Flm. (Hreggviður Jónsson):
Hæstv. forseti. Hér er á dagskrá till. til þál. um tvöföldun Reykjanesbrautar en flm. auk mín er Ingi Björn Albertsson. Till. er svohljóðandi, með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela samgönguráðherra að láta hefja nú þegar undirbúning að tvöföldun Reykjanesbrautar frá Hafnarfirði að Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Skal gert ráð fyrir því að lögð verði önnur akbraut við hliðina á hinni gömlu þannig að fullkomin hraðbraut með algerlega aðskildum akstursstefnum og tveimur akreinum í hvora átt tengi saman þessa tvo staði. Stefnt verði að því að ljúka verkinu fyrir árslok 1992. Þetta verkefni verði tekið út úr vegáætlun og meðhöndlað sem sjálfstætt verkefni óháð langtímaáætlun um vegagerð. Leitað verði leiða til þess að afla fjár til verksins utan vegáætlunar.``
Það er kunnara en frá þurfi að segja að umferð um Reykjanesbraut er afar mikil. Reykjanesbrautin hefur algjöra sérstöðu í vegakerfinu. Við getum orðað það svo að Reykjanesbrautin sé hlið Íslands að umheiminum. En það er ekki nóg með að umferð um Reykjanesbraut hafi vaxið gífurlega á undanförnum árum heldur er það einnig eðli hennar sem er sérstakt. Fjöldi bifreiða sem ekur um brautina bæði á síðkvöldum og árla morguns er mikill. Hér koma til tvö atriði. Í fyrsta lagi er fjöldi fólks sem fer til vinnu á hverjum degi eftir Reykjanesbrautinni og í öðru lagi er nær allt utanlandsflugið sem fer frá Keflavíkurflugvelli.
Þessi tvö atriði skapa sérstöku umferðarinnar um Reykjanesbrautina. Jafnframt nota íbúar Suðurnesja Reykjanesbrautina mjög mikið utan þess sem snertir atvinnumál þeirra. Bæði sækja þeir margs konar þjónustu til höfuðborgarsvæðisins og einnig fjölbreytilegar tómstundir. Ég minni sérstaklega á mikinn fjölda Suðurnesjabúa sem fer á skíði, bæði í Bláfjöll, Skálafell og Hengilssvæðið, á hverjum vetri.
Það er einnig svo að þessi mikla umferð hefur orðið til þess að Reykjanesbrautin er í dag þannig að við erfiðar aðstæður skapast mjög hættulegt ástand vegna þess að slitið á brautinni er svo mikið. Þetta hefur að vísu verið lagfært að hluta til með því að fræsa úr veginum annað slagið en áfram eru ákveðnir kaflar mjög hættulegir.
Þá er það svo að umferðin um Reykjanesbrautina hefur, eins og ég sagði, algjöra sérstöðu miðað við aðra vegi landsins. Við frjálslyndir hægrimenn höfum það á okkar stefnuskrá að brautin verði tvöfölduð. Við teljum það ákveðna stefnu og þá með tilliti til þess að unnið hefur verið að álíka verkefnum í vegamálum með svipuðum hætti úti á landi. Ég minni hér á að Ólafsfjarðarmúlinn var mjög hættulegur vegur og því var ákveðið að leggja göng milli Dalvíkur og Ólafsfjarðar sem sérstakt verkefni. Ég tel að staða Reykjanesbrautarinnar sé með þeim hætti að það beri að tvöfalda hana og vinna með svipuðum hætti að því og ég nefndi varðandi göngin á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur.
Við þingmenn Reykn. höfum fengið mjög viðamikla úttekt um Reykjanesbrautina og hugsanlegar endurbætur á þeim vegi sem núna er og jafnframt upplýsingar um umferð um veginn og ýmiss konar fróðlegar upplýsingar frá Vegagerðinni. Þessar upplýsingar geri ég ráð fyrir að komi fram í umræðu hér á eftir um þetta. En ég tel mikilvægt að menn líti til þess að þetta er alveg sérstakt verkefni og því mikilvægt að að því verði staðið með þeim hætti sem við leggjum til. Þá ber ekki að draga það undan að slys hafa verið tíð á Reykjanesbrautinni og fjöldi banaslysa hefur orðið á henni síðan hún var lögð. Það er auðvitað svo að banaslys verða víðar og e.t.v. tíðari á mörgum stöðum þar sem umferð er meiri, en þrátt fyrir það er þetta afar hættulegur kafli, og sumir hafa viljað kalla hana dauðabrautina. Svo getum við litið til þess að nær allt utanlandsflug fer frá Keflavíkurflugvelli og umferðin því mikil frá Keflavík til höfuðborgarsvæðisins.
