Ingi Björn Albertsson:
Hæstv. forseti. Ég vil aðeins fá að segja örfá orð sem annar flm. að þessari till. Þó að ég sé fulltrúi fyrir annað kjördæmi þá tel ég þetta slíkt nauðsynjamál að það beri að horfa á það með hagsmuni landsins sem heildar að leiðarljósi.
Það kom fram hér áðan í máli hv. þm. Jóhanns Einvarðssonar að vegamálastjóri telji að umferðarþunginn um þennan veg sé ekki nægjanlegur til þess að rökstyðja það að tvöfalda eigi þessa braut. Ég tel að við megum ekki horfa á umferðarþungann einan og sér í þessu dæmi. Við getum t.d. flett upp í þessu ágæta þskj. og séð þar töflu yfir slysatíðnina eða skoðað þá hrikalegu mynd sem er aftan á þskj. sem sýnir það glögglega að þetta er einhver hættulegasti, ef ekki allra hættulegasti vegarkafli á landinu. Það má líka horfa til t.d. Ólafsfjarðarmúlaframkvæmdanna. Það er engan veginn hægt að rökstyðja þær framkvæmdir með umferðarþunga en hins vegar hægt að gera það með slysatíðni.
Ég minni á það að þingmenn Vesturlands hafa lagt fram svipaða till., ef svo má að orði komast, um jarðgöng undir Hvalfjörð, þar sem einnig er gert ráð fyrir að hún verði kostuð af fé utan vegáætlunar.
Auðvitað gerum við okkur grein fyrir því, bæði þingmenn Vesturlands og væntanlega þingmenn Reykjaness, að þetta kostar allmikið fé og verður ekki gert í einni hendingu. En það sem við erum kannski helst að kalla á er viljayfirlýsing þingsins um það að í þessar framkvæmdir verði farið, á hvaða tímapunkti sem það er, en ég tel nauðsynlegt að tímasetja það. Það er kannski fullstíft til orða tekið hér í þessari ályktun að verkinu verði lokið fyrir árslok 1992 en það má að sjálfsögðu laga það til og ég ætla ekkert að stinga upp á neinni ákveðinni dagsetningu á það. Ég vænti þess að sú nefnd sem fær þetta til umræðu skoði þann flöt á málinu.
Það kom einnig fram hér hjá hv. þm. Karli Steinari Guðnasyni að það er fjárhagslega hagkvæmt að steypa vegi, eins og ég held nú að allir hafi vitað, og það hlýtur að vera spurning fyrir okkur sem stefnumarkandi þátt hvort það á ekki að fara í æ ríkari mæli í það að steypa vegi landsins. Þó það sé dýrara í upphafi þá vinnur það sig fljótt upp í viðhaldi vega.
Hæstv. forseti. Ég vildi aðeins fá að segja þessi örfáu orð. Ég tel að hv. 1. flm. hafi mælt mjög vel fyrir okkar munn í þessu máli og lýk því ræðu minni.