Lánsfjárlög 1990
Þriðjudaginn 31. október 1989


     Halldór Blöndal:
    Hæstv. forseti. Það er búið að setja nýjar og mjög yfirgripsmiklar reglur um það hvernig mönnum sé heimilt að ganga hér um þingsali og þingganga. Ég tek eftir að það er æ algengara að ráðherrar hafa með sér svona einn, tvo, þrjá, fjóra hjálparkokka þegar þeir tala fyrir málum og ég sé að þeir hafa lagt undir sig hér annað hliðarherbergið. Þá væri kannski til athugunar hvort stjórnarandstaðan gæti fengið sams konar not af hinu.
    Ég vil segja út af ummælum hv. 3. þm. Vestf. um þingkonurnar að mér varð einu sinni á að segja kaupkona við þá miklu kvenréttindakonu og kvenhetju Ragnheiði O. Björnsson á Akureyri og hún tók heldur betur í mig og sagðist vera kaupmaður eins og hver annar þannig að það er náttúrlega undir smekk komið og kannski stolti hvort menn vilja heldur láta kalla sig þingmenn eða þingkarl og þingkonu. (Gripið fram í.) Ekki meira um það.
    Hæstv. forseti. Þetta frv. er í rauninni mjög einfalt. Þegar maður horfir yfir það sér maður að það er nú að gerast að erlendar skuldir fara vaxandi frá einu ári til annars eins og glöggt kemur fram í töflu sem fylgir þessum lánsfjárlögum. Þannig voru löng lán 40,4% af landsframleiðslu á árinu 1987, fóru upp í 41,3% á sl. ári, eru komin upp í 50,4% á þessu ári og eins og þessi lánsfjáráætlun liggur fyrir er búist við að erlend löng lán fari upp í 53,1% á næsta ári. Ef litið er á greiðslubyrði, þá hefur hún vaxið á sama tímabili úr 16,1% árið 1987, árið 1988 fer hún í 17,3%, í 19,8% á þessu ári og á næsta ári upp í 20,1%.
    Hæstv. fjmrh. talaði um það að þetta hefði ekki í för með sér að greiðslubyrðin mundi þyngjast og sagði að ekki mætti líta á þessar tölur einangraðar, heldur yrði að taka hliðsjón til þeirrar þróunar sem væri í þjóðfélaginu, hvort við horfðum fram á frekari samdrátt í þjóðfélaginu eða ekki, hvort atvinnuvegirnir væru á uppleið eða niðurleið.
    Nú liggur auðvitað beint við að fletta upp í þjóðhagsáætlun fyrir árið 1990 og þá kemur fram að frá árinu 1987 til ársins 1990, á fjögurra ára tímabili, hefur það gerst að þjóðartekjur hafa farið minnkandi frá einu ári til annars. Landsframleiðsla fer minnkandi frá einu ári til annars, þjóðarútgjöld fara minnkandi frá einu ári til annars. Ef við horfum til einkaneyslu, þá hefur hún líka minnkað um 5,7% á sl. ári, um 6,9% á þessu ári og um 3% á því næsta. Ef við á hinn bóginn horfum til samneyslunnar, þess sem hæstv. fjmrh. ráðstafar, kemur í ljós að það vex þótt allt annað minnki. Þannig óx samneyslan á sl. ári um 2,7% og hefur haldist óbreytt á þessu ári og horfur eru á að hún muni enn haldast óbreytt á því næsta.
    Síðan komum við að kaupmætti ráðstöfunartekna. Og það er kannski eðlilegt að hv. 3. þm. Vestf. Karvel Pálmason sjái ástæðu til þess að standa hér upp og komast svo að orði í sinni ræðu: Það er oft svo um þá sem komnir eru á toppinn að þeir skilja ekki sinn vitjunartíma. Í því samhengi sem hv. þm.

sagði þetta er ekki hægt að skilja orðin öðruvísi en svo að hann sé að beina því kurteislega til ríkisstjórnarinnar að segja af sér, enda sagði hann í sömu andránni að sá einn er vinur sem til vamms segir.
