Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Það mun vera rétt hjá hv. þm. að ég gaf hæstv. fjmrh. ekki merki fyrr en eftir að hann hafði talað í 3 mínútur, það voru ekki 4. En eins og hv. þingheimur síðan heyrði og sá lét hæstv. ráðherra illa að stjórn og talaði vissulega of lengi. Hann hefur því fyrirgert annarri ræðu sinni sem hann á rétt á að halda að öllu jöfnu sem tekur einnig tvær mínútur, en hann mun ekki fá orðið frekar hér í þessari umræðu. Ég bið velvirðingar á þessu.