Danfríður Skarphéðinsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég vil þakka fyrirspyrjanda fyrir að vekja máls á þessu hérna. Það er nokkurt áhyggjuefni hvað málin virðast vera seint á ferðinni hér. Við þingmenn landsbyggðarkjördæmanna höfum sennilega flestir verið á ferð um landið og fundað með sveitarstjórnum á undanförnum vikum. Höfum við fengið margar fyrirspurnir einmitt varðandi uppgjörsmálin og samninga, hvort þeir haldi gildi sínu þegar lögin nýju um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga taka gildi nú um áramótin. Það hefur verið mjög óþægilegt að hafa ekki nein svör á reiðum höndum, ekki síst, vænti ég, fyrir þá sem styðja þessa ríkisstjórn.
En ég vil aðeins benda á að það er ýmislegt fleira en uppgjörsmálin sem þarf að huga að og fólk spyr líka mikið um núna. Það snertir ekki einungis menntmrn. heldur fleiri ráðuneyti og er varðandi starfsmannamál. Þeir sem flytjast frá því að vera starfsmenn sveitarfélags og ríkis eins og gerist t.d. við fjölbrautaskóla, þeir verða nú starfsmenn ríkisins. Hvernig verður ráðið fram úr þeirra málum?
Ég vildi aðeins koma að þessari athugasemd þó að hér sé verið að fjalla um uppgjör á fjármálunum, en bendi á annan mikilvægan þátt málsins.