Fjárlög 1990
Fimmtudaginn 26. október 1989


     Friðjón Þórðarson:
    Virðulegi forseti. Nú er til umræðu frv. til fjárlaga fyrir komandi ár, 1990. Það er jafnan eitt viðamesta mál þingsins og á miklu veltur að fjárlagagerð sé vel undirbúin af ríkisstjórn og ráðamönnum hennar. Þjóðhagsáætlun fyrir árið 1990 var lögð fram af forsrh. á öðrum degi þingsins. Það er ljóst að erfið skilyrði þjóðarbúsins setja mark sitt á hvort tveggja í senn, fjárlagafrv. og þjóðhagsáætlun. Miklar sveiflur einkenna íslenskan þjóðarbúskap og hefur svo verið frá öndverðu. Þeir sem gerst reyna að rýna inn í framtíðina af lærdómi og reynslu telja að þunglega horfi um margt á næsta ári. Í þeim horfum felst að næsta ár verði þriðja samdráttarárið í röð í íslenskum þjóðarbúskap svo sem oftlega er komist að orði. Sé því hér um að ræða lengsta skeið undanhalla í þessum efnum allt frá árinu 1950.
    Á þessu ári er landsframleiðsla talin verða um 3% minni en á síðasta ári og þjóðartekjur lægri sem nemur 4,5%, en þjóðarútgjöld eru talin dragast saman um 5,5%. Samkvæmt þessari spá verður viðskiptahallinn 8,6 milljarðar kr. á þessu ári en nam 3,7% á landsframleiðslu í fyrra. Verðbólga frá upphafi til loka þessa árs stefnir í 25% eins og á síðasta ári.
    Í inngangi að athugasemdum við fjárlagafrv. segir m.a. að við þessar aðstæður sé enginn annar kostur en að laga þjóðarútgjöld að minni þjóðartekjum. Markmið fjárlaga verði að skoða í ljósi þess ástands sem ríki í þjóðarbúskapnum.
    Er meta skal kosti og galla þessa frv. er sjálfsagt á margt að líta því að slík frv. eru undin saman úr mörgum þáttum. Fyrst má nefna það að gert er ráð fyrir að hallinn á fjárlögum næsta árs, þ.e. mismunur tekna og gjalda, verði hátt í 3 milljarða kr. Það er ekki áhyggjuefni út af fyrir sig þó að þetta frv. sé lagt fram með tekjuhalla ef aðeins væri um þetta eina ár að ræða eða svo. En nú er bent á að samfelldur hallarekstur hafi verið á ríkissjóði frá árinu 1985. Verði því með engu móti unnt að koma honum fyrir kattarnef að þessu sinni. Á hinn bóginn hafi ríkisstjórnin sett sér það markmið að eyða halla ríkissjóðs á næstu 2--3 árum.
    Við þessu væri lítið að segja ef ætla mætti að þetta markmið næðist og hallinn væri rétt metinn. En sé hann vanáætlaður eða málum blandið með öðru móti kann vandinn að vaxa til muna. Hafa má hliðsjón af því sem gerst hefur á undanförnum árum. Frv. til fjárlaga fyrir árið 1989 var lagt fram með rúmum milljarði kr. í tekjuafgang. Fjárlög fyrir árið 1989 voru afgreidd með tekjuafgangi er nam tæpum 636 millj. kr. En nú þegar dregur að lokum fjárlagaársins 1989 stefnir hallinn í um það bil 5 milljarða kr.
    Fjárlagafrv. fyrir árið 1988 var lagt fram með 27 millj. kr. tekjuafgangi. Fjárlög þess árs voru afgreidd með 26 millj. kr. tekjuafgangi, að mig minnir. Lokaniðurstaða þess árs varð tekjuhalli er nam 7,5 milljörðum kr. Sé tekið mið af þessum tölum, þ.e. niðurstöðutölum áranna tveggja, 1988 og 1989, gæti lokahalli ársins 1990 hæglega mælst í milljörðum kr.

í tveggja stafa tölu. Með hliðsjón af þessu er varla ofmælt að útlitið sé allískyggilegt, veður öll válynd og brugðið geti til beggja vona með úrslit mála og árangur á næsta ári.
