Flm. (Anna Ólafsdóttir Björnsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir þáltill. um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Till. er að mestu samhljóða tillögu er flutt var á vorþingi 1988. Flm. eru Anna Ólafsdóttir Björnsson, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir, Kristín Einarsdóttir, Málmfríður Sigurðardóttir og Þórhildur Þorleifsdóttir.
Till. er svohljóðandi, með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela félagsmálaráðherra að gera sérstakt átak til að kynna fólki á vinnumarkaðinum réttindi þess og skyldur. Í því skyni skipi ráðherra sjö manna nefnd er kanni:
1. Hvernig best megi tryggja að allir er ráðast til starfa á almennum vinnumarkaði þekki réttindi sín og skyldur, þar með talin launakjör, lífeyrisréttindi, reglur um hvíldartíma, orlofsgreiðslur og uppsagnarákvæði. Nefndin kanni hvort lögbinding starfssamninga milli einstaklinga og atvinnurekenda sé æskileg leið til að tryggja að enginn sé ráðinn í vinnu án þess að þekkja réttindi sín og skyldur. Nefndin kanni enn fremur hvernig fræðsla um þessi mál yrði best felld inn í skólakerfið.
2. Hvernig best megi tryggja að einstaklingar, er fá laun sín greidd sem verktakar eða eftir uppmælingu, njóti eigi lakari kjara en launþegar í hliðstæðum störfum. Tekið sé tillit til heildarlauna, vinnutíma, álagseinkenna, lífeyrisréttinda og orlofs. Leitað verði upplýsinga um hve margir eru utan stéttarfélaga á vinnumarkaðinum.
Nefndin skili niðurstöðum eigi síðar en í júní 1990.
Kostnaður við störf nefndarinnar greiðist úr ríkissjóði.``
Margt hefur breyst síðan þessi till. var flutt. Þá var þensla í atvinnulífi og mörgum þótti ástæðulítið að hafa áhyggjur af því þótt einhverjir væru að vinna á skjön við kjarasamninga og utan allra stéttarfélaga. Nú eru samdráttartímar og afleiðingar andvaraleysisins eru sem óðast að koma í ljós. Staða og réttleysi fólks, sem nú er farið að nefna gerviverktaka, er að verða skýrari. Eitt hefur þó ekki breyst, en það er þörfin fyrir að gera það átak sem lagt er til í þáltill. okkar kvennalistakvenna og það frekar fyrr en seinna.
Í tímaritinu Vinnunni var í sumar fjallað ítarlega um málefni þessa hóps og brugðið upp dæmum um hve blekkjandi kostaboð um hærri laun til verktaka geta verið. Með leyfi forseta langar mig til að líta á það dæmi sem þar er tekið. Tekið er dæmi um að manni eru boðnar 80.000 kr. fyrir starf sem verktaki en hann fengi greiddar 60.000 kr. fyrir sama starf sem launamaður. Með útreikningum vegna kostnaðar lækkaði þessi tala í 70.200 og af henni greiddist auk þess í staðgreiðslu skatta og lífeyrissjóð 8600 og 2800, þannig að eftir í vasa þessa manns ættu að sitja u.þ.b. 46.000 kr. Ef viðkomandi væri launþegi liti dæmið þannig út að hann sæti þegar allt væri frá dregið uppi með 52.000 kr. í vasanum, eða heilum 6000 kr., sem kannski er ekki mikill peningur en munar um þegar launin eru á þessu bili, meira en
hefði hann tekið því kostaboði að fá 20.000 kr. launahækkun, því það eru mjög margir sem hugsa málin þannig.
Þetta er aðeins eitt af mörgum dæmum um þá umfjöllun sem verið hefur í ritum ýmissa félagasamtaka og þá fyrst og fremst stéttarfélaga. Í tímaritinu Dagsbrún hefur verið fjallað ítarlega um málaferli er spunnust út af því að Dagsbrúnarmaður varð fyrir slysi meðan hann starfaði sem undirverktaki.
Í VR-tíðindum var nýlega ágæt grein eftir Guðmund B. Ólafsson lögfræðing um málefni svokallaðra verktaka og þar eru skilgreiningar á verktökum og gerviverktökum á þessa leið, með leyfi forseta:
,,Að undanförnu hefur það færst í vöxt að fólk ráði sig í vinnu sem verktakar án þess að uppfylla hin almennu skilyrði er einkenna verktaka. Vinnuveitandi býður þá starfsmönnum hærri laun en launataxtar stéttarfélaga kveða á um gegn því að starfsmaðurinn telji fram til skatts sem sjálfstæður atvinnurekandi. Vinnuveitandi sparar sér þá m.a. að greiða launatengd gjöld af launum starfsmannsins.
