Erfiðleikar í loðdýrarækt
Fimmtudaginn 26. október 1989


     Fyrirspyrjandi (Halldór Blöndal):
    Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans svar svo langt sem það náði, en það náði að vísu ekki langt. Það kom sem sagt skýrt fram að það liggur ekki fyrir hvernig ríkisstjórnin hyggist bregðast við vanda loðdýrabænda. Um það hafði hæstv. ráðherra ekkert að segja.
    Ég tek undir það sem hv. 4. þm. Austurl. sagði áðan um að það er rangt hjá ráðherra að ekki hafi verið gengið að bændum. Það er meira að segja svo að ríkissjóður hefur gengið að bændum nú í sumar og á þessu hausti og tekið framleiðslutæki af loðdýrabændum þannig að það er ekki einu sinni svo að hæstv. ríkisstjórn hafi sýnt sama langlundargeð og hún ætlast til af öðrum sem í hlut eiga, opinberum sjóðum og bönkum og er auðvitað óhjákvæmilegt annað en skilja orð hæstv. ráðherra svo að hann muni kippa því í liðinn þar sem svo stendur á og sjá um að ríkissjóður sýni sama langlundargeðið í sambandi við skuldamál loðdýrabænda og aðrir aðilar og er nauðsynlegt að það komi skýrt fram.
    Ég sé svo, hæstv. forseti, ekki ástæðu til þess að lengja þetta. Ég legg áherslu á að það er nauðsynlegt að fá málið inn í þingið undir eins, ekki eftir nokkrar vikur eða mánuði heldur undir eins. Þetta fólk hefur beðið mjög lengi og það er miklu betra fyrir þetta fólk að fá strax úrskurð um að það verði að hætta þessum rekstri, og þá lýsa yfir gjaldþroti eftir atvikum, heldur en hanga svona á horriminni og verða svo að gefast upp eftir nokkra mánuði. Það er miklu, miklu betra að þessu stríði linni og fólkið viti hvar það stendur.