Atvinnumálanefndir
Fimmtudaginn 26. október 1989


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Virðulegi forseti. Spurt er um tvær atvinnumálanefndir sem nýlega hafa verið skipaðar. Aðra nefndina skipaði ég og er það samkvæmt samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins sem gert var 30. apríl sl. og var liður í samkomulagi um kaup og kjör sem gert var við ríkisstjórnina í tengslum við hina almennu kjarasamninga. Þar var farið fram á að skipuð yrði svonefnd atvinnumálanefnd tilnefnd af þessum aðilum, þ.e. Vinnuveitendasambandi Íslands og Vinnumálasambandi samvinnufélaganna, þrír samtals frá þeim og þrír frá Alþýðusambandi Íslands, einn frá Sambandi ísl. sveitarfélaga og fimm fulltrúar tilnefndir af ríkisstjórninni.
    Þessari nefnd er ætlað allvíðtækt verkefni og reyndar heimilt að skoða alla uppbyggingu atvinnumála sem hún kýs. En meginverkefni nefndarinnar er að fjalla um ástand og horfur í atvinnumálum og gera tillögur um atvinnuuppbyggingu til lengri tíma og jafnframt að fjalla um ástand og horfur á næstu missirum og gera, ef þörf krefur, tillögur til úrbóta. Kemur þá að því sem hv. fyrirspyrjandi sérstaklega nefndi að við höfum áhyggjur af hugsanlega vaxandi atvinnuleysi á næstu mánuðum og teljum því afar mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins, bæði fulltrúar vinnuveitenda og Alþýðusambands Íslands, komi að þeim málum.
    Í stærri nefndinni eiga sæti Árni Benediktsson, formaður Vinnumálasambands samvinnufélaga, Birgir Árnason, aðstoðarmaður viðskrh., Birgir Gunnarsson, varaformaður Vinnuveitendasambands Íslands, Gunnar Hilmarsson, framkvæmdastjóri Atvinnutryggingarsjóðs útflutningsgreina, Hilmar Karlsson vélstjóri, Hólmgeir Jónsson, framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands, Már Guðmundsson, efnahagsráðunautur fjmrh., Sigurður J. Sigurðsson, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, Snær Karlsson, framkvæmdastjóri Verkalýðsfélags Húsavíkur, Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambands Íslands, Örn Friðriksson, varaforseti Alþýðusambands Íslands og Þorsteinn Ólafsson, ráðgjafi forsrh. í efnahags- og atvinnumálum, sem jafnframt er formaður nefndarinnar.
    Nefndin hefur hafið sitt starf.
    Eins og þingheimi er kunnugt þá var ráðherra Hagstofu Íslands falið að undirbúa stefnu í atvinnumálum með tilvísun til þess samkomulags í stjórnarsáttmála að leggja áherslu á aukinn hagvöxt á næstu mánuðum og missirum og snúa við þeirri þróun sem nú hefur verið. Hæstv. ráðherra Hagstofu hefur skipað sér til ráðuneytis starfshóp sem í eiga sæti Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Sambands veitinga- og gistihúsa, Geir A. Gunnlaugsson
framkvæmdastjóri, Grímur Valdimarsson forstjóri, Kristján Ingvarsson verkfræðingur, Jón Sigurðsson framkvæmdastjóri, Jörgen Hólm kaupsýslumaður.
    Spurt er um hvaða tíma nefndir þessar hafa til starfa. Það er ekki nákvæmlega skilgreint en þó segir um þá fyrri nefnd sem ég nefndi áðan og ég hef

skipað, sem ég vil taka fram að starfar einnig í nánu samráði við ráðherra Hagstofu Íslands og eins og hann kýs þá menn sem hann hefur kallað sér til ráðuneytis, um þá nefnd segir: ,,Nefndin skal skila áfangaskýrslu til ríkisstjórnarinnar eftir því sem hún telur æskilegt. Endanlegar tillögur hennar skulu liggja fyrir fyrir mitt árið 1990.``
    Ég vona að ég hafi svarað þessum fyrirspurnum en hæstv. ráðherra Hagstofu Íslands getur að sjálfsögðu bætt við upplýsingum um þá nefnd sem hann hefur skipað sérstaklega.