Stofnun og slit hjúskapar
Miðvikudaginn 25. október 1989


     Unnar Þór Böðvarsson:
    Hæstv. forseti. Hv. þingmenn. Mig langaði að gera örstutta athugasemd við þessa breytingu á frv. til laga um stofnun og slit hjúskapar. Það er talað um í þessari brtt. að áður en mál er höfðað til skilnaðar að borði og sæng eða lögskilnaðar eða beiðst er leyfis til skilnaðar að borði og sæng eða lögskilnaðar skal leita um sættir með hjónum og kanna grundvöll að áframhaldandi sambúð. Prestar leita um sættir með hjónum eða löggiltir forstöðumenn trúfélaga. Nú er annað eða bæði hjóna utan trúfélaga og eða hvort heyrir sínu trúfélaginu og má þá yfirvald leita um sættir.
    Það er við þetta orðalag sem mig langar til að gera athugasemd. Það er þegar hjón sem hafa valið þann kost í upphafi sambúðar að hafna því að prestur vígði þau eða sem sagt ef þau hafa verið gefin saman af borgaralegu yfirvaldi. Þá held ég í mörgum tilvikum að þau vildu frekar að borgaralegt yfirvald sneri sér að þessum þætti. Til þess að fullnægja þeirri viðleitni að gera þessi lög réttlátari og einfaldari held ég að þarna mætti bæta við til þess að koma til móts við þetta fólk að fólk hefði völ um það hvort það leitaði til presta eða borgaralegs yfirvalds, þó svo það væri í sama trúfélagi, þó svo það væri innan þjóðkirkjunnar. Ég vona að það komi skýrt fram sem ég er að tala um.