Fyrirspyrjandi (Birgir Ísl. Gunnarsson):
Virðulegi forseti. Þessi fsp. er af svipuðum toga og sú sem ég bar hér fram áðan, en hún á rætur að rekja til þeirra laga sem sett voru á síðasta þingi í tengslum við lögin um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Þá voru sett ný lög um tekjustofna sveitarfélaga þar sem m.a. var gert ráð fyrir verulega breyttu hlutverki Jöfnunarsjóðs -- ég skal ekki fara nánar út í það hér -- en hið nýja hlutverk Jöfnunarsjóðs skiptir að sjálfsögðu mjög miklu máli fyrir sveitarfélögin í landinu, ekki síst hin smærri og veikburða. Í 20. gr. laganna var það síðan lagt á herðar félmrh. í samráði við Samband ísl. sveitarfélaga að setja nánari reglur eða reglugerð um starfsemi sjóðsins. Drög að slíkri reglugerð voru sýnd þingnefndum í vor þegar verið var að fjalla um þetta mál. Það er ekki vafi á því að þau reglugerðardrög áttu nokkurn þátt í því að greiða fyrir því að þetta mál fór með góðu samkomulagi hér í gegnum þingið í vor. Þar komu m.a. fram ýmsar reglur, sérstaklega varðandi minni sveitarfélögin, sem gerðu a.m.k. suma þm. rólegri. Samkvæmt þeim drögum átti að bæta minni sveitarfélögum upp aukin útgjöld og Jöfnunarsjóðurinn átti að standa undir nafni og verða raunverulegur jöfnunarsjóður.
Mér er kunnugt um að sveitarfélög eru orðin langeygð eftir þessari reglugerð, þau eru mörg hver farin að undirbúa sínar fjárhagsáætlanir fyrir
næsta ár og þess vegna er ástæða til þess að spyrja um það nú hvað líði setningu reglugerðar um framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem félmrh. ber að setja skv. 20. gr. laga nr. 91/1989 um tekjustofna sveitarfélaga.