Lánsfjárlög 1990
Þriðjudaginn 31. október 1989


     Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Ég vil í þessari 1. umr. um frumvarp til lánsfjárlaga segja nokkur orð, þar sem ég hef tekið sæti í hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar. En þar sem mér hefur ekki gefist nægilega langur tími til þess að kanna þetta mál vel, þá mun ég ekki hafa langa ræðu um það hér í 1. umr., en víkja betur að málinu síðar þegar það hefur verið athugað í nefndinni.
    Það er samt vert að geta nokkurra atriða og þá kannski fyrst þess sem vel hefur verið gert. Það er sannarlega ástæða til þess að nefna það að viðleitni hefur ríkt á undanförnum árum og t.d. í tíð núv. hæstv. fjmrh. til þess að skapa frekara aðhald í ríkisrekstrinum og taka fastari tökum það fjárlagadæmi sem við erum nú að ræða hluta af. T.d. hefur það gerst með því að flýta fyrir birtingu ríkisreikninga, einnig að fjáraukalög fyrir sl. ár og árið sem er að líða séu lögð fram. Enn fremur má nefna að Ríkisendurskoðun hefur nú eflst og vinnur í nánara samstarfi við Alþingi eftir að sú ákvörðun var tekin að hún skyldi heyra undir Alþingi. Starfsmenn hennar hafa farið yfir framkvæmd fjárlaga fyrri ára og gert ýmsar athugasemdir og vakið athygli á þeim þáttum sem þeim fannst þörf á að taka á og breyta. Það er þá einkum varðandi rekstur einstakra stofnana eða ef þeir telja fjárlagaáætlanir óraunhæfar eða að stofnanir haldi sig ekki innan þess ramma sem fjárlög setja.
    Fjvn. hefur einnig í smíðum starfsreglur sem eiga að setja skorður við þeim gífurlegu greiðslum umfram fjárlög sem verið hafa og fara sívaxandi. Von mun vera á frv. um þetta efni innan skamms. Alls þessa er vert að geta, því það horfir til bóta og er nýmæli. Sum þessi nýmæli eru núv. hæstv. fjmrh. að þakka, sum þeirra stafa af ákvörðunum sem voru teknar á fyrri árum. Í þessu frv. til lánsfjárlaga er, eins og í fjárlagafrv., boðaður mikill samdráttur sem hefur vitanlega alvarlegar afleiðingar víða úti í þjóðfélaginu. Það er sannarlega slæmt til þess að vita hve illa hefur spilast úr góðærum undanfarinna ára. Þegar síðustu lánsfjárlög voru rædd hér í deildinni talaði ég fyrir hönd Kvennalistans í því máli og ég man að þær umræður spunnust ekki síst um grundvallaratriði og um vinnubrögð við gerð lánsfjárlaga. Ef ég man rétt kom þar t.d. fram að flestir voru sammála því að ófullnægjandi, allsendis ófullnægjandi væri hve marklaust plagg frv. til lánsfjárlaga væri yfirleitt í raun. Það væri fyrst og fremst óskhyggjudæmi og stæðist sjaldnast samanburð við þann raunveruleika sem síðar kæmi á daginn. Og þrátt fyrir góða viðleitni og hreystiyrði hæstv. núv. fjmrh. við síðustu lánsfjárlagaumræðu þá voru þar vanáætlaðir rúmir 7 milljarðar kr. vegna ýmissa útgjalda ríkissjóðs og alls kyns kostnaðar sem ekki var gert ráð fyrir.
    Ég vil því leggja megináherslu á mikilvægi þess að fjallað sé um fjárlög og lánsfjárlög í sem mestu samhengi. Og þrátt fyrir góða viðleitni hæstv. ráðherra, sem ég hef getið um hér, a.m.k. að hluta, þá markast framsaga hans nú af óskhyggju einni og

nokkrum fagurgala. Mér finnst því miður ekki mikil ástæða til að ætla að vonir hans standist nú fremur en þær gerðu við síðustu lánsfjárlög. Það er langt frá því að Kvennalistinn sé sammála öllum þeim ráðstöfunum sem hæstv. ráðherra hefur í hyggju til þess að láta fjárlagadæmið sitt ganga upp.
    Það væri reyndar full ástæða til að ræða ýmsar þeirra ítarlega. Þó þær komi ekki beint við sögu hér þá eru þær málinu skyldar, t.d. sú ákvörðun að láta matarskattinn halda sér þrátt fyrir öll stóru orðin fyrr á tímum. Það væri líka ástæða að ræða hve lítilfjörlegar lagfæringar stjórnvöld treysta sér og hafa hugrekki til að gera til að mæta verulega íþyngjandi og alvarlegum rekstrarvanda margra heimila í landinu, ekki síst heimila þeirra fjölskyldna sem lægst hafa launin og flest eiga börnin.
