Fyrirspyrjandi (Birgir Ísl. Gunnarsson):
Virðulegi forseti. Ég stend nú hér upp fyrst og fremst til þess að þakka hæstv. ráðherra fyrir svör hans. Þau voru greinargóð svo langt sem þau náðu. Ástæðan fyrir því að ég bar fram þessa fsp. hefur reyndar komið mjög glögglega fram í ræðum þeirra tveggja hv. þm. sem hafa tekið þátt í umræðunni. Það er áhyggjuefni mjög margra sveitarstjórnarmanna að það skuli ekki hafa unnist hraðar og betur að vinna að þessari reglugerð. Ef það stenst að hún verði gefin út eftir hálfan mánuð, þá fagna ég því að sjálfsögðu. Þetta er mjög mikilvægt mál sem verður að taka mjög alvarlegum og föstum tökum. Þess vegna vænti ég þess að hæstv. ráðherra geri það og fylgi því eftir sem hann hefur hér sagt að nú verði farið í þetta mál af krafti og reglugerð gefin út því að auðvitað er reglugerðin sá grunnur sem uppgjörið hlýtur að þurfa að hvíla á.