    Hvernig hefur svo kaupmáttarþróun orðið síðan Alþb. fór í ríkisstjórn? Kaupmáttur fór mjög vaxandi á árinu 1987, óx um 22,8%. Á árinu 1988 komst Alþb. í ríkisstjórn og stóð ekki á því að kaupmáttur ráðstöfunartekna minnkaði um 2,9%. Gert er ráð fyrir að hann minnki um 8,2% á þessu ári og því er spáð að hann minnki enn um 4,9% á því næsta. Þetta er í stuttu máli sú spegilmynd sem við blasir þegar maður horfir á ástandið í þjóðmálum og lánsfjármálum. Greiðslubyrði okkar Íslendinga af erlendum lánum fer vaxandi hættulega hratt frá einu ári til annars og það sem kannski er hættulegast í þessu efni er að á sama tíma sem erlendar lántökur vaxa svo hratt sem ég hef gert hér grein fyrir er því spáð á næsta ári að erlendar lántökur til einkafyrirtækja fari minnkandi. Því var spáð í lánsfjárlögum fyrir yfirstandandi ár að erlendar lántökur til atvinnufyrirtækja, ef undan eru skilin skip og flugvélar, yrðu 3,8 milljarðar kr. Nú eru horfur á að 3 milljarðar nægi til og því er spáð að þessi samdráttur í fjárfestingu einkafyrirtækja hér á landi haldi áfram að minnka á næsta ári og fari þá í 2,7 milljarða. Ég þarf auðvitað ekki að taka það fram að þegar við horfum nú yfir þjóðfélagið er fjárfesting í atvinnurekstri orðin hættulega lítil borið saman við það sem er í þeim löndum þar sem hagvöxtur er og batnandi gengi. Þessi erfiðu rekstrarskilyrði atvinnuveganna koma víða fram. Þau koma m.a. fram í fjárlagafrv. þannig að því er spáð að á næsta ári verði tekjuskattur af einkafyrirtækjum hálfum milljarði lægri en áður vegna samdráttar, vegna erfiðleika fyrirtækja, gjaldþrota og hallarekstrar og er þó ekki tekið tillit til verðbólgu. Samdrátturinn yrði mun meiri ef svo yrði gert og borið saman við sambærilegt verðlag. Það er gert ráð fyrir því að tekjuskattur á árinu 1990 verði 2 milljarðar 250 millj. en á næsta ári skili hann einungis 1,7--1,8 milljörðum kr.
    Þessir erfiðleikar í atvinnurekstri koma mjög víða fram, hæstv. fjmrh. Þannig er t.d. gert ráð fyrir því hér að Byggðastofnun fái einungis heimild
til 900 millj. kr. lántöku á næsta ári og það sem er athyglisvert í því sambandi er kannski það að gert er ráð fyrir að lántökur vegna meiri háttar viðgerða og endurbóta á skipum hér á landi verði skornar niður úr 200 millj. í 150 millj.
    Nú kem ég að því, hæstv. forseti, sem ég sagði við 1. umr. fjárlaga í Ed., að það er erfitt að ræða bæði fjárlög og lánsfjárlög þegar einstakir ráðherrar skeyta ekkert um það að vera við. Það væri auðvitað alveg sjálfsagt að hæstv. viðskrh. væri hér við í dag eða þá hans staðgengill. Hver er hans staðgengill? Þá ætti hans staðgengill að vera hér og það er auðvitað algerlega óþolandi að hæstv. viðskrh. fari í ferðir erlendis á sama tíma og verið er að ræða frv. til lánsfjárlaga hér í þinginu. ( EKJ: Hver er staðgengill? Var það ekki spurningin?) ( Fjmrh.: Hæstv. félmrh.)

Hæstv. félmrh. er staðgengillinn og hann ætti þá að vera hér inni. Það væri kannski rétt að biðja um það að staðgengill iðnrh. komi hér og verði fyrir svörum, bæði í sambandi við málefni viðskipta og líka í sambandi við málefni iðnaðar. ( EKJ: Hver er staðgengill utanrrh.?) ( Fjmrh.: Félmrh.) Þetta er auðvitað alger ókurteisi.
