Stefán Valgeirsson:
Virðulegi forseti. Það er þannig í landbúnaði nú síðustu árin að menn fara ekki þar í framkvæmdir nema ástandið sé þannig að þeir séu neyddir til þess. Og þegar þeir gera sínar áætlanir, þá gera þeir ráð fyrir því að fá lögboðin framlög á réttum tíma. Þess vegna er það mjög bagalegt að það skuli dragast að inna þessar greiðslur af hendi lögum samkvæmt, menn hljóta að treysta á það. Og eins og ástandið er í þjóðfélaginu, þá eru ýmsir í miklum vandræðum út af þessu máli. Þess vegna vil ég beina máli mínu til hæstv. ráðherra að hann geri það sem í hans valdi stendur til þess að þessum greiðslum sé hraðað. Að vísu hef ég komið athugasemd minni til fjmrh. í þessu efni.