Flm. (Friðrik Sophusson):
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. 1. þm. Vesturl. fyrir hans ræðu sem gefur fyrirheit um það að þetta mál verði skoðað rækilega af hálfu Framsfl. á yfirstandandi þingi. Það er rétt sem hv. þm. sagði að það er boðað í málalista ríkisstjórnarinnar að þetta mál verði lagt fram á yfirstandandi þingi. Það var líka gert í fyrra og ég var í stöðugu sambandi við hæstv. ráðherra allan fyrravetur um það hvort ég ætti að leggja frv. fram eða ekki og samkvæmt hans beiðni geymdi ég það þar til ljóst var að ekki næðist samkomulag um það á milli stjórnarflokkanna. Ég lagði frv. ekki fram nú fyrr en að höfðu samráði við ráðherrann. Að sjálfsögðu mæltist hann til þess að hann mætti áfram í vetur reifa málið í stjórnarflokkunum, en vegna þess að eitt af því sem var nefnt til andstöðu við frv. á síðasta þingi var það hversu seint það var fram komið taldi ég mér ekki skylt með neinum hætti að bíða með framlagninguna, enda geta stjórnarflokkarnir komið sér saman um það að styðja frv., með eða án breytinga, sem liggur í nefnd í þinginu.
Það er ekkert leyndarmál og er rétt sem fram kom hjá hv. ræðumanni að þetta frv. var undirbúið í iðnrn. á sínum tíma að frumkvæði þess sem hér stendur.
Varðandi það hvað kalli á sölu á fyrirtækinu skal það skýrt tekið fram að þetta frv. gerir einungis ráð fyrir því að fyrirtækinu sé breytt í hlutafélagsform og ég tek undir það með hv. 1. þm. Vesturl. að það er ástæða til þess að breyta félagsforminu hjá ýmsum fyrirtækjum. Það gerir reksturinn sveigjanlegri og stöðuna þægilegri og opnar fleiri möguleika fyrir fyrirtæki til að taka þátt í skyldum rekstri sem fyrirtækið hefur ekki getað gert hingað til nema með sérstöku leyfi ráðherra hverju sinni.
Það skal síðan að lokum tekið fram, og kom reyndar fram hjá hæstv. forseta í upphafi fundar, að það var að ósk hæstv. forseta sem málið var tekið fyrir í dag þrátt fyrir fjarveru hæstv. iðnrh. vegna þess að það lá ekkert annað mál fyrir hv. deild og féllst ég á það, enda yrði umræðunni ekki lokið fyrr en hæstv. ráðherra yrði hér viðstaddur. Það er því alveg ljóst að hæstv. forseti hefur þegar gert þær ráðstafanir að 1. umr. málsins verði ekki lokið án þess að hæstv. ráðherra fái tækifæri til að tjá sig og segja sína skoðun á málinu.
Ég held, virðulegur forseti, að það sé ekki fleira sem ástæða er til að komi fram en ég ítreka það að málið verður væntanlega til áframhaldandi 1. umr. í næstu viku.