    Hér er verið að tala um það, hæstv. fjmrh., út af þessu með skipasmíðapeningana, að svo stendur á í dag að búið er að segja upp starfsfólki stærstu skipasmíðastöðvar landsins vegna verkefnaskorts. Á sama tíma og það blasir við, þá er það tillaga þessarar hæstv. ríkisstjórnar að skera niður það fjármagn sem ætlað er til þess að greiða fyrir því að hægt sé að gera við skip hér á landi. Þetta er auðvitað blautur sjóvettlingur framan í andlitið á því fólki sem þar vinnur og er auðvitað ekki að óvörum sem þessi orð standa í lánsfjárlögum því að það hefur kostað baráttu á hverju einasta ári að reyna að tryggja það að fé komi með eðlilegum hætti til íslenska skipasmíðaiðnaðarins. ( Gripið fram í: Hver sem í hlut átti.) Nú veit ég ekki hvort hæstv. fjmrh. sér í hinu enska blaði svör við því sem ég er að spyrja hann um. En úr því að ég er að ávarpa hann sérstaklega, hæstv. forseti, og þarf að leggja fyrir hann spurningar, þá finnst mér algerlega lágmarkskurteisi að ráðherrann hlusti á það sem maður er að segja. Ef hins vegar er kominn venjulegur lestrartími ráðherrans, þá getum við auðvitað tekið okkur smáhlé þannig að hann geti farið afsíðis og lesið þar þá erlendu doðranta sem honum sýnist. En ef hann er á hinn bóginn staddur hér í þingsalnum til þess að svara þeim spurningum sem einstakir þm. vilja fyrir hann leggja, þá ætti hann að leggja frá sér þennan snepil sem hann er með í höndunum. ( Fjmrh.: Það er leikur einn að nema orð þm. um leið og maður les.) Hæstv. ráðherra svaraði ekki þeim fyrirspurnum sem ég spurði hann um í sambandi við fjárlögin. Við getum byrjað.
    Hefur hæstv. fjmrh. staðið loðdýraræktinni skil á uppsöfnuðum söluskatti vegna ársins 1988? Hefur hann gert það? ( Fjmrh.: Í samræmi við þær tölur sem eru í fjárlögum.) Hann hefur ekki staðið loðdýrabændum skil á uppsöfnuðum söluskatti fyrir árið 1988. Hefur hæstv. fjmrh. staðið við það sem hann hét aðilum vinnumarkaðarins á sl. vori (Gripið fram í.) hefur hann staðið við þau fyrirheit sem hæstv. forsrh. lofaði á sl. vori, að beita sér fyrir aðgerðum í skattamálum sem mundu létta á atvinnurekstri hér á landi ( Fjmrh.: Að sjálfsögðu.) þannig að það yrði sambærilegt við það sem er í næstu nágrannalöndum okkar? Ekki þarf lengi að lesa hér í frv. til lánsfjárlaga til að sjá að það er ekkert.
    Flettum t.d. upp á 13. gr., hæstv. fjmrh. Hún er ný. Hún hefur ekki áður sést í lánsfjárlögum. Þar er talað um það að það séu kannski til einhver erlend lán sem fari pínulítið betur út úr opinberum sköttum en önnur og komist hjá því að greiða svokallað ríkisábyrgðagjald. Af þeim sökum er nú ákveðið að ef Iðnþróunarsjóður og Iðnlánasjóður veita fyrirtækjum

sérstaka fyrirgreiðslu skv. auglýsingu viðskrn. nr. 548/1988, þá er ekki alleinasta að fjmrn. krefst þess nú að fá að setja stimpil sinn á það. Af hverju? Af því að hann ætlar að ná í pínulitlar aukatekjur til ríkissjóðs með þeim hætti, pínulítið stimpilgjald sem hann veit að fyrirtækin mundu ella losna við. Það á að auka pinklana, auka lánsfjárkostnaðinn af þessum manni sem segir það og sagði hér áðan að raunvextir hefðu lækkað. Og hvernig var það með þetta ríkisábyrgðagjald? Kemur það ekki ofan á stimpilgjaldið, hæstv. ráðherra? Stimpilgjaldið sem er orðið svo mikið nú í þessu landi að það er orðið hærra en allur tekjuskatturinn af atvinnurekstrinum í landinu, skv. því fjárlagafrv. sem fyrir liggur? Það er meira borgað í stimpilgjöld hér á landi heldur en sem nemur tekjuskatti af öllum atvinnurekstri í landinu. Og nú hefur ráðherrann uppgötvað að pínulítið af ríkisábyrgðagjaldinu rann fram hjá og nú á líka að setja undir þann leka. Hæstv. fjmrh. krefst þess nú að hann eigi að fá að samþykkja og hann verði að fá að stimpla þau sérstöku lán sem veitt eru skv. þessari auglýsingu og eru inni í þeim tölum sem eru núna í þessu frv. til Iðnþróunarsjóðs og Iðnlánasjóðs skv. 8. og 9. gr. frv. Þetta er athyglisvert í ljósi þess að umsvif þessara sjóða hafa verið minnkandi. Það hefur verið lítið um lánsumsóknir borið saman við það sem áður hefur verið.
