Atvinnumálanefndir
Fimmtudaginn 26. október 1989


     Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
    Virðulegi forseti. Ég hef á þskj. 10 leyft mér að bera fram til hæstv. forsrh. fsp. um atvinnumálanefndir. Fyrirspurnin er svohljóðandi:
    ,,1. Hverjir eiga sæti í atvinnumálanefndum sem skipaðar hafa verið á þessu ári af forsrh. og hagstrh.?
    2. Hvert er verksvið þessara nefnda hvorrar um sig og hvenær er þeim ætlað að ljúka störfum?``
    Fyrirspurnin er fram borin til þess að fá það hér fram á Alþingi hvernig verkaskiptingu er hagað milli þeirra nefnda sem skipaðar hafa verið í þennan málaflokk af hæstv. ríkisstjórn, svo og hverjir skipa nefndirnar. Hér er um að ræða málefnasvið sem margir hafa áhyggjur af, bæði litið til skamms tíma og lengri tíma, þ.e. atvinnuþróun í landinu og það vaxandi atvinnuleysi sem gert hefur vart við sig nú að undanförnu. Það kemur fram í yfirliti um atvinnuástand frá vinnumálaskrifstofu félmrn. að í septembermánuði voru 33 þús. atvinnuleysisdagar á landinu öllu. Þeir skiptust þannig að hjá konum voru skráðir 18.400 atvinnuleysisdagar en hjá körlum 14.400, sem sagt verulega meiri hjá konum og gildir það um flest svæði á landinu.