    Í inngangi að þjóðhagsáætlun fyrir komandi ár segir svo m.a., með leyfi forseta:
    ,,Þungamiðja þeirrar efnahagsstefnu sem ríkisstjórnin mun fylgja á næsta ári er að stuðla að bættri stöðu atvinnulífsins, bæði með aðgerðum á vegum stjórnvalda og á vegum atvinnuveganna sjálfra og treysta þar með atvinnuöryggi og lífskjör í landinu. Þetta verður fyrst og fremst gert með því að lagfæra rekstrarskilyrði með almennum aðgerðum jafnframt því sem ríkisstjórnin mun stuðla að skipulagsbreytingum og hagræðingu. Forsendur árangurs í þessum efnum eru að það takist að draga enn verulega úr verðbólgu og viðhalda því samræmi sem komist hefur á milli þjóðarútgjalda og þjóðartekna á þessu ári.``
    Um þessi markmið er ekki nema allt gott að segja, en þeim þarf að framfylgja með því að sýna viljann í verki því að gera verður ráð fyrir að sá vilji sé fyrir hendi í ríkum mæli.
    Að dómi forsrh., sem fram kom í stefnuræðu hans hér á Alþingi, nálgumst við Íslendingar nú botninn á þessu samdráttarskeiði. Þá mun vörn verða snúið í sókn. Þá mun vöxtur þjóðarbúsins hefjast á ný og þar fram eftir götunum.
    Það er dálítið erfitt að segja hvaða atriði séu helst einkennandi fyrir þetta frv. til fjárlaga. Það er margslungið og samanfléttað, heldur illt yfirferðar og gróðurvana með köflum, en öðrum þræði eru þessar leiðir kunnar með sömu krókum og kennileitum ár frá ári og óneitanlega kennir þar margra grasa ef vel er að gáð. Sé frv. flett og fjárveitingatölur skoðaðar og bornar saman við árið sem er að líða vekur athygli að fjárveitingar eru auknar allmjög til ráðuneyta en víða smátt skammtað til almennings og almannaþarfa. Útgjöld til fjmrn. hækka þannig um 35% milli ára. Þau nema 192 millj. kr. á fjárlögum 1989 en 259 í frv. til fjárlaga 1990. Með sömu viðmiðun hækka framlög til ríkisstjórnar um 43%. Til sendiráða og fastanefnda á vegum utanríkisráðuneytis hækka fjárframlög um 40% milli ára og um 69% til
þróunarmála og alþjóðastofnana þó að þessi hækkun sé ekki talin eftir. Það er annað mál.
    Á hinn bóginn hækkar heildarframlag til Landhelgisgæslu Íslands aðeins um 22%, svo að dæmi sé tekið, og til löggæslu um 24%. Sama heildarhækkun, þ.e. 24%, kemur í hlut allra embætta sýslumanna og bæjarfógeta landsins að meðaltali.
    Nú er það alkunna að þessi embætti eru útverðir ráðuneytanna allt um kring í byggðum landsins. Þar eru innheimtar tekjur á vegum hins opinbera í stórum stíl og sendar í ríkiskassann. Þar er varðstaða allan sólarhringinn hjá löggæslumönnum til sjós og lands sem verða að bregða við til hjálpar og aðstoðar hvenær sem kallið kemur og hvernig sem á stendur. Þeir geta ekki sagt sem svo: Ja, nú eru allar fjárveitingar því miður búnar sem okkur var ætlað að vinna fyrir á þessu ári, allir peningar búnir, svo að

við getum ekki sinnt þessu kalli.
    Ég er ansi hræddur um að slík svör þættu þunnar trakteringar af vörum löggæslumanna sem alltaf eiga að vera viðbúnir og viðbragðsfljótir á hverju sem gengur. Nú er svo komið að fé það sem ætlað var til löggæslu á þessu ári er víða þrotið eða að þrotum komið við embættin, enda ekki að furða þegar áætlanir sýslumanna um löggæslukostnað eru skornar niður um 40% eða meira af ráðamönnum hagsýslu- og ríkisfjármála eins og mér var tjáð í gær af einum sýslumanni sem veit fullvel hvað hann þarf mikið fé til að sinna þessum málum og gerir umbeðnar áætlanir eftir bestu samvisku. Við þessi umræddu embætti bæjarfógeta og sýslumanna eru eins og allir vita unnin fjölmörg störf í þágu almennings sem hinn almenni þegn þjóðfélagsins getur ekki án verið hvar sem hann býr á landinu og ríkisstjórn, hver svo sem hún er, fær ekki með nokkru móti verið án þó að ekki sé nema vegna þess að landsstjórnin lifir ekki stundinni lengur nema mikið fé streymi stöðugt inn í ríkiskassann. Það ætti því að vera mikið keppikefli hæstv. ríkisstjórnar að hlynna vel að þeim embættum og stofnunum sem ég hef nú minnst á, ekki síður en eigin ráðuneytum.