Helstu einkenni verktaka eru að þeir fá ákveðna greiðslu fyrir ákveðið verk. Þeir taka ábyrgð á því verki sem þeir vinna og þeir stjórna því hvernig verkið er unnið, þeir ráða því hver vinnur verkið, þeir njóta hagnaðar eða bera tap af verkinu, þeir nota eigin verkfæri eða þá tæki til verksins. En skiptir það starfsmanninn einhverju máli, þ.e.a.s. að hann kalli sig verktaka þó hann sé það í raun ekki, fyrst hann fær hærri laun í umslagið en launþegi sem vinnur sama starf?``
Þetta er sú spurning sem Guðmundur B. Ólafsson veltir upp og hann kemur með smálista um helsta mun á réttarstöðu verktaka og launþega:
,,Launþegi hefur rétt til launa í veikinda- og slysaforföllum, verktaki ekki. Launþegi hefur rétt til atvinnuleysisbóta, verktaki ekki. Launþegi greiðir 4% lífeyrissjóðsiðgjald af launum sínum, verktaki 10%. Launþegi hefur rétt til orlofs, verktaki ekki. Launþegi hefur rétt til uppsagnarfrests, verktaki ekki.
Réttur til ýmissar fyrirgreiðslu, t.d. lögfræðiaðstoðar, er launþegans en ekki verktakans. Ábyrgð á skilum staðgreiðslu skatta og ýmsum öðrum launatengdum gjöldum er ekki launþegans en verktakans. Greiðsluskylda launaskatts er ekki launþegans, heldur verktakans. Greiðsluskylda söluskatts af vinnu er ekki launþegans, heldur verktakans. Og launþeginn hefur rétt til lífeyrissjóðsláns, en verktaki sem er í Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda á ekki kost á
lífeyrissjóðsláni.`` Þar með lýk ég tilvitnunum mínum.
Ýmsir hafa ályktað um það vandræðaástand sem óljós staða þessa hóps á vinnumarkaðinum hefur skapað og má þar nefna Alþýðusamband Norðurlands og ýmis stéttarfélög. Eitt er ljóst og sameiginlegt þeim dæmum sem rakin eru í þeim heimildum sem ég hef hér litið á, og það er að þessi umræða á sér stað innan stéttarfélaga. Þegar kært er vegna brota á verktökum á í hlut fólk sem hefur vitund og virkni innan stéttarfélaga og kann að notfæra sér það.
Sennilega er aðstaða þeirra er sækja rétt sinn með aðstoð stéttarfélaganna, sem styður þá með ráðum og dáð, fjarri því að vera dæmigerð. Svo margir eru andvaralausir um þessa leið til að sækja rétt sinn. Er ekki eitthvað bogið við fræðslu um vinnumál fyrst hægt er að útskrifa á hverju ári fjölda fólks út í atvinnulífið án nokkurrar þekkingar á réttarstöðu sinni á vinnumarkaðinum? Hálf er ég hrædd um að unga fólkið sem vinnur t.d. á krám borgarinnar, ræður sig í bjórafgreiðslu og uppvask, viti lítið um réttindi sín eða skyldur, en þetta er nýjasti stóri hópurinn sem hér er um að ræða. Alla vega held ég að hann viti ekki um réttindi sín né heldur ófaglært fólk sem ræður sig í alls konar störf undir einhvers konar verktakaheiti, málningarvinnu t.d., ræstingar, pappírsröðun, pökkun á alls konar ritum. Þessi dæmi er að finna alls staðar.
Sá fjöldi sem stendur utan stéttarfélaga fer án efa vaxandi. Þegar svo eru bornar brigður á lögmæti þess að skylda menn í stéttarfélög er ljóst að brýnt er að kynna rækilega hvað menn hreppa og hverju þeir sleppa með því að vera innan stéttarfélaga og taka laun samkvæmt töxtum þeirra þótt þeir séu ekki alltaf til að hrópa húrra fyrir. Vilji menn semja um hærri laun en taxtar kveða á um er það gott fyrir þá og útilokar engan veginn að launin miðist við taxta að viðbættu álagi en því miður er algengara að þegar upp er staðið beri menn minna úr býtum með svokölluðum frjálsum samningum, semji um einhverjar aukakrónur í vasann sem eru þó fjarri því jafnmargar og þeir ættu rétt á eins og dæmið sem ég rakti hér áður sýndi glögglega.
Ég er ekki í nokkrum vafa um að þeir sem fyrst og fremst gjalda þessarar þróunar eru konur. Þær hafa ekki bara mátt sæta því að vera taldar varavinnuafl og þurft að sitja undir því að vera kastað inn og út af vinnumarkaðinum eftir geðþótta einhverra annarra en þeirra sjálfra, heldur eru þær oft þar að auki réttlausar á þessum vinnumarkaði, ráðnar upp á óljós kjör, ekkert öryggi og varla einu sinni að þær fái neinar aukakrónur til að vega upp á móti réttleysinu.
