Staða íslensks skipaiðnaðar
Fimmtudaginn 02. nóvember 1989


     Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Mér er sagt að hæstv. fjmrh. hafi sagt að hér sé um að ræða vandamál sem hann hafi tekið í arf. Ég ætla ekki að ræða það frekar, við getum gert það á mánudaginn, en ég vil benda á það að í tíð síðustu ríkisstjórnar var hafist handa um samstarf á milli þeirra sem starfa í iðnaði og hinna sem starfa í sjávarútvegi um gerð skýrslu og tillagna sem kennt hefur verið við Appledore og það má segja að lykilatriðið í niðurstöðunni hafi verið sérhæfing og samvinna á milli skipasmíðastöðvanna þannig að ég vísa þessum ummælum algerlega á bug.
    Það sem skiptir máli að segja í þessari umræðu, og ég vil að hv. þm. viti, er þetta: Ég skrifaði hæstv. iðnrh. bréf í sumar, spurði hann hvað væri verið að gera í tilefni af þál. sem samþykkt var á síðasta þingi. Þá kom í ljós að hæstv. forsrh. hafði ekki einu sinni sent ályktunina til iðnrn. en eftir því var gengið, eftir að ég skrifaði þetta bréf. Það vil ég að komi hér skýrt fram. Og sama daginn og ég sendi inn bréfið lét hæstv. iðnrh. sem viðskrh. verða af því að senda bönkunum bréf sem ég hef hérna fyrir framan mig dags. 14. júlí varðandi þetta mál, þar sem hann lýsir því yfir m.a. að hann telji að það sé ekki rétt að skylda útvegsmenn fortakslaust til að bjóða út verk, en fer fram á það að bankar og sparisjóðir fari að því sem stendur í þáltill. Ég skal gjarnan fara yfir þetta mál á mánudaginn kemur og þá kemur í ljós að það er áhugaleysi sem hefur ríkt hjá stjórnvöldum nú. Það varð að sparka í stjórnvöld til þess að þau tækju upp þetta mál í sumar og samt var það einn af stjórnarþm. sem flutti þetta mál inn á þing á síðasta þingi.
    Meira var það ekki að þessu sinni, virðulegur forseti, en á mánudaginn skulum við halda þessum umræðum áfram.