Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
Virðulegi forseti. Kostnaður við það rit sem hér er til umræðu er 838 þús. og 11 kr. Eins og fram kemur í inngangi að þessu riti er þetta fyrsta ritið í ritröð um helstu þætti íslensks menningarstarfs sem ráðuneytið mun gefa út. Það eru eftir þrjú rit, þ.e. í fyrsta lagi um myndlist, listhönnun og húsagerðarlist. Þetta rit kemur út nú fyrir jól og í það skrifa Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Örn Jónsson hönnuður og Guðrún Jónsdóttir arkitekt. Í öðru lagi er rit um tónlist og Bergljót Jónsdóttir ritstýrir því. Aðalhöfundar eru Þorkell Sigurbjörnsson, Karólína Eiríksdóttir og Hjálmar H. Ragnarsson. Í þriðja lagi er rit um leiklist, listdans og kvikmyndir. Í það rita Sveinn Einarsson, dagskrárstjóri sjónvarps, Kristín Jóhannesdóttir kvikmyndagerðarmaður og Árni Ibsen, leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins.
Það er ljóst að kostnaður við fyrsta ritið um bókmenntir mun nýtast við útgáfu hinna ritanna þar sem kápa verður sú sama og uppsetning verður eins. Allir höfundar hafa þegar skilað inn greinum og munu því rit nr. 3 og 4 koma út fljótlega eftir áramót.
Í ræðu sinni taldi hv. fyrirspyrjandi að hér væri um að ræða vélabrögð sem væru einvörðungu fundin upp af undirrituðum. Ég verð því miður að hryggja hv. þm. með því að það er ekki svo. Margir menntamálaráðherrar hafa um langt skeið lagt á það áherslu að koma á framfæri með einhverjum hætti upplýsingum um íslenska menningu á erlendum vettvangi. Það starf hefur því miður oft verið býsna tilviljunarkennt og ekki hefur verið nægilega vel að því staðið. Það hafa fleiri menntamálaráðherrar en ég séð. M.a. var um það fjallað í ráðuneytinu í tíð forvera míns, Birgis Ísl. Gunnarssonar, m.a. á síðustu dögum hans þar, þegar hann lagði svo fyrir að það yrði hafinn undirbúningur rits af því tagi sem hér er um að ræða.
Ég hirði satt að segja ekki um pólitískan skæting í þessu sambandi og vísa honum á bug. Það er auðvitað alltaf álitamál hver á að vera í svona riti og hver ekki. Það er alveg rétt hjá Guðmundi Daníelssyni, þetta er lítið kver, þetta eru 32 bls. með stóru letri þannig að það er alltaf álitamál. En að þarna sé um að ræða einhverjar pólitískar markalínur, eins og hv. þm. Halldór Blöndal gaf í skyn af þjóðkunnri þröngsýni sinni, þá er það ekki svo. Það eru margir höfundar sem ekki eru með í þessu riti, m.a. ýmsir höfundar sem tæplega verða taldir borgaralegir höfundar. Þarna er t.d. ekki fjallað um Þórberg Þórðarson. Þarna er ekki minnst á Jóhannes úr Kötlum, Guðmund Böðvarsson, Stein Steinarr, Theódóru Thoroddsen, Steinar Sigurjónsson, Ástu Sigurðardóttur, Einar Braga eða Þorstein frá Hamri. Ég hygg að menn sjái af þessari upptalningu hvað það er í raun og veru fánýtt að mæla svona rit á grundvelli þess hverjir eru nefndir og hverjir ekki. En ég viðurkenni að það hlýtur alltaf að vera álitamál hverjir eru teknir með og hverjir ekki og það eru höfundar greinanna sem hljóta að bera ábyrgð á því
í einstökum atriðum. Við temjum okkur ekki ritskoðun á verkum af þessu tagi í menntmrn.