Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Virðulegur forseti. Ég get reynt að svara hv. 2. þm. Norðurl. e. að svo miklu leyti sem ég er undir það búinn og hef svörin á reiðum höndum án þess að afla mér þá frekari upplýsinga.
Í fyrsta lagi spurði hv. þm. um fjárveitingar til Hafnabótasjóðs á næsta ári. Þar er um sambærilegan samdrátt í fjárveitingum að ræða og til annarra almennra verkefnaflokka og gilda því sömu röksemdir eða sömu skýringar eiga við. Ég held að staða Hafnabótasjóðs sé í sjálfu sér ekki lakari en framkvæmdaþáttarins sjálfs, þ.e. hinna almennu hafnaframkvæmda og þörfin sé nú síst minni að reyna að hafa skerðinguna þar sem minnsta. Sjóðurinn sjálfur fékk nokkra hækkun á síðasta ári umfram aðra liði til hafnamála og er í sjálfu sér ekki illa staddur þó að hann mætti að sjálfsögðu hafa meira fé til ráðstöfunar eins og almennt á við um þennan málaflokk. En miðað við þau verkefni og það hlutverk sem honum sem slíkum er ætlað í hafnaframkvæmdunum, þá held ég að staðan þar sé ekki verri en almennt á við um hafnamálin.
Hvað varðar 14. gr. frv. þar sem vikið er að Stofnlánadeild landbúnaðarins og Lífeyrissjóði bænda, þá miðast sú grein og sú upphæð sem þar er nefnd við það að núgildandi lög sem falla úr gildi að óbreyttu um áramót verði framlengd óbreytt, þannig að upphæðin tekur mið af því að um óbreytt fyrirkomulag að þessu leyti yrði að ræða á næsta ári. Ég vona að þetta svari að einhverju leyti spurningum hv. þm.
Hvað varðar fjárveitingar til endurbóta og verkefna í skipasmíðaiðnaði innan lands, þá heyrir það ekki undir nein mín ráðuneyti að svara fyrir það og ég vísa því til fjmrh.