    Það er að sjálfsögðu ekki vinnandi vegur að minnast á nema örfá atriði sem snerta fjárlagafrv. og undirbúning þess hér við 1. umr., enda eiga margir aðilar eftir að koma þar við sögu og fjalla um það, ekki síst fjvn. og
alþingismenn. Þar koma sjálfsagt mörg álitaefnin til umræðu og meðferðar. Nokkra þætti er þó rétt að minnast á til viðbótar með örfáum orðum því að af mörgu er að taka.
    Það er ekkert nýtt að eindregnar óskir séu settar fram um verulegar fjárveitingar til brýnna hagsmunamála og hugðarefna landsmanna. Engum ætti heldur að koma á óvart þó að ekki takist að uppfylla allar óskir og vonir sem vakna í þessum efnum. Þjóðin verður að fara sparlega með fé sitt og krefjast þess af ráðamönnum sínum að þeir noti hvert tækifæri sem gefst til þess að grynnka á erlendum skuldum. En séu valdhafar að predika um sparnað og berja sér í bak og fyrir þurfa þeir helst að sýna það sjálfir á einhvern hátt í verki og haga líferni sínu samkvæmt því. Og þeir sem reyna að spara og standa sig vel og fara eftir ráðleggingum hins opinbera þurfa að sjá það og finna að það sé einhvers metið.
    Það er mikið áhyggjuefni hvað framlög til opinberra framkvæmda hafa lækkað á liðnum árum og lækka enn og hvað ríkið stendur víða í óbættum sökum og hefur ekki staðið skil á sínum fjárhlut í skólabyggingum og öðrum mannvirkjum víðs vegar um land. Nefna má og í þessu sambandi sjúkrahús og heilsugæslustöðvar, bæði hvað varðar rekstur og uppbyggingu sem oft gengur hægar en skyldi þar sem um er að ræða eitt helsta öryggisathvarf í byggðum landsins. Með sama hætti mætti gera fjárveitingar til samgöngumála, vega, hafna og flugvalla, að sérstöku umræðuefni þó að svo verði ekki gert við þessa umræðu.
    Nú hefur verið lagt fram frv. til lánsfjárlaga fyrir

árið 1990. Ber að fagna því að svo miklu leyti sem það fyllir út í myndina af heildarfjárlagadæminu, en þar kveður við sama tón eða svipaðan og verið hefur, sbr. II. kafla þessa frv. Þar segir m.a., og það könnumst við raunar við: Þrátt fyrir ákvæði laga um Bjargráðasjóð skal framlag ríkissjóðs til Bjargráðasjóðs falla niður á árinu 1990. Þrátt fyrir ákvæði hafnalaga skal framlag ríkissjóðs til Hafnabótasjóðs eigi fara fram úr 20 millj. kr. á árinu 1990. Þrátt fyrir ákvæði laga skal framlag ríkissjóðs til Fiskveiðasjóðs falla niður. Þrátt fyrir ákvæði laga fellur niður framlag ríkissjóðs til Iðnlánasjóðs og þrátt fyrir ákvæði laga um skipulag ferðamála skal framlag ríkissjóðs til Ferðamálasjóðs og til sérstakra verkefna Ferðamálaráðs samkvæmt fyrrnefndum lögum eigi nema hærri fjárhæð en 36 millj. kr. á árinu 1990.
    Það er ástæða til þess að vekja sérstaka athygli á þeirri afgreiðslu sem ferðamálin fá í frv. til fjárlaga fyrir næsta ár þegar haft er í huga að í þeim málaflokki má þó greina helsta vaxtarbrodd nýrra búgreina í landinu.
    Þá er eftir að vita hvernig sveitarfélög landsins koma út úr verkaskiptum við ríkið samkvæmt lögum sem samþykkt voru á síðasta þingi. Sennilega ríða þau ekki öll akfeitum hesti frá þeim skiptum og mun full þörf á því að bæta úr sums staðar og endurskoða það sem gert hefur verið.
    Svo má og minna á Jöfnunarsjóð þeirra sem oft hefur verið grátt leikinn og skertur meira en góðu hófi gegnir á liðnum árum. Mun þarft og skylt að halda merki þessa sjóðs á loft nú þó að hann starfi við breytt skilyrði að lögum frá því sem verið hefur. En ekki sakar að lokum að vona að vel takist til í lengstu lög áður en allt er um seinan þó að skuggalega horfi um þessar mundir.