Flm. (Friðjón Þórðarson):
Virðulegi forseti. Það kann að vera smáónákvæmni í grg., þar segir að þessi fundur hafi verið haldinn 14.--16. júní, en síðar er talað um ályktanir frá 13.--15. júní. Ég vil aðeins vekja athygli á þessu í tilefni af því að sannleikurinn er sá að það tognaði svolítið úr þessum fundi, þó að Færeyingar ættu í raun og veru alls ekki heimangengt vegna þeirrar stjórnarkreppu sem þar gekk yfir um þær mundir. Það fyrsta var að gestir okkar, einkum Grænlendingar, óskuðu sérstaklega eftir því að fá tækifæri til að vera hér á landi á þjóðhátíðardaginn 17. júní til að geta lært af Íslendingum hvernig eigi að halda þann dag hátíðlegan. Svo óskuðu þeir eftir því að fá að fara landveginn vestur til að sjá meira af landinu í stað þess að fljúga. Það voru margir sem lögðu hönd á plóginn við að taka vel á móti þessum gestum okkar, m.a. komu tveir ráðherrar, landbrh. og viðskrh., til Stykkishólms til að heilsa okkur og halda góða veislu. Að sjálfsögðu efndi bæjarstjórn Stykkishólms líka til ágætrar veislu. Loks forseti Sþ. í Hafnarfirði undir lokin. Og hæstv. samgrh. hélt okkur boð inni hér í Reykjavík á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Það viðraði ekki til þess að fljúga til Færeyja, þannig að allt varð þetta nú til þess að þessi fundur lengdist svolítið í báða enda, ef svo má segja, en ég held öllum til nokkurrar ánægju.
Að lokum vil ég svo þakka þeim hv. þingmönnum sem hér hafa tekið til máls og rætt vinsamlega um þessa tillögu.