Reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga
Fimmtudaginn 02. nóvember 1989


     Fyrirspyrjandi (Birgir Ísl. Gunnarsson):
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir svörin. Þau svör sem hún flutti hér fullnægja mér alveg. Ég tel að þetta sé vandaverk og þurfi auðvitað að vanda til þess og skil að það hafi tekið nokkurn tíma en fagna því ef það stenst sem hæstv. ráðherra segir, og ég dreg það að sjálfsögðu ekki í efa að reglugerðin verði sett nú um miðjan þennan mánuð.