    Mig langar til þess að skila því hér til hæstv. ráðherra við þessa umræðu, hæstv. ráðherra sem kennir sig við alþýðuna, að sterkustu skilaboðin sem kvennalistakonum bárust í fjölmörgum heimsóknum okkar á vinnustaði um allt land í sumar, og við fórum mjög víða, bæði um sumarið og aftur um haustið um alla landshluta, á fjölmarga vinnustaði. Sterkustu skilaboðin sem við fengum frá fólki almennt og þá einkum frá konum voru að rekstur heimilanna væri daglegt áhyggjuefni og verulegur vandi því að launin væru svo lág að þau dygðu ekki til framfærslu. Mest af öllu talaði fólk um það hve matarreikningarnir væru háir og skattbyrðin íþyngjandi, jafnvel af lágum launum sem reynt var að hækka með löngum og erfiðum vinnudegi. Jafnvel þó fólk reyndi að vinna yfirvinnu til að koma sér upp í 80.000 kr. í stað þess að vera í 50.000 kr. á mánuði, þá þurfti það að borga skatt af þeirri yfirvinnu, og gat samt ekki látið enda mætast eða ná saman. Þetta voru verulega alvarleg og þung skilaboð og ég kem þeim hér á framfæri því það er ekki víst að hæstv. ráðherra hafi haft tíma meðan hann var að reikna þetta dæmi sem hann er að kynna fyrir okkur nú til þess að fara út á land og fá skilaboð frá því fólki sem síðan þarf að fylla inn í þetta dæmi og í raun greiða rekstur þess.
    Það væri vissulega líka ástæða til þess að ræða sérstaklega ýmsar aðrar ráðstafanir eins og t.d. þá atlögu að sjálfstæði og sjálfræði Háskólans sem
hæstv. ráðherra hefur boðað. Það mál verðskuldar hins vegar sérstaka umræðu og ég mun ekki orðlengja það hér nú, en ég vona innilega að hæstv. ráðherra sjái sig þar um hönd því að þar er um atlögu að grundvallaratriði að ræða sem er sjálfsákvörðunarréttur Háskólans. Ég sagði áðan að ég tryði því tæpast að forsendur þessara lánsfjárlaga stæðust fremur en áður þrátt fyrir viðleitni til að taka á málum fastari tökum. Það er þá fyrst að ég vil vekja athygli á því að í forsendum fjárlagafrv. er gert ráð fyrir því að vextir hækki ekki en 6 milljarða lánsfjárþörf hlýtur að leiða til samkeppni um fé á lánsfjármarkaðnum svo að það er mikil bjartsýni að ætla að þetta leiði ekki til vaxtahækkunar. Að vísu er gert ráð fyrir greiðslum á lánum og afborgunum til ríkissjóðs þannig að nettólánsfjárþörfin yrði e.t.v. ekki nema um 3

milljarðar sem hagsýslan telur ekki að muni leiða til vaxtahækkunar. En í raun er þetta bara orðaleikur því að lánsfjárþörfin er hin sama og alls óvíst að greiðslur skili sér sem svarar 3 milljörðum. A.m.k. örugglega ekki allar.
    Síðan væri vel þess virði að velta fyrir sér réttmæti virkjanaframkvæmda almennt og það væri líka ástæða til að spyrja hvert framhaldið yrði í sambandi við lántökur og hvaða áætlanir hefðu verið gerðar innan ramma þessara lánsfjárlaga ef álverið í Straumsvík verður stækkað eða jafnvel annað álver byggt. Þrátt fyrir það að lokaákvarðanir hafi ekki verið teknar í málinu, þá hlýtur þó hæstv. ráðherra að hafa leyft sér eitthvert svigrúm ef til kæmi. Ég heyrði að vísu í útvarpinu í morgun að ráðherrar Alþb. hefðu fullyrt það á fundi í gærkvöldi að málið væri mun styttra komið heldur en heyrst hefði í fjölmiðlum. En það væri ástæða til að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hefði í raun ekki gert neinar áætlanir í þessum efnum.
    Síðan langaði mig að bera fram nokkrar spurningar og gera nokkrar athugasemdir um leið og ég fletti þessu frv. án þess að fara þó mjög ítarlega
út í efnisatriði þess hér við 1. umr. Það er þá í fyrsta lagi að í skýringum við 1. gr. er minnst á það að 30 millj. kr. séu ætlaðar til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar sem er nú ein stórsyndin í framkvæmdum á vegum ríkisins sem þessi fjmrh. að vísu ber ekki aðalábyrgð á, en væri vissulega þörf og full ástæða til að ræða hér allt það ævintýri. En ég hef eina ákveðna sérstaka spurningu til hæstv. ráðherra varðandi þessar 30 millj. kr. til að ljúka uppsetningu á listaverki við flugstöðina. Um hvaða listaverk er að ræða? Er hér um að ræða það listaverk sem hlaut 1. verðlaun og er eftir glerlistakonuna Rúrí eða er þar um eitthvert annað listaverk að ræða? Ég sé á borði mínu í dag að það er einmitt komin fsp. um þetta efni frá þingkonu Alþb. sem spyr þess sama.
