Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Ég tel það góða venju sem komin er á að flytja málefni frá Vestnorræna þingmannaráðinu hingað inn á vettvang Alþingis eins og þeir þingmenn sem ráðið skipa og hafa skipað undanfarið hafa beitt sér fyrir. Ég tel fulla þörf á því, eins og fram kom í máli hv. síðasta ræðumanns, að íslensk stjórnvöld láti sig þessi efni meira skipta heldur en raun ber vitni og það sé því æskilegt að Alþingi taki afstöðu til málsins, fjalli um það á vettvangi utanrmn. og leiði sem best í ljós hvaða viðbrögð hafa orðið við einstökum ályktunum þingsins og einnig að tekið verði á þeim tillögum sem með beinum hætti snúa að Íslendingum, en vissulega eru það flestar samþykktir þessa þingmannaráðs sem varða allt svæðið og löndin öll.
Ég tek eftir því að hér er lagt til að árið 1992 verði sérstakt vestnorrænt ár með tilheyrandi fundarhöldum í löndunum þremur. Það er vissulega full ástæða til þess að hefja undirbúning að þeim málum sem á að helga þetta ár á svæðinu, jafnréttismálum, umhverfismálum og æskulýðsmálum, og einhver fjárveiting þarf til að koma fyrr en seinna til þess að hægt sé að haga undirbúningi þannig að árangur verði af þessari fyrirætlan, þessu vestnorræna ári.
Um einstakar tillögur sem hér eru birtar í fskj. mætti margt segja. Ég tek t.d. eftir varðandi fyrstu ályktunina sem snýr að ferðamálum og vestnorrænu ferðamálanefndinni að þar er beint tilmælum til stjórnvalda, einnig íslenskra, að veita fé næstu þrjú árin til ferðamálanefndarinnar, en hún hefur að undanförnu unnið ágætt starf og beitt sér fyrir ferðakaupstefnum sem hafa áreiðanlega orðið til þess að örva ferðaþjónustu, bæta úr ýmsu sem snýr að ferðaþjónustu og vekja athygli á þessum löndum í því sambandi. En fleira þarf til að koma en kynningarstarf. Það þarf einnig að koma áætlanagerð og markaðsrannsóknir og auðvitað aðgerðir til þess að lönd þessi þoli ferðamannastraum og aukið álag í ferðamálum, og það snýr ekki síður að Íslandi en öðrum löndum.
Í sambandi við fyrri ályktanir sem minnt er á í yfirlýsingu í lok grg. með till. á fylgiskjali, þá er þar vikið að áhyggjum Vestnorræna þingmannaráðsins vegna hernaðarumsvifa á Norður-Atlantshafi og skorað á stjórnvöld að beita sér í þeim málum. Um það efni liggur hér fyrir í Sþ., og er raunar enn til umræðu og ekki komin til nefndar, tillaga um kjarnorkuafvopnun á norðurslóðum sem varðar þetta mál sérstaklega. Við skulum vona að þingið taki á málinu og ýti við stjórnvöldum sem hafa þó sýnt áhuga á því í orði a.m.k. að tekið verði á hernaðarumsvifum á hafsvæðum á Norður-Atlantshafi og í grennd við Ísland.
Varðandi mengunarhættuna sem stafar af hernaðarumsvifum þá hefur athygli okkar verið beint að máli sem hér var rætt á Alþingi í hittiðfyrra og ályktað um á þinginu þann 8. febr. 1988, þar sem
voru ráðagerðir sem þá voru uppi um kjarnorkuendurvinnslustöð í Dounreay á Skotlandi.
Við höfðum vænst þess að það mál væri raunar úr sögunni. Upplýsingar komu fram um það í fyrra að búið væri að kistuleggja áformin um uppbyggingu stórrar endurvinnslustöðvar fyrir úrgang frá kjarnorkuverum á þessum stað. Hafði það vakið verulega athygli og við þökkuðum þann árangur m.a. þeim mótmælum sem höfðu komið fram á Íslandi en einnig á öðrum Norðurlöndum. En nú fáum við fréttir um það í síðustu viku að stjórnvöld á Bretlandseyjum hafi heimilað fyrir sitt leyti að undirbúningur færi fram og heimiluð væri bygging endurvinnslustöðvar fyrir brennsluefni kjarnaofna í þessari stöð í Dounreay.
Hér er afar stórt mál á ferðinni og alveg greinilegt að þarna þurfa allir aðilar sem hlut eiga að máli að sameinast um það að koma í veg fyrir þessi áform, a.m.k. að svo miklu leyti sem einhver hætta getur af þeim stafað fyrir umhverfi á norðurslóðum. Það sem þegar hefur verið gert af íslenskum stjórnvöldum nú síðustu daga til að mótmæla þessum áformum er góðra gjalda vert og þar skiptir máli að Alþingi tók eindregna afstöðu í þessu máli í ályktun 8. febr. 1988.
Ég innti eftir því á ferð minni í Noregi fyrir nokkrum vikum í umhverfismálaráðuneytinu norska, hvort eitthvað væri ráðgert í Dounreay svo þeir vissu, en þá höfðum við heyrt um það að verið væri að bora í berg þar til að kanna berglög vegna hugsanlegrar förgunar á kjarnorkuúrgangi. En skrifstofustjóri alþjóðadeildar umhverfisráðuneytisins í Osló upplýsti að þeir hefðu enga vitneskju um að þarna stæði eitthvað til frekar. Þessi ákvörðun breskra stjórnvalda nú alveg nýverið í þessu máli kemur því mjög á óvart satt að segja ofan í það sem áður hafði legið fyrir.
En ég ítreka það að lokum, virðulegur forseti, að starf Vestnorræna þingmannaráðsins er mikilvægt til þess að þingmenn úr þessum löndum beri saman bækur og taki á brýnum málum eins og þeir hafa reynt að gera en jafnnauðsynlegt er að stjórnvöld viðkomandi landa taki tillit til þessa starfs, þeirra ályktana sem þarna eru fram bornar sem margar hverjar eru veigamiklar eins og hér kemur fram og áður hefur legið fyrir.