    Þetta, ásamt því nýmæli sem stendur á bls. 9 og 10 í greinargerð, með leyfi
hæstv. forseta, er orðað svo:
    ,,Það nýmæli er tekið upp í frumvarpi til lánsfjárlaga 1990 að gera lánasjóðum og öðrum aðilum, sem njóta ríkisábyrgðar á skuldbindingum sínum, skylt að kynna Seðlabanka Íslands, í umboði fjármálaráðuneytis, fyrir fram um áform sín um erlendar lántökur og leita eftir samþykki hans á þeim kjörum og skilmálum sem í boði eru hverju sinni. Þetta ákvæði er tekið upp til þess að tryggja að samræmi sé á milli þeirra lánskjara sem stofnanir með ríkisábyrgð og ríkissjóður sjálfur njóta á alþjóðlegum lánamörkuðum.``
    Þarna á Seðlabankinn að koma inn sem nokkurs konar yfirstjórn. Hver var reynslan, hæstv. fjmrh., af því að láta taka öll erlend lán á einum stað? Það kom stöðnun. Lánin urðu dýrari en ella og reynslan hefur einmitt sýnt hið gagnstæða, að opinberum fjárfestingarlánasjóðum hefur mörgum tekist að komast að betri kjörum með því að þeir hafa haft frjálsar hendur. En hér á að fara til baka. Hér á, í gegnum Seðlabankinn, að vekja upp sjóð sjóðanna sem hét Framkvæmdasjóður áður og nú á að gera þetta í gegnum Seðlabankann. Og í umboði fjmrn. stendur. Hvar verður valdið? Verður valdið hjá hæstv. fjmrh.? Ætlar hann að fjarstýra þessum lántökum í gegnum Seðlabankann eða hvernig á að standa að þessu? Eru stuðningsmenn þessarar ríkisstjórnar reiðubúnir til þess að hrúga öllu valdi hér í peningamálum til þessa líka hæstv. ráðherra. Mig langar til að segja, hæstv. forseti, til þessa líka manns, en ég veit að það er óþinglegt. Ég óska eftir því að hæstv. fjmrh. útskýri þetta betur

og ég óska eftir því að hæstv. fjmrh. í leiðinni útskýri fyrir þinginu hvert sé hlutverk viðskrh. í sambandi við þau málefni sem áður féllu undir langlánanefnd. Ég óska eftir því að hæstv. fjmrh. í fjarveru viðskrh. skýri frá því hér við umræðuna. Hann hefur hjálparkokkana í hliðarherberginu til þess að ná í upplýsingar ef þær eru ekki fyrir hendi. Hvaða undantekningar og hvaða frávik hafa verið gerð frá auglýsingu viðskrn.? Ég óska eftir því við meðferð málsins í nefnd að fá nákvæma sundurliðun og skýrslu um það hvaða lánveitingar hafa verið heimilaðar og ég spyr enn fremur hvort hugmyndin sé að auka miðstýringu á erlendu lánsfé enn meir en verið hefur.