    Síðan langar mig að spyrja um skýringu á athugasemd við 5. gr. Þar kemur skýrt fram stefna í sambandi við ríkisábyrgðir fyrir nýjum fjárfestingarlánum til hitaveitna, að þar skuli hemlað og haldið í böndin og þar eru nefndar Hitaveita Eiða, Bæjarveita Vestmannaeyja og annað. Hins vegar skilst mér að um 600 millj. kr. séu uppistaðan í einni aðallántökubeiðni sveitarfélaganna og eigi að renna til Hitaveitu Reykjavíkur. Eru þetta fjárfestingarlán? Fara þau til þess að gera við morknar, gamlar pípur sem eru að springa hér í eldri hluta borgarinnar og þarfnast mjög brýnnar viðgerðar eða er þeim ætlað að fara í eitthvert annað verkefni? E.t.v. uppi á Öskjuhlíð? Veit hæstv. ráðherra hvert þetta fé fer og hvort um er að ræða nýjar fjárfestingar til Hitaveitu Reykjavíkur eða ekki og hvort þá standast þær forsendur sem eru í athugasemdunum við 1. gr., hvort það er samræmi þarna á milli?
    Síðan verð ég að segja að í þessu frv. til lánsfjárlaga eru gamalkunnir draugar og undrar mig í raun hve máttvana gagnrýni alþýðubandalagsþingmanna hefur verið á undanförnum árum að þeir skuli nú ætla sér annað árið í röð með

forustu í fjmrn. að skerða tekjur Ríkisútvarpsins vegna aðflutningsgjalda af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum. Þetta er krafa sem þeir hafa borið hér fram mjög sterklega á undanförnum árum í umræðum um lánsfjárlög að Ríkisútvarpið sem hefur verulega skertar tekjur og hefur liðið fyrir skort á fjármagni að það skuli nú rúið þessum aðaltekjustofni sínum og hann látinn renna til ríkissjóðs.
    Ég verð einnig að lýsa áhyggjum mínum vegna skerðingar á fjárveitingum til Ferðamálaráðs, ekki síst vegna þess að á sama tíma og stjórnvöld eygja nýja atvinnumöguleika, sérstaklega á landsbyggðinni í aukinni ferðaþjónustu og uppbyggingu hennar, að þá skuli svo naumt skammtað til þess ráðs sem ætti að geta skipulagt stjórn þeirra mála því að hún hefur því miður ekki verið eins góð og skyldi. Sannarlega ekki hvað varðar samræmingu á milli auglýsinga og kynninga landsins í útlöndum og uppbyggingar þjónustunnar hér heima til að taka við því fólki sem hingað kynni að koma.
    Það eru margar aðrar athugasemdir sem ég vildi gera en ég ætlaði að hafa einungis stutt mál hér og mér gefst tækifæri til þess að kynna mér nánar ýmsa liði þessa máls við umfjöllun í nefndinni. Hins vegar er fjarskalega áberandi --- og ég má til með að segja hæstv. fjmrh. það þar sem ég er nýkomin af landsfundi Kvennalistans og þar voru að sjálfsögðu rædd mjög ítarlega þau vandamál sem steðja að konum í því karlstýrða þjóðfélagi sem við búum í, þar sem forgangsröðin, þar sem fjármunirnir eru í raun í höndum karlanna sem taka
allt of lítið tillit til þarfa kvenna, bæði inni á heimilunum og í atvinnulífinu. Allar þessar fjárveitingar sem hér er um að ræða! Hugsið ykkur bara hvað það eru fáar konur sem ráða stýringunni á þessu fjármagni, sem ráða úthlutuninni á þessu fjármagni og sem nokkurn tíma festa hendur á þessu fjármagni í búreikningum þjóðarinnar. Og hugsið þið ykkur bara --- við höfum nýlokið við að fjalla um fjárlögin og nú erum við að fjalla um lánsfjárlögin --- alla þá ómældu vinnu í þjónustu og framleiðslu sem fer fram inni á heimilum landsins og við njótum öll góðs af eða höfum gert á ævi okkar --- að engum skuli hafa hugkvæmst eða enginn skuli hafa haft ímyndunarafl til þess að setja eitthvað af þeirri vinnu og þeirri miklu verðmætasköpun inn í sameiginlega búreikninga þjóðarinnar. Er ekki kominn tími til að breyta þessari forgangsröð, að breyta þessu verðmætamati, að breyta þessum áherslum þannig að þetta sé ekki dæmigert óskhyggjuplagg sem stenst ekki raunveruleikann, ekki bara vegna þess að dæmið gengur ekki upp talnanna vegna, heldur vegna þess að stærðirnar endurspegla ekki veruleika þjóðarinnar. Þær endurspegla ekki daglegan veruleika helmings þessarar þjóðar og það bið ég hv. þm. að hugsa um.