiga sér langa hefð í íslenskum skólum eins og við vitum öll. En þá daga sem þessi frí eru gefin þurfa vinnandi foreldrar að gera ráðstafanir vegna barna sinna. Þetta er kannski í lagi einn og einn dag en ég taldi þessa daga saman eitt vorið hjá mér, þar sem ég var með tvö ung börn í skóla. Þeir dagar sem börnin mín voru í fríi frá janúar fram til 23. maí, en ég í vinnu þennan tíma,
voru sautján talsins þetta vorið og það er ekki lítill tími. Það er ekki lítið mál að þurfa að koma börnunum sínum fyrir annars staðar sautján daga eitt vor.
Ég sé að hér eru 4. og 5. gr. sem fjalla um heimild til að reka einkaskóla og heimild menntmrn. til að löggilda grunnskóla eða hluta grunnskóla. Ég kannast ekki við þessar greinar eða þessa umræðu úr fjölskyldunefnd og vil gjarnan fá nánari skýringar á þessu hjá hv. flm. en ég lýsi yfir ánægju minni með að sjá þessum málum hreyft hér og hlakka vissulega til að sjá frv. ráðherrans þegar það kemur síðan fram.
Það má nefna það hér að þau mál sem fjölskyldunefnd hefur hreyft við koma e.t.v. til með að verða að lögum á næstunni vegna þess að menntmrh. hefur bæði lofað frv. um lengingu grunnskólans og eins er verið að vinna í leikskólamálum og þar fer væntanlega eitthvað að skýrast á næstu vikum skulum við vona. En það sem maður vildi gjarnan sjá eru meiri tengsl leikskólans og grunnskólans, þ.e. meiri samfella í menntun barna frá því að þau fara að ganga menntaveginn.