Staða íslensks skipaiðnaðar
Fimmtudaginn 02. nóvember 1989


     Stefán Guðmundsson:
    Virðulegi forseti. Það er alvarlegt mál þegar atvinnufyrirtæki þurfa að grípa til þess ráðs að segja upp öllu starfsfólki sínu. Það er ekki bara alvarlegt fyrirtækisins vegna, heldur einnig og ekki síður vegna starfsfólksins sem hefur unnið hjá þessum fyrirtækjum vel og eytt þar gjarnan bestu starfsárum ævi sinnar. Það er því hörmulegt sem er að gerast í þessari atvinnugrein í dag.
    Ég hef hér á Alþingi margsinnis varað við þeirri þróun sem hér er til umræðu í dag og allir sjáandi menn hefðu átt að sjá. Ég hef á síðasta þingi og þar áður flutt tillögu í þessu efni og ég ætla að leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa hér upp:
    ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að tryggja að allra leiða verði leitað til að efla og bæta samkeppnisstöðu innlends skipaiðnaðar og sporna við því að skipaiðnaðarverkefni fari úr landi. Ríkisstjórnin tryggi að útvegsmenn og opinberir sjóðir semji ekki um nýsmíði skipa eða viðhaldsverkefni erlendis án undangengins útboðs þar sem innlendir aðilar keppi á jafnréttisgrundvelli við erlendan skipaiðnað, m.a. varðandi meðhöndlun tilboða og fjármagnsfyrirgreiðslu. Tilboðin verði metin á viðskiptalegum grundvelli áður en lánveitingar eru ákveðnar. Gerðar verði staðlaðar reglur um útboð, veðskilmála og tilboð í skipaiðnaðarverkefni. Ríkisstjórnin beiti sér fyrir því að bankarnir veiti sambærilegar ábyrgðir vegna skipaiðnaðarverkefnis innan lands og veitt eru þegar verkefni eru unnin erlendis.``
    Undirtektir við þetta mál voru ætíð góðar og ég hlýt því að spyrja nú eins og ég hef gert oft áður, ráðherrar góðir: Hvar eru efndirnar? Hvar eru efndirnar, ráðherrar góðir?