Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Vegna orða síðasta ræðumanns vil ég ítreka að á þessu ári hefur verið framkvæmd sú stefna að reyna að tryggja mjög bætta innheimtu á útistandandi skuldum og það er alveg ljóst að þær aðgerðir hafa borið verulegan árangur. Hann er auðvitað misjafn frá einu umdæmi til annars en í þeim nánast öllum hafa þessar aðgerðir borið verulegan árangur. Þær hafa líka notið stuðnings fjölmargra og ég veit af viðræðum við innheimtumenn að þeir hafa metið það mikils að fá slíkan stuðning.
Hitt er svo ljóst að það vandamál sem hér er sérstaklega til umræðu á sér langa sögu. Þessi sérstaki innheimtumaður, sýslumaður Húnvetninga, hefur um nokkuð langt skeið tíðkað það að láta ekki innheimtuna alla koma beint inn í ríkissjóð, heldur tekið sér ákvörðunarvald yfir ráðstöfun þess fjármagns sem ekki er í hans höndum. Eins og ég gat um áðan hefur fjmrn. gert athugasemd við það við dómsmrn. og mun ganga rækilega eftir því á næstunni að hér verði á breyting. Ef það gerist ekki er auðvitað alveg ljóst að fjmrn. verður að senda það erindi formlega til dómsmrn. að viðkomandi innheimtumaður sé ekki starfinu vaxinn.