Fyrirspyrjandi (Ingi Björn Albertsson):
Hæstv. forseti. Ég þakka ráðherra fyrir langt svar en það var á stundum að ég hafði það á tilfinningunni að fsp. hefði verið misskilin og hefði kannski verið lesin á þann hátt að ég hefði verið að biðja um upplýsingar um skráningu, hvernig gengi að afla upplýsinga um fatlað fólk, en það var nú ekki meiningin. Auðvitað er það gott að það skuli vera unnið að heildarupplýsingaöflun og fá heildarmynd yfir sviðið. Það hefur nú tekið eitt og hálft ár. Það kom ekki fram hversu mikið verk er eftir.
Ráðherra kom inn á það að það mætti kannski efast um gildi neyðarlistans upp á 108 manns. Ég held að það sé algjört aukaatriði og ég ætla ekkert að efast um málflutning ráðherrans í því efni, en eins og kom fram, þó að um 22 aðila sé að ræða sem ráðherrann efast um að eigi heima á þessum lista, þá eru engu að síður eftir 86 aðilar. Ég leyfi mér að túlka það sem neyðarástand engu að síður.
Eins og ég sagði hér í upphafi væri staðan allt önnur og betri ef Framkvæmdasjóður hefði fengið sitt framlag óskert og ef ráðherrann vill þessum málaflokki vel, sem ég efast ekkert um, stuðlar hún náttúrlega að því að þetta fé renni óskert til þessa málaflokks.
Ég harma það hins vegar að mér heyrist það ljóst að ráðherra ætlar ekki að verða við þeirri áskorun sem þessi samtök hafa lagt fram og bið hana að endurskoða þá ákvörðun sína.