Staða íslensks skipaiðnaðar
Fimmtudaginn 02. nóvember 1989


     Halldór Blöndal (um þingsköp) :
    Hæstv. forseti. Samkvæmt þingsköpum hefur ráðherra tvær mínútur til svara þegar umræður utan dagskrár eru í hálftíma. Forseti gerði ráðherra ekki aðvart fyrr en hann hafði talað í 4 mínútur. Síðan talaði hæstv. ráðherra í hálfa aðra mínútu til þess að veitast að sjálfstæðismönnum í svo stuttri umræðu að við fáum ekki svigrúm né tíma til þess að skýra þau ákæruatriði sem hæstv. ráðherra bar fram.
    Ég vil aðeins segja að lokum, hæstv. forseti, að ég þakka fyrir að hafa fengið heimild til þess að tala utan dagskrár á mánudag, ótímabundið, um ástand í atvinnumálum. Ástæður þess að ég fer fram á þessar umræður eru í fyrsta lagi að hæstv. ráðherrar hafa farið með ósannindi, bæði hér í þingsölum og í samtölum við fréttamenn sem nauðsynlegt er að leiðrétta og ég mun gera á mánudaginn. Í öðru lagi er ástæðan sú að ráðherrar svara ekki beinum fyrirspurnum sem til þeirra er beint í umræðum t.d. um lánsfjárlög og fjárlög. Í þriðja lagi vegna þess að hæstv. ráðherrar hafa tekið upp þann sið að vera ekki viðstaddir í þinginu þegar hin þýðingarmestu mál eru til umræðu eins og fjárlög og lánsfjárlög, rétt aðeins sá ráðherrann sem málið heyrir undir er við. Því er óhjákvæmilegt að efna til sérstakrar umræðu í Sþ. til þess að kalla þessa ráðherra til svara og þeir ráðherrar sem ég hef óskað eftir að mæti hér kl. 2 á mánudag eru hæstv. fjmrh., hæstv. forsrh., hæstv. iðnrh. og að lokum, þó af öðru tilefni sé en ég hef nú gert grein fyrir, hæstv. sjútvrh. sem ég vil þó taka fram að er mjög til fyrirmyndar í sinni embættisfærslu og í samskiptum sínum við þm.