Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Að gefnu tilefni verður forseti að biðja hv. þm. sem biðja um orðið til að gera stuttar athugasemdir í fyrirspurnatímum að misnota ekki slíkan tíma með því að tala jafnlengi og fyrirspyrjandi má tala, sem eru tvær mínútur. Stutt athugasemd er hámark ein mínúta.