    Það er eitt atriði, strax á fyrstu síðu þessa frv. til lánsfjárlaga, sem vekur athygli og það er aftur Byggðastofnunin. Nú liggur það fyrir, sem ég veit ekki hvort hæstv. fjmrh. er kunnugt, að stjórn Byggðastofnunar mun þurfa að sækja um 500 millj. kr. lántökuheimild til viðbótar því sem stendur á lánsfjárlögum þessa árs, sem komi til greiðslu nú á þessu ári. Ástæðurnar fyrir því eru þær í fyrsta lagi að lítið fé kemur inn vegna erfiðrar rekstrarstöðu fyrirtækja, sumpart vegna þess að almennur grundvöllur hefur ekki verið fyrir hendi en sumpart vegna þess að þorskveiðikvótinn er farinn að segja til sín og umsvif fyrirtækja í sjávarútvegi fara minnkandi. Þá liggur það fyrir að þarfir smábáta fyrir fyrirgreiðslu eru meiri en gert var ráð fyrir eða sem svarar 250 millj. kr. Loks hefur Byggðasjóður orðið að grípa inn í m.a. í loðdýrarækt vegna þeirra brigða sem ríkisstjórnin hefur sýnt þeirri atvinnugrein. Hæstv. landbrh. hefur raunar staðfest í Sþ. að ekki hefur verið staðið við þau fyrirheit sem ríkisstjórnin gaf loðdýrabændum. Ég vil spyrja hæstv. fjmrh. sérstaklega um þetta atriði og í leiðinni vil ég spyrja hæstv. fjmrh. að því hvernig á því standi að hann óskar nú eftir lántökuheimild fyrir Atvinnutryggingarsjóð útflutningsgreina með sérstöku frv. á þessu ári, en hins vegar verði gert ráð fyrir því í lánsfjáráætlun fyrir næsta ár að þessi sjóður taki verulegt fé að láni, bæði hér á landi og erlendis. Ég vil spyrja hæstv. fjmrh. að því hvernig á því megi standa að hann kjósi nú að blanda saman fjármálum ríkisins og fjármálum Atvinnutryggingarsjóðs og hvort hitt sé ekki eðlilegra að Atvinnutryggingarsjóður hafi sjálfstæðan fjárhag og taki sín erlendu lán sjálfstætt eins og verið hefur.
    Ef vikið er að einstökum greinum þessa frv., þá vil ég taka þetta fram: Í 14. gr. er sérstaklega rætt um framlag vegna Lífeyrissjóðs bænda. Nú liggur það fyrir að þessi sjóður getur ekki staðið við greiðsluskuldbindingar sínar og auðvitað er nauðsynlegt að hann fái hærri fjárhæð en hér er gerð grein fyrir.
    Nú er það slæmt, hæstv. fjmrh., að flokksbróðir hans, hæstv. samgrh., skuli ekki vera við. Hann kaus að vera fjarverandi þegar fjárlög voru afgreidd í Sþ. Það væri kannski hægt að ganga úr skugga um það hvort hæstv. samgrh. sé í þessu húsi eða hvort þessir ráðherrar séu allir á síflótta einhvers staðar úti í bæ.

Hér er gert ráð fyrir því að skera framlög ríkissjóðs til Hafnabótasjóðs niður úr 25 millj. kr. í 20 millj. kr. ofan á það að gert er ráð fyrir því að framlög til hafnarmannvirkja og lendingarbóta séu skorin niður um 60 millj. kr. skv. frv. til fjárlaga. Ég óska eftir því, hæstv. fjmrh., að fá skýringu á því eða greinargerð á hverju þessi niðurskurður á framlagi til Hafnabótasjóðs er reistur. Ef gert er ráð fyrir 25--30% verðbólgu á milli ára, þá sjá menn að hér er um verulegan niðurskurð að ræða, verulegan niðurskurð.
    Ég þarf auðvitað ekki að taka fram, herra forseti, ef ráðherra skorast undan að svara svona beinum spurningum eins og ég hef lagt hér fram hlýtur það að vera tekið fyrir á fundi forseta þingsins hvernig eigi að standa að því að
umræður geti farið fram með eðlilegum hætti uppi í deildum.
