Egill Jónsson:
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrirspyrjanda fyrir að hafa hreyft þessu máli og samgrh. fyrir greið og góð svör. Það er afar þýðingarmikið að þessar skýringar skuli liggja hér fyrir. Hann tók fram eins og reyndar vitað var að flugmálaáætlunin var vel undirbúin og allar alþjóðlegar kröfur miðað við stærð flugvalla voru þar lagðar til grundvallar. Það er líka mikið ánægjuefni að heyra yfirlýsingu ráðherrans um framtíð Egilsstaðaflugvallar og að það skuli nú liggja fyrir að sú áformaða framkvæmd sem sérstaklega hefur verið merkt núna inn á fjárlög sé talin ein sú hagkvæmasta til þess að styrkja flugsamgöngur um landið.
Þetta þykja mér góð tíðindi, ekki síst vegna þess að það liggur þegar orðið fyrir að mikill áhugi er á beinu flugi frá Evrópu til Austurlands þegar Egilsstaðaflugvöllur verður til þess bær. Erlendar ferðaskrifstofur eru þegar farnar að kanna leiðir til þess að geta hafið slíkt flug, þannig að með uppbyggingu Egilsstaðaflugvallar skapast algjörlega ný viðhorf, t.d. í ferðamálum á Austurlandi. Þess vegna er það ánægjuefni að hér skuli liggja fyrir að sérstaklega verði tekið til við það að bæta flugskilyrði þar eystra og þannig að sjálfsögðu stuðlað að því að þar geti orðið góð flughöfn í framtíðinni.