Það er líka svo að erlendir þjóðhöfðingjar lenda á Keflavíkurflugvelli og eru keyrðir á miklum hraða til höfuðborgarinnar. Ég tel því að þessi braut sé í þeirri sérstöðu að við eigum að tvöfalda hana því að þetta er í raun og veru vegurinn til útlanda. Þetta er vegurinn að landamærunum. Þessi vegur hefur því algjöra sérstöðu miðað við aðra vegi sem eru hér á landi. Við höfum einnig séð það að á vetrum er mjög mikil hætta á þessari braut, en mikill hluti umferðarinnar er eldsnemma á morgnum, þegar fólk er að fara í flug, er að fara
til vinnu eða er að koma úr vinnu frá Keflavíkurflugvelli. Þá er mikil umferð, eins og ég minntist hér á áðan, síðla kvölds þegar Suðurnesjabúar eru að koma héðan frá Reykjavík, en hingað hafa þeir sótt mikið í sínum tómstundum. Það er því mjög brýnt að það verði staðið vel að þessum málum og ég vonast til að þegar málið verður tekið fyrir í nefnd verði samstaða um að vísa því til ríkisstjórnarinnar til afgreiðslu og skoðunar með þeim hætti að unnið verði að þessum málum mjög hratt og vel og við fáum tvöfalda Reykjanesbraut sem allra fyrst.
Það er líka brýnt að við lítum til þess að fé til vegamála hefur verið mun minna til Reykjaness, og það hefur farið minnkandi og einnig til höfuðborgarsvæðisins, miðað við það fé sem fer til annarra byggða á landinu undanfarin ár. Það er því tími til kominn að þessum málum verði snúið við og teknar upp vegabætur hér með meiri þunga en áður hefur verið gert. Ég vil minna á það að sú mikla aukning á bifreiðaeign sem núna hefur orðið er mest á þessu landsvæði og þeir notendur eru að sjálfsögðu flestir á þessu fjölmenna svæði. Annars vegar eru u.þ.b. 55% hér á hinu svokallaða höfuðborgarsvæði, en með Suðurnesjunum eru þetta 65% allra íbúa á landinu. Þess vegna er það í rauninni rökrétt að meiri fjármunum sé veitt til vegamála á þessu svæði en hefur verið gert. Og það er brýnt að svo verði gert, enda hafa tollar af bifreiðum og önnur gjöld komið að langstærstum hluta frá íbúum þessa svæðis, svo og gjald af bensíni. Það er því náttúrlega mikilvægt að
íbúarnir sem greiða mest til þessara mála fái til vegagerðar meira en áður hefur verið. Ég tel að það sé tími til kominn að menn hugsi um þessi mál að þessu leyti og sameinist um það að svona brýnt verkefni eins og tvöföldun Reykjanesbrautarinnar verði framkvæmt nú fljótlega. Umferðin hefur margfaldast undanfarin ár. Ég tek sem dæmi að í kringum 1980 voru bifreiðar á Reykjanesbraut við Straumsvík í kringum 3000 en eru nú komnar upp í 10.000. Hins vegar er umferðin þar fyrir sunnan náttúrlega mun minni þegar er tekin talning og Straumsvík ekki talin með. Engu að síður er mjög mikilvægt að gerðar verði ráðstafanir þegar í stað til að tvöfalda brautina og jafnframt að það liggi fyrir áætlun um það með þeim hætti skipulag sveitarfélaga og skipulag flugstöðva geri ráð fyrir að nægilegt land verði fyrir slíka tvöföldun.
Ég vil ekki á þessu stigi hafa þessa ræðu öllu lengri en vísa að öðru leyti til greinargerðar sem fylgir með frv. og vil þó að lokum rétt minna á að þetta var 1. mál er varaþingmaður Frjálslynda hægriflokksins, Kolbrún Jónsdóttir, flutti hér þegar hún settist á þing og ég tel að það hafi verið gott mál þá og sé ekki síðra núna og mikilvægi þess hafi vaxið með hverju árinu sem líður.