Spyrja má: Eru stéttarfélög að hverfa án þess að við tökum eftir því? Nei, sjálfsagt er það ekki miðað við stöðuna í dag. En gætum að okkur. Ef þróunin verður hröð gæti svo orðið. Við verðum því að spyrja: Hvað gerist? Vinnst eitthvað með þeirri þróun og hverju glötum við? Eitt dagblaðanna kallaði þessa þróun ,,að stimpla sig út úr velferðarþjóðfélaginu``. Því miður bendir margt til þess að þessi orð séu að verða að áhrínsorðum. Menn eru að átta sig á því á harðneskjulegan hátt hver staða þessa hóps er, þessa hóps sem tímaritið Vinnan nefnir þessu góða nafni, gerviverktakar. Og nú eru menn farnir að velta því fyrir sér hvað er að gerast og hvort stéttarfélögin, samfélagið eða hið opinbera eigi í raun einhverjar skyldur við þennan hóp. Um það eru menn nefnilega ekki á einu máli.
Ég er ekki í nokkrum vafa um að hið opinbera á miklar skyldur í þessu máli. Við verðum að ná til fólks áður en það fer á vinnumarkaðinn, fræða það um almenn mannréttindi í starfi. Þetta er sundurleitur
hópur, en það er trú mín að góð fræðsla muni skila fleirum inn í stéttarfélög og þar nái sú góða fræðsla sem víða á sér stað innan þeirra til þessa fólks því að ekki gerir hún það standi það utan félaganna. Þá verða líka þeir vindar að blása innan félaganna að fólk fýsi að starfa innan þeirra og þá á ég ekki síst við að gert verði átak til að rétta hlut kvenna sem eiga að búa við það allt of oft að vera látnar sitja eftir með smánarkaup eftir hetjulegar samningalotur.
Ég sé fyrir mér samstarf stéttarfélaga og ríkisins í fræðslumálum um vinnuréttarmál. Hjá félögunum liggur mikil þekking og þar hefur verið haldið uppi öflugu fræðslustarfi. Þessa þekkingu verður að nýta og bæta við hana. En þessi fræðsla firrir ríkið ekki ábyrgð. Það þýðir ekki að kvarta bara, heldur þarf að taka til hendinni. Nú skiptir máli að leita leiða til úrbóta. Það þarf að komast að því um hve stóran hóp er hér að ræða. Það þarf að kanna við hvaða kjör hann býr. Það er nauðsynlegt að finna einhver ráð til að kynna fólki rétt og réttleysi á vinnumarkaði eftir því upp á hvaða býti það ræður sig og ég sé ekki betri leið en almenna fræðslu- og skólakerfið. Þetta ætti að vera verksvið þeirrar nefndar sem ég legg til að verði sett á laggirnar auk þess annars sem um er getið.
Starfssamningar gætu t.d. verið á þann veg að það ætti að lögbinda það að ekki mætti ráða mann í vinnu nema gera við hann starfssamning eftir ákveðnum staðli og þegar komin væri sérstök lína fyrir lífeyrisgreiðslur, orlof og uppsagnarfrest og annað það sem hér er um rætt færi ekki á milli mála hvaða kjara menn nytu. Auð lína fyrir orlof, auð lína fyrir vaktaálag, auð lína fyrir lífeyrisgreiðslur mundu auðvelda mönnum að gera sér grein fyrir rétti sínum og réttleysi. Auk þess gætu stéttarfélög betur kynnt þau kjör sem menn njóta með því að taka laun sem miðast við samninga þeirra. Slíkir starfssamningar mundu þar að auki auðvelda kjararannsóknir, en þingkonur Kvennalistans hafa fengið samþykktar tillögur um eflingu þeirra. Varla yrðu samningar af þessu tagi til annars en að létta róðurinn í skattaeftirliti og hamla gegn svokallaðri svartri eða grárri vinnu. Og ekki má gleyma því að þótt hér sé sjónum beint að þeim launþegum í verktakastétt sem rýrust hafa kjörin eru einnig til hálaunamenn í sama hópi sem ekki gjalda allir sitt til samfélagsins.
Ég efa það ekki að þetta verk verður að vinna og það verður til hagsbóta fyrir alla. Oft hafa stéttarfélögin í landinu orðið fyrir gagnrýni, stundum réttmætri, stundum ranglátri. Talað er um að breyta þurfi kerfinu, stofna vinnustaðastéttarfélög, leggja niður verkalýðshreyfinguna á einu bretti því hún sé svo duglaus og úrræðalaus. Lifandi umræða um kaup og kjör fólks, breytingar á vinnutilhögun og skipulagi vinnumarkaðarins er nauðsynleg. Menn verða hins vegar einnig að hyggja að því sem er að gerast nú þegar og taka mið af því í umræðunni. Sú breyting sem er að verða á vinnumarkaðinum hefur ekki orðið í kjölfar umræðna, samþykkta, samráðs eða áætlana, heldur óyfirvegað og tilviljunarkennt í flestum
tilvikum. Það getur varla verið ákjósanlegt. Gott orðtak segi að rétt sé að hugsa fyrst og framkvæma svo. Ætli svo sé ekki í þessu máli?
Að umræðu lokinni legg ég til að málinu verði vísað til síðari umræðu og félmn.