    Ég vil enn fremur vekja athygli á því að til Kvikmyndasjóðs er varið 71 millj. kr. Það er sama framlag og á þessu ári og lýsir með öðru afstöðu ríkisstjórnarinnar t.d. til Menningarsjóðs, þeirri menningarfjandsamlegu stefnu sem þessi ríkisstjórn vekur og kemur víða fram.
    Síðast en ekki síst er svo sú forsmán að skera Framkvæmdasjóð aldraðra niður við trog og þar kemur einmitt fram þetta tvígervi hæstv. ráðherra. Annars vegar hrósar hann sér af því opinberlega þegar hann er á sjónvarpsskjánum að hann sé að skera niður útgjöld ríkissjóðs. Hvaða útgjöld er hann að skera niður? Hvaða rekstrarútgjöld er hann að skera niður? Hefur samneyslan minnkað? Nei. Hann vill halda sínum hluta. Hvað er hann að skera niður? Hann er að skera niður framlög einmitt til slíkra hluta eins og Framkvæmdasjóðs aldraðra, eins og Lífeyrissjóðs opinberra starfsmanna. Hvert skyldi vera hlutverk þessa sjóðs, Framkvæmdasjóðs aldraðra? Hlutverk hans er:
    1. Að styrkja byggingu þjónustumiðstöðva, dagvista, þjónustuhúsnæðis aldraðra og hjúkrunarrýmis fyrir aldraða.
    2. Að veita styrki til breytinga og endurbóta sem nauðsynlegar eru á eldra húsnæði fyrir aldraða eða leiða af ákvæðum þessara laga, þ.e. laga um málefni aldraðra.
    3. Að styðja sveitarfélög, einkum dreifbýlissveitarfélög til að koma á fót heimaþjónustu fyrir aldraða.
    4. Önnur verkefni sem sjóðsstjórn mælir með og heilbrrh. samþykkir.
    Þetta eru verkefnin. Og það er meira en lítið ókunnugur maður hér á landi sem hyggur að það sé einhver ofrausn þótt ríkisstjórnin skili til þessara verkefna þeim nefskatti sem hún lagði á á þessu ári, litlum 250 millj. kr. Þetta kemur á sama tíma og efnahagsstefna þessarar ríkisstjórnar hefur leitt til þess að hvort tveggja í senn, bætur til aldraðra og almennar tryggingabætur, lækka að verðgildi.
    Hæstv. ráðherra var að hrósa sér af því hér um daginn að kaupmáttur lægstu launa hefði batnað síðan hann gerði samningana í vor. Og hæstv. ráðherra var

svo ósvífinn að segja hér þegar fulltrúi eins verkalýðsfélags steig í stólinn að ríkisstjórnin hefði ekki brotið né brugðist þeim loforðum sem hún gaf verkalýðshreyfingunni nú á vordögum. Það væri fróðlegt að heyra hæstv. fjmrh. rökstyðja það hér í stólnum, hvernig það megi vera að hann hafi staðið við loforðin. Fór verkalýðshreyfingin fram á það nú í vor að kaupmáttarskerðingin héldi áfram? Var verkalýðshreyfingin að biðja um að fá plagg á borðið eins og þetta hér, Þjóðhagsáætlun fyrir árið 1990? Sagði hæstv. fjmrh. við forustu Bandalags starfsmanna ríkis og bæja að hans stjórnarstefna mundi valda því að kaupmáttur ráðstöfunartekna mundi minnka um 8,2% á þessu ári og féllst formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja á að hann héldi áfram að minnka um tæp 5% á því næsta? Var það í samkomulagi aðila vinnumarkaðarins að skera framlög til aldraðra, til bygginga fyrir aldraða niður um 25%? Eða 33% er það víst. Var þetta nóg? Var það kannski á loforðalistanum hjá ríkisstjórninni að þyngja enn nú á næsta ári skattana á fyrirtækjunum sem verið er að loka hverju á fætur öðru? Bara í dag, bara rétt áðan voru mér að berast þær fréttir að ríkissjóður væri að loka fyrirtæki sem skuldaði 2 millj. kr. og bauðst til þess að borga 600 þús. upp í.
