Stefán Valgeirsson:
Virðulegi forseti. Ég held að þeir sem hafa talað átti sig í raun og veru ekki nógu vel á því, eða a.m.k. kemur það ekki fram, hvað er að gerast í okkar landi. Það eru ekki eingöngu skipasmíðarnar sem eru að fara svona. Er ekki verið að flytja fisk til útlanda, óunninn? Er ekki frelsið yfirleitt að drepa okkur eins og er farið með það? Frjálsir vextir, frjálst að fara með verkefni til útlanda, jafnvel er krafist frjáls innflutnings á öllum vörum.
Málið er ekki eingöngu þetta. Við þurfum að taka upp nýja atvinnustefnu í heild og auðvitað gengur þetta ekki, að skipin komi frá útlöndum, kannski ekki í tugum en mjög mörg, nýsmíðuð eða þá skipin eru endursmíðuð og gert við þau erlendis. En fólkið okkar hefur ekki atvinnu. (Forseti hringir.) Mér hefði nú fundist að það hefði verið eðlilegt að hafa lengri tíma hér til umræðu og út af fyrir sig þýðir lítið að spyrja hæstv. fjmrh. sem er sviptur orðinu, biðja hann um svör. Ég held að hann þyrfti að hafa a.m.k. möguleika að geta svarað. Og ég verð að finna að því, virðulegi forseti, að þessi umræða skuli vera svona takmörkuð því að hér er um svo mikið mál að ræða að þetta er eitt mesta mál þjóðarinnar, atvinnumálin í heild.