Stofnun og slit hjúskapar
Miðvikudaginn 25. október 1989


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum nr. 60/1972, um stofnun og slit hjúskapar, sem liggur hér fyrir á þskj. 52. Skv. 44. gr. 1. málsgr. laga nr. 60/1972 um stofnun og slit hjúskapar verður hvorki skilnaður að borði og sæng né lögskilnaður veittur nema leitað hafi verið um sættir með hjónum, og á sáttatilraun að hafa átt sér stað á síðustu sex mánuðum. Gegnir hér einu hvort skilnaðar er leitað hjá valdsmanni eða dómsmrn. eða dómstólum. Skv. þessu ákvæði leitar sáttanefnd um sættir, ,,ef bæði fara fram á það eða hvort heyrir til sínu trúfélagi``. Endranær leitar prestur eða forstöðumaður trúfélags um sættir með þeim.
    Með lögum nr. 28/1981 voru sáttanefndir lagðar niður. Eftir það hafa hjón leitað til presta í þessu efni. Dómsmrn. telur þetta fyrirkomulag óviðunandi og rétt sé og skylt að tveggja kosta sé völ, sátta hjá presti eða forstöðumanni trúfélags og svo hjá borgaralegu yfirvaldi.
    Sifjalaganefnd vinnur að heildarendurskoðun laga nr. 60 frá 1972. En þar sem nokkurn tíma mun taka að ljúka því verki telur dómsmrn. nauðsyn bera til þess að breyta 44. gr. 1. mgr. laga nr. 60/1972, sem yrði þó aðeins til bráðabirgða.
    Hér er lagt til að valdsmaður leiti um sættir í stað sáttanefndar, þ.e. bæjarfógetar og sýslumenn, yfirborgardómari og borgardómarar í Reykjavík og lögreglustjórinn á Keflavíkurflugvelli, en auk þess eftir venju og lögum héraðsdómarar, þar sem þeir starfa, og löglærðir fulltrúar þeirra embættismanna sem nefndir voru. Dómsmrn. fer ekki með störf valdsmanna í þessu sambandi. Að því er varðar heimild hjóna til að leita atbeina valdsmanns, þá er sú breyting fólgin í frumvarpstextanum að þess er getið sérstaklega að þetta eigi við ef hjón standa utan trúfélaga. Er þar lagt til að fræðileg skýring á ákvæði 44. gr. 1. mgr. sé lögfest.
    Þar sem hér er aðeins stofnað til breytinga á 44. gr. laga nr. 60/1972 til bráðabirgða er frv. einskorðað við óhjákvæmilega breytingu á 1. mgr. greinarinnar. Bíður heildarendurskoðun greinarinnar eftir frv. sem sifjalaganefnd vinnur að, svo sem áður greinir.
    Ég vil, hæstv. forseti, leggja til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og allshn.