Hagstofuráðherra (Júlíus Sólnes):
Virðulegur forseti. Þessi athugasemd kvennalistaþingkvenna er að nokkru leyti réttmæt og ég get að mörgu leyti tekið undir með því sem hér kom fram hjá hv. þm. Kvennalistans að það er óeðlilegt að konur hafi ekki sín áhrif í mótun atvinnustefnu landsmanna. Það er alveg hárrétt sem kom fram að konur hafa margar góðar hugmyndir og það er mjög mikilvægt að þeirra hugmyndir komi fram í vinnu sem þessari. Mér er mikil ánægja að skýra frá því hér að Erna Hauksdóttir sem er framkvæmdastjóri Sambands veitinga- og gistihúsa hefur góðfúslega fallist á að hefja störf með okkur í nefnd þeirri sem ég hef skipað mér til ráðuneytis til þess að fjalla um atvinnumál og vænti ég mér mikils af samstarfi við hana í framtíðinni.