Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson):
Hæstv. forseti. Kjörbréfanefnd hefur borist eitt erindi, kjörbréf Guðmundar Oddssonar, sem hafði hlotið kosningu sem 2. varamaður Alþfl. í Reykjaneskjördæmi en við breytingar er nú orðinn 1. varamaður Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, sem tæki sæti Rannveigar Guðmundsdóttur, 9. þm. Reykn., sem hefur tilkynnt að hún sé á förum á þing Sameinuðu þjóðanna.
Kjörbréfanefnd hefur rannsakað þetta kjörbréf og leggur til að það verði samþykkt.