Atvinnumálanefndir
Fimmtudaginn 26. október 1989


     Stefán Valgeirsson:
    Virðulegi forseti. Ég ætla nú ekki að ræða mikið þetta mál en eins og fram hefur komið er þessi nefnd skipuð með tilnefningu, þ.e. allir þeir sem tilnefndu hafa tilnefnt á þennan veg sem hér kemur fram og það er sök bæði mín og annarra sem gerðu það. En málið er ekki svona einfalt. Það sem ég vil segja er að það ætti að reyna að fá einhverjar tillögur frá þeim stöðum þar sem atvinnuleysið er mest, þær tillögur þyrftu að berast til þessarar nefndar. Og einmitt þeir að mynda líka hópa til þess að gera tillögur um að bæta ástandið þannig að það kæmu hugmyndir fram til þessarar nefndar sem er að vinna í þessum málum og marka þessa stefnu til næstu ára. Ég vonast til þess að þar sem konur eru í meiri hluta í þessum byggðum þá verði þær í meiri hluta í þessum nefndum.