    Hvarvetna, hvert sem við lítum leggur þessi ríkisstjórn stein í götu frjáls atvinnurekstrar í landinu, lengir leiðina sem forsvarsmenn fyrirtækja þurfa að fara til þess að fá eðlilega lánafyrirgreiðslu. Fram að þessu hefur verið nóg að leita til Iðnlánasjóðs eða Iðnþróunarsjóðs ef
menn hafa uppfyllt almenn skilyrði. En nú er það ekki lengur nóg. Nú eiga þeir líka að þurfa að fara upp í Seðlabanka. Og það er heldur ekki nóg. Þeir eiga líka að fara upp í fjmrn. til að fjmrn. geti gengið úr skugga um það að mennirnir hafi borgað stimpilgjald. Kannski styttist eitthvað í biðröðunum ef menn eru látnir mæta á mörgum stöðum í einu en verða þó fleiri sem á hverjum stað eru.
    Ég held að hæstv. fjmrh. ætti nú að sýna af sér manndóm og endurtaka yfirlýsinguna sem hann gaf hér í fjölmiðlunum, að það væri batnandi kaupmáttur hjá þeim lægst launuðu, vaxandi kaupmáttur. Þessi ríkisstjórn níddist ekki á þeim lægst launuðu. Menn ættu meira eftir úr launaumslaginu þegar þeir fengju það næst en áður, kæmust vel af. Kannski hann ætli líka að lýsa því yfir að þær þungu og miklu áhyggjur sem þm. hér hafa haft út af heimilunum og skuldasöfnun heimilanna séu allt saman hugarburður.
    Auðvitað veit hæstv. ráðherra að launastefna hans, eins og atvinnustefnan og eins og stefna hans í ríkisfjármálum, hefur brugðist. Auðvitað vissi hann það á þeirri stundu þegar hann sagði að nú ættu aðilar vinnumarkaðarins að semja næst, hann ætlaði ekki að byrja á því að semja við opinbera starfsmenn. Auðvitað gerði hann sér grein fyrir því þegar hann sagði þessi orð að inngrip hans í kjarasamningana á sl. ári var frumhlaup sem hefur valdið ómældu tjóni og skrúfað upp verðbólguna hér á landi.
    Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð. Þessi

lánsfjárlög koma til
athugunar í fjh.- og viðskn. Það er greinilegt á þessu frv. að þar vantar margt inn í og eins og fram kom við umræður um fjárlög ríkisins er ljóst að sú tekjuáætlun sem þar liggur fyrir er vísvitandi lögð röng fram. Hæstv. fjmrh. veit ofurvel að þessir tekjustofnar munu ekki skila þeim tekjum sem þar er talað um vegna þess mikla samdráttar sem er í þjóðfélaginu og endurspeglast bæði í frv. til fjárlaga og í lánsfjárlögum. Það er greinilegt að erlendar skuldir munu halda áfram að vaxa á næsta ári. Það er greinilegt að vextir og afborganir af erlendum lánum eru að verða ískyggilega miklar strax á næsta ári og ég tala nú ekki um ef þessi óheillaríkisstjórn situr áfram. Ég man satt að segja ekki eftir fjmrh. sem hefur farið fram með meiri gassagangi en þessi hér þegar hann talaði um það að það verði að endurskapa atvinnustefnuna, móta nýja atvinnustefnu, þegar hann brokkaði á egótrippum hér um þingsalinn til þess að láta í ljósi fyrirlitningu sína á því að forveri hans skyldi hafa skilið við ríkissjóð með halla en er nú kominn í þá ömurlegu stöðu að hann treystir sér ekki einu sinni til að sýna greiðsluafgang á pappírnum á fyrstu gerð fjárlagafrv. nú á þessu hausti, þegar hann grípur til þess ráðs að halda því fram í þingsölum að ekki megi draga efnislegar ályktanir af því að greiðslubyrði erlendra lána hækkar hlutfallslega frá einu ári til annars, þegar hann lokar augunum fyrir því að við sjáum nú fram á verulegt atvinnuleysi á næsta ári og nauðsynlegt verði að beita margþættum og margháttuðum ráðstöfunum til þess að styrkja íslenskan atvinnuveg með almennum aðgerðum til þess að reyna þó að halda í horfinu.
    Síðast en ekki síst vek ég athygli á ummælum hv. 3. þm. Vestf. Karvels Pálmasonar. Það leyndi sér ekki að hann hefur orðið fyrir miklum vonbrigðum með þessa ríkisstjórn og ég fullyrði að hann er í mjög náinni snertingu við atvinnulífið úti á landi og veit þess vegna fullkomlega hvað hann er að segja. Við sjáum það á fjárhag Byggðasjóðs. Við sjáum það á því að nú ætlar ríkisstjórnin að draga 900 millj. til viðbótar inn í Atvinnutryggingarsjóð á þessu ári. Við sjáum það á því að það líður áreiðanlega ekki vika, kannski ekki dagur, án þess að hæstv. ráðherra sendi lögreglumenn sína til þess að loka fyrirtækjum í stað þess að reyna að greiða þó fyrir því að úr leysist hjá þeim, því að víða er ótti almennings orðinn að nagandi kvíða yfir því hvort hann haldi vinnunni næsta dag. Víða sjáum við það að fólk sem komið er á miðjan aldur, fólk sem er á aldur við okkur hæstv. fjmrh. á í fá hús að venda ef það á annað borð missir atvinnuna. Þannig er nú komið hér á landi. Ég held þess vegna að hæstv. ráðherra ætti að fara að tilmælum þm. að vestan, sem hefur gott pólitískt nef, skilja sinn vitjunartíma, gefa aðstoðarmönnum sínum frí og segja skilið við fjmrn. Hitt veit ég ekki hvort hann verður sami aufúsugesturinn og áður uppi í Háskóla eftir þau hrokafullu ummæli sem hann hefur viðhaft í blöðum um Þjóðarbókhlöðuna þegar hann ætlar að stela happdrættisfénu til þess að nota í hana.

Enn eitt dæmið um skatt sem ekki skilar sér, þjóðarbókhlöðuskatturinn. Hér erum við að tala um skattlagningu vegna aldraðra. Nú á að taka frá öldruðum og þannig mun ríkisstjórnin reynast að fátt fær að vera í friði.
    Ég er þakklátur fyrir það, herra forseti, að náð var í hæstv. samgrh. að mínum óskum og vil endurtaka spurningar mínar. Hversu má það vera að framlag til Hafnabótasjóðs er skorið niður um 5 millj. kr. fyrir utan það að verðgildi þessara króna hefur farið minnkandi á síðustu mánuðum og verður mun minna á næsta ári en þessu? Ég óska eftir því að hæstv. samgrh. geri deildinni grein fyrir því hvaða rök liggja þarna að baki, hvaða skoðanir liggja þarna að baki, þegar þetta kemur ofan í þennan mikla niðurskurð sem er almennt á framlögum til hafna og lendingarbóta. Mér kemur það afskaplega mikið á óvart, hæstv. landbrh., ef þetta er raunhæft og fullyrði að þetta hlýtur að koma mjög illa niður.
    Ég vil líka spyrja hæstv. landbrh. þess hvort hann telji nægilegt að 48,3 millj. kr. renni til Lífeyrissjóðs bænda. Nú vitum við báðir að Lífeyrissjóður bænda getur ekki staðið við sínar greiðsluskuldbindingar, þarf á verulegri aðstoð að halda fram yfir það sem hér er gert ráð fyrir, sem er raunar í samræmi við þær nýju yfirlýsingar sem gefnar hafa verið um landbúnaðarmál. Ég óska eftir því að hæstv. landbrh. svari þessu jafnframt. Loks spyr ég hæstv. ráðherra hvort undir hann hafi verið borið að skera fé vegna meiri háttar viðgerða og endurbóta á skipum hér á landi niður um 25% í krónum talið, úr 200 millj. í 150 millj., en eins og við vitum þá er búið að segja upp starfsfólki Slippstöðvarinnar á Akureyri og almennt á þessi iðnaður við veruleg vandkvæði að etja.